Kauphöllin

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Kauphöllin - 01.12.1932, Qupperneq 5

Kauphöllin - 01.12.1932, Qupperneq 5
KAUPHÖLLIN 5 J ólasaga. Það var farið að halla degi á hin- um vetrarlegu strætum í stórborg einni, er maður nokkur, á að gizka 35 ára að aldri, kom út úr einni af hin- um mörgu veðlánabúðum. Hann var dapur í bragði og var svo að sjá, sem honum væri kalt, enda hafði hann enga yfirhöfn, heldur var aðeins klæddur þunnum sumarfatnaði, og skýldi hann höndunum í vösum sínum. Föt hans báru ljósan vott um fá- * tækt og skort, þótt þau væru hvorki rifin né bætt; en andlitið var þýðlegt og gáfulegt og mátti sjá, að maður þessi mundi hafa átt betri daga. Það voru fáir dagar til jóla. Búð- argluggamir voru venju fremur full- ir af skrautgripum og varningi. List og iðnaður kepptu hvorfc við annað í margskonar tilbúningi fyrir hátíð- ina, sem í hönd fór. Gerhard Kostlín gleymdi kuldan- um, þar sem hann gekk og virti fyrir sér hina skrautlegu búðarglugga. Þar mátti sjá ýmiskonar fögur leikföng, glæsilegar myndabækur og aðra eigu- lega hluti; en kona hans og börn biðu hans heima, og í huganum setti hann þau í spor hinna hamingjusömu kvenna og barna, er áttu að fá slík- ar gjafir af jólatrjánum sínum. — Hann var svo niðursokkinn í þessar hugsanir, að hann virtist gleyma sjálf- um sér með öllu. Allt í einu nam hann staðar frammi fyrir gluggunum á stórri bankabyggingu. Haiin gat ekki bælt niður andvarp, er hann leit hina mörgú seðla og ýmislegar pen- ingamyntir frá nálega hverri þjóð, og allar hinar mörgu körfur, fullar af skínandi gulli og silfri. Fyrir lítið eitt af þessu gulli hefði hann getað keypt það í hinum öðrum búðum, er hann svo feginn hefði viljað velja handa konu sinni og börnum; og eigi hefði hann þurft nema einn af þessum dýru pappírum, til þess að halda úlfinum frá dvrum sínum um langan tíma. Meðan Kostlín var að horfa á bankaseðlana og peningana, gekk maður nokkur, klæddur dýrindis loð- kápu, fram og aftur mjög órólega um stéttina á bak við hann. Oft sýndist hann ætla að ganga inn í bankann, en hætti jafnan við það. Loksins gekk hann að glugganum, þar sem Kostlín stóð, virti hann stundarkorn fyrir sér og mælti siðan: ,,Herra minn, munduð þér vilja gjöra mér greiða?“ Hið kynlega atferli hins ókennda manns vakti Kostlín úr leiðslu sinni, og hann svaraði blátt áfram: „Hvað sem í mfnu valdi stendur, skal eg gjarnan gjöra fyrir yður“. Hinn ó- kenndi maður benti honum frá glugg- anum og vék honum lítið eitt til hlið- ar. Síðan tók hann upp hjá sér dá- lítinn böggul, er hann vafði nákvæm- lega innan í pappír, og sagði við Kostlín: „Viljið þér gjöra svo vel að afhenda herra Barret þennan böggul fyrir mig?“ „Hvað! Eg að afhenda bankastjór- anum þetta?“ „Já“. „Hví farið þér eigi sjálfur með það?