Skólavarðan - 01.06.2009, Qupperneq 14

Skólavarðan - 01.06.2009, Qupperneq 14
14 SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 9. ÁRG. 2009 NÁMSGöGN, FRéTT Námsgagnastofnun lætur ekki deigan síga og bryddar sífellt upp á nýjungum, nú er það til dæmis nýtt veftorg fyrir kennara með stafrænu námsefni í íslensku á yngsta stigi. Hér er sagt frá þessari nýjung og fleira nýju námsefni í íslensku fyrir þau yngstu í grunnskólanum Íslenska í 1. og 2. bekk - handbók kennara Handbók, einkum ætluð kennurum í 1. og 2. bekk grunnskóla en nýtist einnig kennara- nemum, foreldrum og öðrum þeim sem láta sig máluppeldi barna varða. Bókin er unnin í anda aðalnámskrár frá 2007 þar sem markmiðum er skipað í fjóra flokka: Talað mál og hlustun, lestur og bókmenntir, ritun og málfræði. Heildstæð nálgun í íslenskukennslu er rauði þráðurinn hjá öllum höfundum bókar innar sem þekkja vel nýjustu stefnur og strauma í móðurmálsnámi. Höfundar eru mennta- verðlaunahafar og fleiri frábærar skólakonur: Arnheiður Borg, Halldóra Haraldsdóttir, Guðrún Björg Ragnarsdóttir, Kristín Gísla- dóttir, Ragnheiður Gestsdóttir, Rannveig Löve, Rósa Eggertsdóttir, Sif Stefánsdóttir, Sigríður Heiða Bragadóttir, Sigrún Löve og Þóra Kristinsdóttir. Í bókinni er fjallað um aðferðir og bent á viðfangsefni sem m.a. má sækja á vefsíðuna. Íslenska á yngsta stigi – vefefni Nauðsynleg handbók fyrir kennara í yngstu bekkjum grunnskólans. Íslenska á yngsta stigi – veftorg Nýtt veftorg, ætlað til að auðvelda kenn- urum og öðrum uppalendum að fá yfirlit yfir stafrænt námsefni í íslensku í 1. til 4. bekk grunnskóla. Hér má bæði finna kennsluhug- myndir og nemendaefni, t.d. viðbótarefni sem fylgir útgefnu efni og prenta má út eftir þörfum. Verkefni sem bent er á í nýrri hand- bók kennara eru á þessum vef, sjá www. nams.is Lesum og skoðum orð Gagnvirkur vefur sem miðast við að mæta áherslum í heildstæðri móðurmálskennslu í fyrstu bekkjum grunnskólans. Möguleikar eru á fjölbreyttri og skapandi vinnu. Vefurinn nýtist bæði í samkennslu, með skjávarpa eða rafrænni töflu, og við sjálfstæða vinnu nemenda. Velja má á milli ellefu bóka í Smábókaflokki Námsgagnastofnunar og sex mismunandi leiða til að fást við texta bókanna á ýmsa vegu, svo sem að: • Varpa texta á skjá til að lesa saman og ræða um. • Hlusta á texta upplesinn. Nýtist þeim sem eiga erfitt með lestur en einnig öðrum sem fyrirmynd að góðum upplestri. • Skoða ritmálið skipulega, þ.e. einstaka bókstafi, orðhluta og orð, semja og skrifa stutta texta o.fl. Kennsluábendingar um notkun vefjarins fylgja, sjá www.nams.is Bókakista Fjölbreytt viðfangsefni í íslensku ætluð til notkunar í 1. til 4. bekk grunnskóla eru vænt- anleg í sumar. Þau skiptast í sextán vinnu- spjöld en hverju spjaldi fylgja tvö vinnublöð á tveimur þyngdarstigum. Vinnuspjöldunum er komið fyrir í plastvasa, vinnublöðin eru á vef til að prenta út. Efninu er ætlað að efla lestraráhuga og sjálfstæðan lestur nemenda en það má nota með þeim bókum sem kennarinn ákveður að hafa í bókakistunni hverju sinni. Félagið Uppeldi til ábyrgðar mun standa fyrir Restitution II námskeiðum dagana 13. – 16. ágúst. Námskeiðin verða bæði Akureyri og í Reykjavík. Leiðbeinandi á námskeiðunum verður Joel Shimnoji frá Kanada. Joel er stærðfræðikennari og kennir á unglingastigi, frekari upplýsingar um hann má finna á slóðinni www.realrestitution.com/. Nánari auglýsingar um námskeiðin og upplýsingar um verð og skráningu eru hér í Skólavörðunni og einnig sendar í tölvupósti til félagsmanna. Allt á fullu hjá Námsgagnastofnun Nýtt og væntanlegt efni í íslensku fyrir yngsta stig grunnskóla ������������������������������������������������������������ �������������������������������� ���������� ���������������������� Joel Shimnoji til landsins

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.