Skólavarðan - 01.06.2009, Síða 22
22
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 9. ÁRG. 2009
úTIKENNSLA OG UMHvERFISMENNT
Miðvikudaginn 1. apríl héldum við, Anna
Lena Halldórsdóttir og Ragna Gunnars-
dóttir kennarar úr Flataskóla, af stað í
spennandi ferðalag. Förinni var heitið til
Tékklands og tilgangur ferðarinnar að taka
þátt Comeniusarnámskeiði um útikennslu
og umhverfismennt.
Við sóttum um styrk fyrir námskeiðinu til
menntunaráætlunar Evrópusambandsins
– Comenius og hlutum vilyrði. Styrkurinn
dugði fyrir ferðakostnaði, námskeiðsgjöldum
og uppihaldi á námskeiðinu. Til að komast til
Tékklands flugum við til London og gistum
þar eina nótt. Fimmtudaginn 2. apríl flugum
við frá London og til höfuðborgar Tékklands,
Prag. Þar dvöldum við í tvo daga áður en
námskeiðið byrjaði. Prag er ákaflega falleg
borg með mikla sögu og menningu og það
var ánægjulegt að fá tækifæri til að skoða
borgina.
Námskeiðið sjálft hófst laugardaginn 4.
apríl og stóð til 11. apríl, eða í eina viku.
Meiri hluti námskeiðsins var haldinn í
suður Bóhemíu á uppgerðum sveitabæ sem
íþróttadeild háskólans í Prag á og rekur.
Bærinn heitir Ovcin og er ákaflega fallegur
og vel staðsettur þegar kemur að útikennslu
og umhverfismennt. Síðustu tvo dagana
dvaldi hópurinn í Prag. Auk okkar voru á
námskeiðinu átta kennarar frá Svíþjóð,
þrír frá Frakklandi og einn frá Spáni, eða
samtals fimmtán kennarar. Leiðbeinendur
voru dr. Dusan Bartunek frá háskólanum í
Prag, Britta Brügge frá háskólanum í Lin-
köping, Margit Hensler umsjónarmaður
námskeiðsins frá Svíþjóð og Petra Koppova
tékkneskur vistfræðingur. Einnig voru tékk-
neskir gestakennarar.
Á námskeiðinu var margt gert til að
tengja þátttakendur betur við útikennslu og
umhverfismennt ásamt því að gefa okkur
tækifæri til að kynnast. Meðal þess sem við
gerðum var að vinna ýmiskonar samvinnu-
verkefni í stórum og smáum hópum, fara
í ratleiki og aðra leiki, elda úti, taka þátt í
alþjóðakvöldi, syngja við varðeld, kynna
skólana okkar hvert fyrir öðru og fara í skóla-
heimsóknir.
Dagarnir okkar í Tékklandi skilja eftir
ógleymanlegar minningar og aukna faglega
og persónulega þekkingu og í ljósi þess
hvetjum við alla kennara til að kynna sér
Comenius 2 – endurmenntunarnámskeið
fyrir kennara. Allar frekari upplýsingar má
finna á comenius.is
Hjólaferð
Hluti af námskeiðinu okkar voru hjólaferðir.
Fyrsta daginn fórum við í stutta ferð undir
leiðsögn kennara á námskeiðinu. Sú ferð
var farin til að undirbúa okkur fyrir aðra
sem var lengri og undir okkar leiðsögn. Lagt
var af stað frá Ovicn að morgni 7. apríl og
var ferðinni heitið að fallegu vatni sem var í
um það bil 15 km fjarlægð. Var nemendum
skipt í tvo hópa og átti einn í hverjum hópi
að stjórna. Hugmyndin var að við skiptum
því hlutverki á milli okkar. Við fengum kort
af leiðinni og svo var lagt af stað. Þess
má geta að í báðum hópum voru kennarar
af námskeiðinu sem höfðu farið þessa leið
áður. Veðrið var stórkostlegt, glampandi sól
og tuttugu stiga hiti. Við hjóluðum áleiðis
og stoppuðum öðru hvoru til að athuga
hvort við værum ekki á réttri leið. Eftir um
COMENIUS 2 - endurmenntunarnámskeið
fyrir kennara
Anna Lena og Ragna: Helsti lærdómur okkar af námskeiðinu var að átta okkur á því af hverju við
ákváðum að fara þessa leið í kennslu, þ.e. útikennsluleiðina, en ekki að fara hina hefðbundnu leið
og nota bækur.
Lj
ós
m
yn
d
ir
f
rá
h
öf
un
d
um
Anna Lena og Ragna í Tékklandi