Skólavarðan - 01.04.2003, Blaðsíða 25

Skólavarðan - 01.04.2003, Blaðsíða 25
Maður veður söguna upp að hnjám við hvert fótmál. Þarna bjó Baudelaire, þarna Hugo, þarna Balzac, þarna Marie-Curie og þarna dó Rabelais. Þarna stóð Bastillan illræmda, þarna voru Marie Antoinette og Loðvík XVI hálshöggvin, þarna voru höfuðstöðvar nazista og þarna.... Stefnumótið við nútímann er ekki síður spennandi. Snæða kvöldverð við hliðina á Jane Birkin á Bofinger, dreypa á expresso andspænis BHL á Les Editeurs, njóta sólar á bekk á Place des Voges við liðina á Jacques Lang, standa fyrir aftan Bernadette Chirac í biðröð á pósthúsinu. Rekast á Kristin Sigmundsson, Brynju Ben, Vigdísi Gríms og Steinunni Sigurðar á göngu um boulevarða og torg. París er drottning allra borga. En drottningin á sér skuggahliðar. Heimilislaust fólk röltir um borgina með aleiguna í inn- kaupakerru og sefur úti und- ir berum himni, jafnvel í vetrargaddi. Í kuldakastinu í janúar dóu a.m.k. níu úti- gangsmenn, frusu í hel uppi við húsvegg undir jakkadulu. Betlarar á öllum aldri af báð- um kynjum ráfa um með útrétta hönd og tóman maga. Það er óþolandi að horfa upp á þetta allsleysi í hjarta allsnægtanna. Lífs- baráttan er erfiðari en tárum taki fyrir stóran hóp fólks í borg borganna. Atvinnuleysi er of mikið og félagsleg vandamál eru sívaxandi, einkum í úthverfum. Þessi vandamál speglast skýrt í skólunum. Kennarar eru keng- uppgefnir við að reyna að halda úti kennslu í sumum skólum á félagslega viðkvæmum svæðum. Þeir eru lagðir í einelti af nemend- um, þeim er hótað - jafnvel lífláti - skemmdarverk eru unnin á eig- um þeirra og sumir hverjir verða fyrir alvarlegum líkamsmeiðing- um. Um daginn réðst einn nemandi á kennara sinn og stakk hann með hnífi í lærið, inni í skólastofu í miðri kennslustund! Í kjölfarið fóru kennarar skólans í verkfall til að mótmæla vaxandi ofbeldi. Öll kennsla lá niðri í tæpan mánuð. Á skömmum tíma lamaðist öll starfsemi í tveim öðrum skólum vegna ofbeldis nemenda í garð kennara. Sívaxandi fjöldi nemenda í sumum úthverfum borgarinn- ar hefur ekkert félagslegt atlæti utan veggja skólans. Fjölskyldur, oftar en ekki innflytjendur, hokra í einu hrörlegu herbergi, engin atvinna, stundum algjört málleysi. Börnin, sem eru á skólaaldri, eiga bágt með að skilja tilganginn með skólagöngu, njóta hvorki atlætis né stuðnings heima fyrir, eru rótlaus, áttavillt og uppi- vöðslusöm í skólanum. Sum lenda í þeirri óhamingju að ráðast á kennarann sem er „að bögga“ þau - jafnvel með vopnum. En það eru ekki eingöngu félagsleg eymd, fátækt, út- skúfun og vonleysi sem speglast í frönskum skóla- stofum í úthverfum Parísar. Í allt of mörgum frönskum skólastofum víða um land speglast líka átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Gyð- ingahatur er farið að stinga upp kollinum á nýjan leik. Sögukennari í menntaskóla nokkrum sem ætlaði að sýna nemendum sínum mynd um helförina varð að hætta við sýninguna vegna kröftugra mótmæla nemenda. Þeir sögðust vera orðnir hund- leiðir á stöðugu stagli um áþján og útrýmingu Gyð- inga í seinni heimsstyrjöld- inni. Nær væri að ræða um áþján og útrýmingu Palest- ínumanna hér og nú! Franskir kennarar eru sannarlega ekki öfundsverðir, a.m.k. ekki þeir sem starfa í viðkvæmum úthverfum stórborganna. Félagsleg vansæld, ofbeldi og margmenningarlegir suðupottar er veruleikinn sem við þeim blasir og þeir þurfa að takast á við í dag- legu starfi sínu. Ekki er óalgengt að nýútskrifaðir kennarar brotni saman og gefist upp strax á fyrstu önninni. Jafnvel gamlir jaxlar og harðir naglar gefast líka upp á ástandinu og fara annaðhvort í veik- indaorlof eða á eftirlaun um fimmtugt. Franska skólakerfið hefur ætíð notið mikillar virðingar og þótt eitt hið besta í Evrópu; metnaðarfullt, kröfuhart og strangt. Það hefur getið af sér mikla hugsuði og snjalla listamenn. Þessir tiltölu- lega nýlegu brestir í kerfinu valda skiljanlega miklum áhyggjum bæði meðal kennara og annarra þegna. Skólamál eru vinsælt um- fjöllunarefni í öllum fjölmiðlum og í janúar var meira að segja haldin ráðstefna í hátíðarsal Sorbonne háskóla um námsleiða. Þar voru haldin lærð erindi um efnið og ekki laust við að áheyrendur misstu höku ofan í bringu. Jórunn Tómasdóttir, í námsorlofi í Sorbonne, París. Smiðshöggið 30 Douce France....eða hvað? Kennarar eru kenguppgefnir við að reyna að halda úti kennslu í sumum skólum á félagslega viðkvæmum svæðum. Þeir eru lagðir í einelti af nemendum, þeim er hótað - jafnvel lífláti - skemmdarverk eru unnin á eigum þeirra og sumir hverjir verða fyrir alvarlegum líkams- meiðingum.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.