Skólavarðan - 01.03.2007, Blaðsíða 7

Skólavarðan - 01.03.2007, Blaðsíða 7
7 KJARAMÁL Í þessari grein er ætlunin að fjalla um nokkrar breytingar varðandi fæðingar- orlof. Fæðingarorlofssjóður flutti á nýjan stað um áramót og reglum um greiðslur í fæðingarorlofi hefur verið breytt, bæði hjá Fæðingarorlofssjóði og nú síðast hjá Fjölskyldu- og styrktarsjóði. Um síðustu áramót fluttist Fæðingarorlofs- sjóður frá Tryggingastofnun ríkisins til Vinnumálastofnunar. Fyrstu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði til þeirra sem hófu fæðingarorlof eftir áramót voru um mánaðamót janúar/febrúar og komu frá Vinnumálastofnun. Á heimasíðu Fæðingarorlofssjóðs www.faedingarorlof. is má finna allar helstu upplýsingar um fæðingarorlofið ásamt reiknivél sem áætlar þær greiðslur sem umsækjandi kemur til með að hafa í fæðingarorlofinu. Hægt er að setja ýmsar forsendur inn og sjá t.d. hvað greiðslurnar verði háar ef tekið er fullt fæðingarorlof og svo ef greiðslum er dreift t.d. á tólf mánuði. Að auki geta um-sækjendur nú sótt greiðsluáætlanir sínar og greiðsluseðla frá Fæðingarorlofs- sjóði í heimabanka sína. Umsækjendur þurfa að senda umsóknir sínar til Fæð- ingarorlofssjóðs, Strandgötu 1, 530 Hvammstanga. Þó ber að skila skattkort- um umsækjenda af höfuðborgarsvæðinu til Vinnumálastofnunar, Engjateigi 11, 105 Reykjavík. Reglum um fæðingarorlofsgreiðslur frá Fæðingarorlofssjóði breytt Í febrúar 2007 afnam félagsmálaráðherra, með breytingu á reglugerð nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, þá framkvæmd að fyrri fæðingarorlofs- greiðslur væru lagðar til grundvallar í tekjuviðmiði þegar annað barn foreldra fæðist. Þetta á við þegar skammur tími líður milli tveggja fæðingarorlofa foreldra. Þar með hefur verið horfið frá því að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fyrra fæðingarorlofs verði lagðar til grundvallar við útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði í síðara fæðingarorlofi. Þeir sem hafa farið í fæðingarorlof frá 1. janúar 2005 og fengið greiðslur samkvæmt fyrri framkvæmd geta sótt um leiðréttingu til Fæðingarorlofssjóðs hafi þeir orðið fyrir skerðingu vegna fyrra fæðingarorlofs. Nánari upplýsingar um þetta er að finna á www.faedingarorlof.is Breyttar greiðslur í fæðingarorlofi frá Fjölskyldu- og styrktarsjóði Í byrjun mars 2007 ákvað stjórn Fjölskyldu- og styrktarsjóðs BHM, BSRB og KÍ að breyta þeim reglum sem hingað til hafa verið í gildi um greiðslur í fæðingarorlofi. Frá og með 1. júní 2007 verður farið að greiða fæðingarstyrki til foreldra í stað tekjutengdra greiðslna til kvenna eins og verið hefur hingað til, og verða styrkirnir jafnháir til beggja foreldra með hliðsjón af starfshlutfalli. Frá stofnun sjóðsins vegna fæðingarorlofslaganna árið 2000 og fram til dagsins í dag hefur Fjölskyldu og styrktarsjóður séð um að greiða konum mismun á 80% af heildarlaunum og þeim launum er þær hefðu fengið samkvæmt fyrri reglugerð um barnsburðarleyfi, þá hefur verið litið til fastra launa í sex mánuði og yfirvinnu fyrstu þrjá mánuðina af því. Með þessum breytingum munu greiðslur dreifast á fleiri einstaklinga en áður og þar með lækkar sú upphæð sem hver og einn kemur til með að fá. Sjóðurinn ræður ekki við að bæta við greiðslum til karla m.v. núgildandi reglur, enda hafa greiðslur úr sjóðnum stóraukist m.a. eftir að stjórnvöld ákváðu einhliða að breyta viðmiðunartímabili á 80% af meðaltali heildarlauna úr einu ári í tvö ár. Þar með lækkuðu greiðslur í fæðingarorlofi frá Fæðingarorlofssjóði en hækkuðu á móti úr Fjölskyldu- og styrktarsjóði. Þeir foreldrar sem koma til með að eiga rétt á þessum greiðslum frá og með 1. júní 2007 eru þeir sem hafa verið starfandi hjá vinnuveitanda síðustu sex mánuði fyrir fæðingu barns, taka að lágmarki þriggja mánaða fæðingarorlof og hafa gildan ráðningarsamning á meðan á fæðingarorlofi stendur. Greiðsla verður eins og áður sagði háð starfshlutfalli og m.v. fyrirliggjandi forsendur má gera ráð fyrir að starfsmaður í fullu starfi fái eingreiðslu í kringum kr. 170.000. Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi þessi mál er ykkur velkomið að hringja til mín í síma 595 1111 eða senda mér tölvupóst á netfangið ingibjorg@ki.is Ingibjörg Úlfarsdóttir launafulltrúi KÍ Fæðingarorlof – breytingar Ingibjörg hjá ki.is Lj ó sm yn d : k eg SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 7. ÁRG. 2007

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.