Skólavarðan - 01.06.2009, Page 7
7
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 9. ÁRG. 2009
KjARAMÁL
Í þessum pistli langar mig að vekja
athygli á grein 1.3.3. í kjarasamningi
grunnskólakennara. Þar er bæði komið inn
nýtt orðalag og einnig eru nokkur atriði í
þessari grein sem þarfnast oft útskýringa
og ég ætla að minnast á sérstaklega.
Þó að einingarnar séu skilgreindar hér
eins og kemur fram í kjarasamningi er
núorðið alltaf talað um ECTS einingar, sem
stendur fyrir „European Credit Transfer
and Accumulation System“. Það er náms-
einingakerfi sem verið er að innleiða í
öllum löndum EES-svæðisins og jafngilda
tvær slíkar einingar einni háskólaeiningu,
þ.e. 30 eininga nám er 60 ECTS einingar.
Á fundi samstarfsnefndar Kennarasambands
Íslands vegna Félags grunnskólakennara og
Launanefndar sveitarfélaga þann 10. mars
sl. var orðalagi greinar 1.3.3 breytt og er
fyrsta málsgreinin nú: „Hafi leiðbeinandi,
grunnskólakennari, umsjónarkennari, verk-
efnastjóri, sérkennari eða námsráðgjafi 15
eininga sérhæft viðbótarnám á háskóla-
stigi eða 30 eininga framhaldsnám í
fagi á háskólastigi eða leyfisbréf sem
framhaldsskólakennari eða leikskólakennari
hækkar röðun hans um einn launaflokk.“
Orðalagið var áður: „...leyfisbréf á báðum
skólastigum“ en var breytt í „leyfisbréf
sem framhaldsskólakennari eða leikskóla-
kennari“. Þetta þýðir að hafi kennari,
auk leyfisbréfs í grunnskóla, leyfisbréf í
framhalds- eða leikskóla hækkar röðun hans
um einn launaflokk. Fyrsta málsgrein gefur
samtals einn lfl. hvort sem uppfyllt er eitt
eða öll skilyrði málsgreinarinnar.
Oft er spurt um túlkun á því hvað sé 15
eininga (30 ECTS) sérhæft viðbótarnám.
Undir það falla til dæmis þeir sem lokið
hafa 15 eininga (30 ECTS) stjórnunarnámi,
námi í upplýsingatækni, námi í uppeldis- og
menntunarfræðum sem og aðrir sem lokið
hafa 15 háskólaeininga námi með staðfestri
viðurkenningu frá viðkomandi háskóla, þ.e.
hafa lokið 15 eininga háskólanámi (30
ECTS) sem nýtist í starfi (þ.e. í námsgrein
sem kennd er í grunnskóla). Hins vegar má
safna saman 30 einingunum (60 ECTS) með
mörgum námsáföngum sem gefa háskóla-
einingar samkvæmt niðurstöðu samstarfs-
nefndar FG og LN 21. apríl 2001.
Önnur og þriðja málsgrein 1.3.3. haldast
óbreyttar en þar segir: „Hafi leiðbeinandi,
grunnskólakennari, umsjónarkennari, verk-
efnastjóri, sérkennari eða námsráðgjafi
tvöfalt Bed/BA/BS próf eða MA/MS próf
hækkar hann um tvo launaflokka. Hafi leið-
beinandi, grunnskólakennari, umsjónar-
kennari, verkefnastjóri, sérkennari eða náms-
ráðgjafi doktorspróf hækkar hann um
þrjá launaflokka.“ Með tvöföldu kennara-
prófi er átt við að viðkomandi hafi lokið
tveimur prófum sem veita kennsluréttindi,
eldra kennaraprófi eða Bed prófi og prófi í
kennslugrein. Hafi grunnskólakennari fengið
launaflokk vegna viðbótarnáms skv. fyrstu
málsgrein fyrir nám sem er hluti af MA/
MS prófi eða öðru Bed/BA/BS prófi fellur
hann niður þegar viðkomandi fær tvo launa-
flokka vegna annarrar málsgreinar. Hafi
grunnskólakennari fengið viðbótarlaunaflokk
vegna leyfisbréfa á báðum skólastigum
heldur hann honum þegar hann fær launa-
flokka vegna annarrar málsgreinar. Önnur
málsgrein gefur tvo lfl. og þriðja málsgrein
þrjá lfl, en samtals getur grein 1.3.3. gefið
mest sex launaflokka.
Þegar grunnskólakennari leggur fram
gögn sem sýna að hann hafi lokið fram-
haldsnámi ber launagreiðanda að leiðrétta
laun hans í samræmi við ákvæði greinar
1.3.3. mánaðamótin eftir að hann hefur lagt
fram gögnin.
Ef þið hafið einhverjar spurningar um
þetta eða annað er ykkur velkomið að
hringja til mín í síma 595 1111 eða senda
mér tölvupóst á netfangið ingibjorg@ki.is.
Í lokin langar mig að óska ykkur gleðilegs
sumars og vona að þið njótið sumarorlofsins
sem bíður okkar rétt handan við hornið.
Ingibjörg Úlfarsdóttir
launafulltrúi KÍ
Þegar grunnskólakennari leggur fram gögn sem sýna að hann
hafi lokið framhaldsnámi ber launagreiðanda að leiðrétta laun
hans í samræmi við ákvæði greinar 1.3.3. mánaðamótin eftir
að hann hefur lagt fram gögnin.
Launaflokkar vegna prófa og
leyfisbréfa – grunnskóli
Ingibjörg Úlfarsdóttir
launafulltrúi KÍ
Ljósmynd: Steinunn Jónasdóttir
HEILL HEIMUR
AF SKEMMTUN
Nánari upplýsingar? Hringdu í 617 1111
eða sendu email til rubin@rubin.is