Skólavarðan - 01.06.2009, Síða 23
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 9. ÁRG. 2009
23
úTIKENNSLA OG UMHvERFISMENNT
einnar og hálfrar klukkustundar hjólaferð
komum við á leiðarenda þar sem okkar
beið útieldamennska og fróðleikur um þetta
fallega umhverfi sem við vorum komnar í.
Þar sem ferðin gekk svo vel ákváðum við
að halda áfram og hjóluðum að austurrísku
landamærunum. Þess má geta að enginn í
þeirri ferð hafði hjólað þessa leið áður, en
við komumst fram og til baka heil á húfi og
alsæl eftir yndislegan dag.
Ratleikur
Eftir hina frábæru hjólaferð beið okkar
skemmtilegur ratleikur. Nemendum var skipt
í fimm hópa og þess gætt að hafa þá eins
alþjóðlega og hægt var. Hver hópur fékk
umslag sem í voru alls konar myndir af
laufblöðum, krónublöðum og stönglum. Hver
þessara mynda var svo merkt með númeri
og bókstaf og átti hver hópur að fara á níu
Lj
ós
m
yn
d
ir
f
rá
N
át
tú
ru
sk
ól
a
R
ey
kj
av
ík
ur
stöðvar. Á hverri stöð voru myndir af blómum
(ekki alvöru blóm) og heiti (á tékknesku).
Við áttum að skoða þessar myndir, leggja
þær á minnið og fara svo á stöðina okkar
og endurgera blómin. Til þess notuðum við
myndirnar sem við höfðum fengið. Eins og
áður sagði var hver mynd merkt og áttum
við að færa þær upplýsingar inn á þar til gert
blað. Í lokin tók kennarinn blaðið og fór yfir
það. Gefin voru stig fyrir hvert blóm og vann
sá hópur sem hafði flest þeirra rétt. Þessi
leikur reyndi töluvert á samvinnu og minni
hvers og eins og einnig kom hann aðeins við
keppnisskapið hjá einhverjum.
Anna Lena Halldórsdóttir og Ragna
Gunnarsdóttir.
Höfundar eru kennarar í Flataskóla.
Mikill áhugi er á útiskóla og kennsluháttum
sem honum tengjast. Við fengum Helenu
Óladóttur verkefnisstjóra Náttúruskóla
Reykjavíkur til að segja lesendum í stuttu
máli frá námskeiðahaldi á vorönn.
Í vor hefur Náttúruskóli Reykjavíkur staðið
fyrir níu námskeiðum í umhverfismennt og
útikennslu. Öll hafa þau verið ákaflega vel
sótt af kennurum úr borginni og víðsvegar
að af landinu en frá og með síðustu ára-
mótum var kennurum utan Reykjavíkur
heimilt að sækja námskeiðin. Óhætt er að
segja að þeirri breytingu hafi verið vel tekið
enda fjölmargir skólar á öllu landinu farnir
að leggja áherslu á útikennslu í starfi sínu.
Fyrstu námskeið annarinnar fjölluðu um
umhverfismennt og hvernig hægt er að
vinna með umhverfismál í víðum skilningi
á hagkvæman og skemmtilegan hátt með
nemendum á öllum aldri. Þegar sól fór að
hækka á lofti tóku útikennslunámskeiðin
við. Náttúruskólinn fékk til liðs við sig
reynda útikennara sem sáu um fræðslu á
námskeiðum. Þeir opnuðu fjársjóðskistur
sínar og kynntu ýmis verkefni sem þeir hafa
notað í sinni kennslu.
Fullbókað hefur verið á námskeið Náttúru-
skólans og mikil eftirspurn er eftir fræðslu
á þessu sviði. Þeir sem einu sinni hafa sótt
námskeið á vegum skólans sækjast eftir
því að koma aftur og aftur. Fræðslan sem
slík er ekki það eina sem togar heldur það
að hitta kennara sem eru í sömu sporum,
að geta skipst á hugmyndum, verkefnum
og góðum ráðum og síðast en ekki síst að
eiga skemmtilega stund úti í náttúrunni í
borginni.
Netfang Helenu:
helena.oladottir@reykjavik.is
Því meiri tíma sem börn verja úti, því betur líður þeim
„Yndi borgarbúa af ósnertri náttúrunni á oftast rætur að rekja til reynslu þeirra í
bernsku af útilegum, veiðum og gönguferðum um fjöll og firnindi,“ sagði Þorvarður
Árnason á stofnfundi Samtaka náttúru- og útiskóla í fyrra. Útikennsla hefur marga
aukakosti: hún dregur úr streitu, bætir sjálfsmynd og eykur virðingu fyrir náttúrunni.
Dæmigerður Vesturlandabúi eyðir 90% af tíma sínum innandyra. Rannsóknir sem
vitnað var í á stofnfundinum sýna hins vegar að því meiri tíma sem börn verja úti
undir leiðsögn kennara því betur líður þeim.
Fullbókað hjá Náttúruskóla Reykjavíkur