Skólavarðan - 01.03.2007, Blaðsíða 20

Skólavarðan - 01.03.2007, Blaðsíða 20
20 Það þarf líka að huga að börnunum sem þurfa að vera í gæslu Samtökin Heimili og skóli hafa ekki skoðað viðhorf foreldra til vetrarfría, fyrir utan lauslega könnun sem gerð var á vefsíðu samtakanna fyrir nokkrum árum. Framkvæmdastjórinn, Elín Thorarensen, segir afar skiptar skoðanir vera meðal for- eldra á vetrarfríum grunnskólanna. „Sums staðar er mikil ánægja með vetrarfríin, einna helst á höfuðborgarsvæðinu. Úti á landi virðist vera meiri áhugi á því að sleppa vetrarfríi og láta börnin hætta fyrr á vorin.” Að sögn Elínar telja starfsmenn grunnskólanna að börnin komi endurnærð til baka eftir vetrarfríin og að augljóst sé að leyfi frá skóla geri þeim gott. Alltaf er eitthvað um að foreldrar hafi ekki tök á að eyða vetrarleyfunum með börnum sínum og Elín segir að sveitarfélögin verði að gera ráð fyrir því. „Börnin þurfa vissulega á fríi að halda. Ákveði sveitarfélag að hafa frístundaheimili opin í vetrarfríum þá er nauðsynlegt að þar sé boðið upp á annars konar dagskrá en vanalega, þannig að þau börn sem þar dvelja fái líka einhverja tilbreytingu.“ Elín nefnir sem dæmi að í Bretlandi bjóðist börnum að sækja ýmiss konar námskeið í vetrarfríum, bæði á vegum einkaaðila og hins opinbera. Sum börn fá fimm daga frí og önnur fá ekkert Misjafnt er hvenær vetrarfrí eru í ís- lenskum skólum. Þau eru mjög misjöfn að lengd og raunar er allur gangur á því hvort finna má slík frí á skóladagatalinu. Veturinn 2006 – 2007 taka tveir skólar í Reykjavík ekki vetrarfrí, í öðrum skólum borgarinnar er vetrarfríið ýmist fyrir eða eftir áramót og í sumum skólum er frí bæði á haust- og vorönn. Vetrarfrí reykvískra skólabarna er því allt frá tveimur dögum og upp í fimm daga. Mörg dæmi eru um að skólar sem eru í næsta nágrenni hvor við annan séu með vetrarfrí á ólíkum tímum. Í Hafnarfirði taka allir grunnskólar jafnlangt vetrarfrí á sama tíma. Á Akureyri taka allir grunnskólar nema einn tveggja daga vetrarfrí seinni hluta febrúar og nokkrir skólar þar eru að auki með tveggja daga vetrarfrí í nóvember. Í Kópavogi eru vetrarfrí grunnskólanna samræmd, þar taka skólar fjóra daga í vetrarfrí. Af fjórum grunnskólum Ísafjarðarbæjar hefur einungis einn vetrarfrí, í einn dag. Vetrarfrí í skólum í Reykjanesbæ er samræmt og er í tvo daga. Í Garðabæ eru vetrarfrí samræmd, í ár fá nemendur viku frí og þar af eru tveir starfsdagar kennara. Nokkrir einstakir skólar hafa kannað viðhorf foreldra til vetrarfría, væntanlega með það í huga að laga skóladagatal eftir niðurstöðunum. Undanfarin ár hafa bæjaryfirvöld Garðabæjar kannað vilja foreldra til vetrarfría. Í samræmi við niðurstöður hafa vetrarfrí grunnskólanna í bænum verið samræmd. Margrét Björk Svavarsdóttir, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs bæjarins, segir að tilgangurinn með slíkri könnun sé fyrst og fremst sá að auka þjónustu bæjarfélagsins. „Það er okkar hlutverk og skólanna að finna hvað foreldrar og börn vilja og skipuleggja skólastarfið samkvæmt því.” Margrét segir að niðurstöður könnunar sem gerð var í janúar leiði í ljós að mikill meirihluti foreldra í Garðabæ sé hlynntur vetrarfríi. Það er vissulega íhugunar vert fyrir önnur bæjarfélög að feta í fótspor Garðabæjar; sé rétt að málum staðið hljóta slík vinnubrögð að leiða til meiri ánægju með skipulag vetrarfría og betri nýtingar á þeim, börnum og fjölskyldum til góðs. Anna Lilja Þórisdóttir. Börnin þurfa vissulega á fríi að halda. Ákveði sveitarfélag að hafa frístundaheimili opin í vetrarfríum þá er nauðsynlegt að þar sé boðið upp á annars konar dagskrá en vanalega, þannig að þau börn sem þar dvelja fái líka einhverja tilbreytingu. Norrænt sagnanámskeið á Íslandi Verður haldið að Reykjum í Hrútafirði dagana 22. júlí til 27. júlí 2007. Leiðbeinendur koma frá Skandinavíu og Skotlandi. Námskeiðið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á sagnahefðinni. Námskeiðið byggist upp á því að æfa sig í að segja sögur og auka sagnavitund. Skráning og nánari upplýsingar er að finna á www.alfar.is, í síma 581 3933 eða á netfanginu helgahall57@hotmail.com. Félag sagnaþula Styrkt af Norrænu Ráðherranefndinni SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 7. ÁRG. 2007 VETRARFRÍ

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.