Skólavarðan - 01.04.2003, Síða 11

Skólavarðan - 01.04.2003, Síða 11
konar lestrarvanda. Eiga þeir að sitja skælandi eða niðurbrotnir yfir prófunum sínum á grundvelli greindar? Er það jafn- rétti í skóla án aðgreiningar? Það sér hver maður að auðvitað er freist- andi fyrir yfirvöld menntamála að spara peninga með því að halda hópnum sem nýtur aðstoðar með þessum hætti í lág- marki, en menntastefna og skilgreining skólakerfisins á fyrirbærum eins dyslexíu þurfa að vera í takt. Tvöföld skilaboð frá skólayfirvöldum í þessu efni eru til þess fallin að grafa undan trúverðugleika skóla- stefnunnar meðal kennara og yfirlýstum markmiðum hennar.“ Rannveig bendir einnig á þversögn sem kemur fram í læknisfræðilegum skilgrein- ingum á dyslexíu, flokkun út frá háu greindarstigi og góðum félagslegum að- stæðum annars vegar og áherslu á líffræði- legar orsakir „sjúkdómsins“ hins vegar. Sjúkdómar af líffræðilegum orsökum fara jú ekki í manngreinarálit. Hópskimunartækið GRP 14h Það fengu margir greiningu í Lestrar- miðstöð þessi tíu ár sem hún starfaði þar. „Þær voru misítarlegar en ég taldi saman að um það bil 900 grunnskólanemendur hefðu fengið skýringu á lestrarerfiðleikum sínum þetta tímabil. Á byrjunarárum Lestr- armiðstöðvar var stærsti hópurinn sem vís- að var á aldrinum 9-12 ára. Á aldrinum 13- 16 ára virtust erfiðleikarnir nánast ekki vera til að mati skóla en hringingar for- eldra og óskir þeirra um fyrirgreiðslu bentu til annars. Hins vegar voru ekki til nein mælitæki fyrir kennara á unglinga- stigi. Það var að hluta til skýringin á þögn- inni. Svo gaus vandinn aftur upp í fram- haldsskóla,“ segir Rannveig, „en við sinnt- um um bil 200 - 300 nemendum úr fram- haldsskólum árlega með hópprófinu okkar, bæði inni í Lestrarmiðstöð og með því að fara út á land. Vissulega voru langt frá því allir með dyslexíu sem sendir voru í grein- ingu en það er líka mikilvægt að vita ef svo er ekki. Það er kosturinn við ódýrar grein- ingar eins og þær sem Lestrarmiðstöð veitti að til er svarið, nei, þú ert ekki með dyslexíu, þú getur bætt lestur þinn sjálfur með því að lesa, erfiðleikar þínir felast í að bæta námstæknina eða þú þarft að eyða meiri tíma í námið.“ Til að færa áherslu á greiningar frá fram- haldsskóla niður á unglingastig þróaði Rannveig, ásamt Ástu Lárusdóttur lestrar- ráðgjafa, próf til að leggja fyrir fjórtán ára nemendur. Til þess fengu þær tækifæri í meistaranámi og nú er svo komið að þær eru búnar að fullvinna hópprófið sem kall- að er GRP 14h og dreifing og námskeið í að vinna með þau hafin. Með því er einmitt leitað að þeim sem eiga erfitt með tæknina eða umskráningu (decoding) í lestri og stafsetningu eins og sagt er á fagmálinu. Rannveig segir þróun eintaklingsprófs sem staðlað er fyrir sama aldurshóp lokið en ekki komið á útgáfustig. „Hvenær það verður gefið út fer eftir tímanum sem ég hef til að sinna því með einhverju starfi sem ég vonandi fæ næsta vetur.“ Prófin urðu til á löngum tíma og spruttu upp úr samvinnu Lestrarmiðstöðvar og áhugasamra sérkennara víða um landið. Rannveig segir mjög mikilvægt að skólar hafi aðgang að ráðgjöf og stuðningi varð- andi greiningar og aðgang að aðilum sem fylgist vel með og afli sér þekkingar á nýj- ustu rannsóknum, enda séu skólar misvel í stakk búnir til að sinna þessum málum sjálfir. Sumir hafi velmenntaða sérkennara á sínum snærum en aðrir ekki og ljóst að ekki sitji allir skólar við sama borð. Fyrir áhugasama má benda á að Rann- veig útskýrir GRP prófin vel í grein sinni í Glæðum, 2. tbl. 2002. Hef áhyggjur af því hvernig málin eru að þróast Rannveig telur horfur því miður ekki nógu góðar í málefnum nemenda með dys- lexíu um þessar mundir. Hún óttast að ein- ungis lágu hlutfalli þeirra sem glíma við Dyslex ía 13 „Í huga mínum er þessi spurning áleitin: Eiga börn rétt á greiningu í skólanum eða á hún að vera markaðsvara og kostur fyrir vel stæða?“

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.