Skólavarðan - 01.06.2009, Blaðsíða 20

Skólavarðan - 01.06.2009, Blaðsíða 20
20 SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 9. ÁRG. 2009 NÁMSGöGN Nýlega fékk hópur reyndra kennara styrk úr Þróunarsjóði námsgagna til að útbúa kennsluefni í verkfæris- og marg- miðlunarforritinu Clicker 5 fyrir nemendur með annað tungumál en íslensku. Þetta eru þau Anna Guðrún Júlíusdóttir, Sigurður Fjalar Jónsson, Óskar Sigurðsson og Sigríður Ólafsdóttir. Anna Guðrún og Sigríður eru höfundar Kötluefnisins sem víða er notað með góðum árangri fyrir nem- endur með annað tungumál en íslensku, Sigurður Fjalar hefur kennt UT með tilliti til sérkennslu við menntavísindasvið HÍ (áður KHÍ) og haldið fjölmörg námskeið í Clicker 5 og Óskar stýrir verkefninu fyrir hönd A4 Skólavörubúðar. Við fengum Óskar Sigurðsson til að kynna forritið fyrir lesendum. Clicker 5 styrkir nemendur í læsi, þ.e. lestri, ritun og tali. Það má nota í öllum námsgreinum og fyrir alla nemendur burtséð frá námsgetu. Framleiðandinn hefur hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar fyrir þetta forrit sem er notað í rúmlega 90% breskra skóla og í yfir fjörutíu þúsund skólum um heim allan. Hér mun ég fjalla um það hvernig Clicker 5 styður nám barna með annað tungumál en ensku. Ég styðst við greinina Using ICT to support young learners who are non-native speakers of English eftir tungumálaráðgjafann Dawn Lama sem birt var í tímaritinu Children and Teenagers. Þess má geta að höfundur hefur þróað námsgögn fyrir sama framleiðanda og framleiðir Clicker 5. Notkun UT í skólum til að styðja nám barna með ensku sem annað tungumál er orðin nokkuð útbreidd. Nemendur sem þekkja ekki nýja tungumálið finna strax tölvuverkefni sem þeir geta leyst og upplifa það að geta klárað verkefni, eins vel og eða jafvel betur en skólafélagarnir. Rupert Wegerif hefur skilgreint ávinninginn af þessu svo: „Vegna þess að tölvur eru vélar, án væntinga og með óendanlega þolinmæði, geta þær skapað börnum öryggi til að sannreyna hugmyndir.“ Clicker 5 er öflugt, notendavænt hjálpar- tæki í ritun og margmiðlun, grundvallað á grindum (grids) og ritvinnslu (gluggum). Einnig opnar forritið dyr að margmiðlunar- verkefnum sem styðjast við nýjustu tölvu- tækni með myndir, ljósmyndir, mynd-bönd og hljóð. Hægt er að nota Clicker grindurnar til að uppfylla fjölmörg kennslumarkmið og fullnægja þannig þörfum ólíkra nemenda, þau geta verið allt frá mjög einföldum mynd/orð- tengingaverkefnum, til setningamyndana, tal- bóka og myndbandskynninga. Gagnvirknin gerir nemendum kleift að nálgast námið á fjölbreytilegan hátt. Ritvinnsla í Clicker er talandi ritill og þú getur ýmist notað lyklaborðið til að slá inn orð eða smellt á orð og myndir í Clicker grindunum og sent þau yfir í ritilinn. For- ritið veitir enskunemendum tækifæri til að styðjast við hið ritaða mál með eins mikilli eða lítilli hjálp og þeir þurfa á að halda. Hægt er að útbúa einföld orðaverkefni (líma, merkja) og einnig flóknari verkefni í setingarmyndun með grindum. Þannig getur byrjandi í ensku merkt rétt hugtak við mynd úr frá mörgum valmöguleikum. Nemandi sem er lengra kominn í náminu getur búið til einfaldar setningar með því að notast við fastsetta grind sem tryggir að rétt orð sé valið, öðrum hafnað. Hægt er að litakóða grindur til að að greina talhljóð eða setningahluta þannig að nemandi geti einbeitt sér að tiltekinni færni, t.d. í málfræði, setningagerð eða sagnagerð. Nemendur á efri stigum geta notfært sér orðabanka sem birtast á skjánum (pop-up) til að búa til eigin talbækur, eða þeir styðast við ritramma (writing frame) til að laga til sagnatextann sinn. Tal og hljóð eru mikilvægir eiginleikar Clicker 5 og veita nemendum möguleika á að tala og hlusta. Enski talgervillinn er vand- aður og nemendur geta hlustað á framburð orðs eins oft og þeir þurfa. Þeir geta einnig fengið strax svörun á það sem þeir skrifa með ritlinum (sbr. sjálfspróf og námsmat). Þeir sjá orð og orðasambönd, geta heyrt þau lesin, skrifa og hlustað á setningu/-ar í heild. Þessu til viðbótar er hægt að taka upp tal nemenda til að þjálfa framburð þeirra í ensku og hjóðrita einnig móðurmál þeirra til að hvetja þá til dáða. Hljóðritinn sem birtist (pop-up) veitir öryggi og er hvetjandi fyrir nemendur. Hann gefur þeim færi á að reyna, aftur og aftur, við einstök orð og orðasambönd og nemendur elska það að heyra rödd sína á ensku. Þeir geta hlustað á upplesið orð og hermt eftir því eða bætt rödd sinni við eigin talbók. Kennarar geta síðan sjálfir útbúið grindur sem gera nemendum kleift að klást við ýmsar ólíkar námsgreinar um leið og þeir læra ensku og bætt í grindurnar viðbótarstuðningi, s.s. vísbendingum, áminningum og fleiru. Á www.learninggrid.com er verkefnabanki með miklu magni af tilbúnu Clicker efni og nýju efni er reglulega bætt við. Forritið er einfalt í notkun og því fylgja leiðbeiningar. A4 Skólavörubúðin býður upp á námskeið í Clicker 5, ef næg þátttaka fæst. Óskar Sigurðsson MA Höfundur er vöru- og verkefnastjóri hjá A4 Skólavörubúðinni. Grein Óskars um Clicker 5 er óstytt á www.skola.is Clicker 5 Verkfærisforrit fyrir tungumálanám Náms- og kennsluefnið, Clicker 5 og Katla, verður gefið út í fjórum hlutum á þessu ári og stefnt er að því að fyrsti hlutinn verði tilbúinn í sumar.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.