Skólavarðan - 01.04.2003, Blaðsíða 14

Skólavarðan - 01.04.2003, Blaðsíða 14
leiddu í ljós að hægt væri að finna krakka með slaka hljóðkerfisvitund strax á þessum aldri og þjálfa. HLJÓM-2 er hugsað þannig að leik- skólakennarar geti lagt það fyrir börn að hausti síðasta vetrar þeirra í leikskóla, eftir að kennararnir hafa sjálfir setið námskeið í KHÍ um fyrirlögn og notkun skimunar- prófsins og hvernig sé hægt að vinna með niðurstöður skimunar. Prófið er staðlað en alls lögðu 155 leikskólakennarar það fyrir 1241 barn til þess að fá viðmiðunartölur. Rannsóknin að baki HLJÓM-2 var unnin upp úr erlendum fyrirmyndum, aðallega norrænum. Hugmyndirnar að verkefnum HLJÓM-2 eru einnig flestar fengnar úr erlendum rannsóknum en taka mið af íslensku mál- og hljóðkerfi. Mikil fylgni hefur fengist milli niðurstaðna úr HLJÓM-2 og árangri barna sem hafa þreytt prófið í lestri í 1. og 2. bekk grunn- skóla. Forspárgildi þess virðist því gott. Hvað er hljóðkerfisvitund? Með hljóðkerfisvitund er átt við að barn- ið geri sér grein fyrir að tungumál hefur á- kveðið form og það skiptir ekki bara máli hvað er sagt, heldur einnig hvernig það er sagt. Barnið gerir sér grein fyrir hljóð- fræðilegri uppbyggingu talaðs orðs og fer að geta hugsað og talað um hljóðkerfi málsins. Flest börn eru komin með allvel þroskaða hljóðkerfisvitund um fjögurra ára aldur og eru farin að kunna að meta að leika sér með rím og orð. Sterk tengsl eru milli hljóðkerfisvitundar og málþroska og sýnt hefur verið fram á náið samband á milli hennar og lestrar í fjölmörgum rann- sóknum. Rannsóknir sýna einnig að hægt er að þjálfa hljóðkerfisvitund barna á leik- skólaaldri og ef slíkt er gert gengur börn- unum betur síðar að læra að lesa. Þjálfun af þessu tagi felur í sér að lestrarnámið er undirbúið hjá börnunum með því að kenna þeim að hlusta meðvitað eftir hljóðum í orðum og setningum í töluðu máli og leika sér með þau. En hversvegna er ekki byrjað enn fyrr að leggja skimunarprófið fyrir? „Hljóðkerfisvitundin er í örri þróun á fimmta aldursári,“ segir Jóhanna, „og ef byrjað er fyrr er þetta miklu ónákvæmara. Athugun Chaney frá 1992 leiddi til að mynda í ljós að flest fimm og sex ára börn geta fundið út hvort orð byrjar á sérstökum hljóðungi, eða fónemi, en einungis 14% þriggja til fjögurra ára barna.“ Þjálfunin eykur almennan þroska Í framhaldi af skimun er gert ráð fyrir að 25% slökustu nemendurnir séu skoðaðir sérstaklega og fái sérþjálfun. Notað er t.d. námsefnið Markviss málörvun og Ljáðu mér eyra, en það síðarnefnda er kynnt hér í blaðinu. Einnig eru að koma út á vegum Fræðsluskrifstofu Garðabæjar ný verkefni, Leggðu við hlustir, sem þjálfa markvissa hlustun og hljóðgreiningu. Að sögn Jó- hönnu skortir enn nokkuð á samvinnu leik- skóla og grunnskóla varðandi það að nýta upplýsingar sem geta fylgt barninu milli skólastiganna og telur að varðandi HLJÓM-2 þurfi að vinna markvisst að því að grunnskólinn nýti sér niðurstöður skimunarinnar. „Sum bæjarfélög setja HLJÓM-2 á odd- inn og þau eru flest úti á landi,“ segir Jó- hanna. „Gerð er sú krafa að leikskólakenn- arar hafi öðlast réttindi í fyrirlögn prófsins og nú þegar hefur mikill fjöldi kennara set- ið námskeiðið. Rannsókn okkar leiddi í ljós að mikill munur er á leikskólum hvað varð- ar færni barna á þessu sviði og það er tals- vert merkilegt. Sumir leikskólar hafa þannig áherslur í starfi að þær ýta beinlínis undir þróun hljóðkerfisvitundar en aðrir hafa það ekki og munurinn er ekki bara á leikskólum heldur líka á deildum og fer þá eftir starfsfólki. Þjálfun hljóðkerfisvitundar er mjög mikilvæg,“ segir Jóhanna að lok- um, „enda er sterkt samband á milli hennar og málþroska og þaðan yfir í almennan heildarþroska barnsins.“ keg Ljáðu mér eyra, undirbúningur fyrir lestur Ljáðu mér eyra, undirbúningur fyrir lestur er ný kennslubók fyrir börn. Hún byggist á spennandi og aðgengilegum verkefnum sem þjálfa hljóðkerfisvitund og stuðla þannig að aukinni lestrarfærni. Rannsóknir um allan heim sýna fram á að með því að þjálfa hljóð- kerfisvitund er hægt að bæta lestr- arfærni. Með hljóðkerfisvitund er átt við þann hæfileika að geta hugsað og talað um hljóð- kerfi málsins. Börn verða að vita að málið hefur ákveðið form sem kallast setningar, orð og hljóð. Hljóðin eiga sér síðan fyrir- mynd sem heita stafir. Undir hljóðkerfis- vitund falla eftirfarandi þættir: a) Sundur- greining á setningum í orð, atkvæði og hljóð. Dæmi: Teldu orðin í setningunni ,,María rennir sér.“ Teldu atkvæðin í orð- Dyslex ía 16 „Þjálfun hljóðkerfisvitundar er mjög mikilvæg,“ segir Jóhanna Einarsdóttir sem hér er ásamt Ingibjörgu Símonardóttur og Amallu Björnsdóttur. HLJÓM-2 er hugsað þannig að leikskólakennarar geti lagt það fyrir börn að hausti síð- asta vetrar þeirra í leikskóla, eftir að kennararnir hafa sjálf- ir setið námskeið í KHÍ um fyr- irlögn og notkun skimunar- prófsins og hvernig sé hægt að vinna með niðurstöður skimunar.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.