“ spurði Kostlín, því að honum þótti bón ókunna mannsins mjög svo undarleg. „Því valda ástæður, sem eg get eigi skýrt yður frá hér“, svaraði hinn skjótlega. „Jæja þá, eg skal gjöra það“, sagði Kostlín eftir litla umhugsun. „Eg þakka yður kærlega“, svaraði ókunni maðurinn og rétti Kostlín böggulinn; „en eg bið yður að fá hann í hendur bankastjóranum sjálf- um, eg veit, að hann er á skrifstofu sinni; þiggið þetta fyrir ómak yðar“; með þessum orðum rétti hann Kostlín einn dollar. Kostlín hikaði við, og ætlaði ekki að taka ivið peningnum. Það var í fyrsta skipti á æfinni, að honum var boðin þesskonar gjöf. „Það hryggir mig mjög, ef þér vilj- ið ekki taka við þessu lítilræði“, sagði maðurinn; „þér eigið ef til vill böim heima, og þér getið keypt eitthvað smávegis handa þeim í jólagjöf fyrir mig“. Kostlín var einmitt nýbúinn að fai'a með giftingarhring sinn og konu sinn- ar til veðlánara; annað átti hann ekki eftir til að veðsetja. Kona hans hafði gjört sér von um, að veðlánarinn mundi lána að minnsta kosti 6 doll- ara gegn þeim; en hann hafði reynt í ýmsum búðum og ekki getað fengið nema 5 dollara. Dollarinn frá ókunna manninum fullgjörði einmitt upphæð- ina, sem konan hans bjóst við. Var það þá rétt gjört af honum, að taka ekki við honum? Nei, vissulega ekki. Kostlín stakk dollarnum í vasa sinn, þakkaði ókunna manninum og gekk inn í bankann. Þar var hverfc herbergi inn af öðru, og allar dyr opnar. Kostlín fór nú að komast að raun um, að verk það, er hann hafði tekizt á hendur, var enginn hægðar- leikur. Fyrst var hann spurður næsta ó- þýðlega, hvað hann vildi, og þegar hann lét þá ósk sína í ljósi að fá að tala við Barrett bankastjóra sjálfan, þótti honum sem allir skrifararnir litu með fyrirlitningu á hin fátæklegu föt hans. Einn kom með þá mótbáru, að bankastjórinn hefði svo mikið að starfa; annar sagði, að hann væri orð- inn dauðleiður á beiningamönnum. „Eg er enginn beiningamaður“, sagði Kostlín. „Eg var beðinn að af- henda bankastjóranum sjálfum þenn- an böggul, og eg skal ekki tefja hann meira en eitt augnablik." Framkoma Kostlíns og hinn hrein- skilnislegi, karlmannlegi málrómujj hans hafði æskileg áhrif. Hann gekk í gegnum öll herbergin inn í innsta herbergið. Það var óþægileg ganga fyrir hann, fram hjá öllum skrifborð- unum og forvitnisaugum skrifaranna. Hann varð var við margt háðbrosið, þá er hann var á leiðinni inn í innstu skrifstofuna, þar sem eigi fengu aðr- ir að koma en hinir mestu atkvæða- menn. Margir horfðu fyrirlitlega á hin snjáðu sumarföt hans. Menn þessir vissu ekki, að þeir voru að hlæja að manni, sem fyrir skömmu hafði haft heiðarlega stöðu í vel þekktu verzlun- arhúsi. Að lokum stóð hann á þykkri, mjúkri gólfábreiðu, í herbergi með konunglegum húsbúnaði; og sat þar bankastjórinn við skrautlegt skrif- borð, og var niðursokkinn í að lesa sendibréf og hraðskeyti. Kostlín beið þess, að hann Iiti upp; og loks er hann leit upp, rétti hann böggulinn hinum aldraða manni og sagði: „Mér var falið á hendur að afhenda yður sjálf- ■ 1 Vjela- og verkfæraverslun Einar O. Malmberg. Vesturgötu 2. Símar: 1820-2186-2986. Símnefni Malm. Alls konar efni og verkfæri fyrir tré og járnsmiði. H ugsanir yðar eru vegna erfiðra tima, bundnar við að gera sem bezt kaup á vörum, sem þér þurfið að nota. — Vér bjóðum yður eftirfarandi gæðakaup: Góð tegund af ensku Reyktóbaki i dósum: V* lbs. áður kr. 3.20, nú 2.40. 7s Ibs. áður kr. 1.60, nú 1.20. „Bristol” Bankastræti 6. Sími 4335. NOTIÐ AÐEINS ÞAÐ BEZTA

x

Kauphöllin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kauphöllin
https://timarit.is/publication/1198

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.