Kauphöllin - 01.12.1932, Qupperneq 19
KAUPHÖLLIN
19
augnalok barnsins voru hálf opin, og- sá
i hálfs sjáaldrið; augun brostin, glampa-
laus, stirðnuð. Hryllilegt hugboð greip
Lucien; hann lagði munn sinn fast að
munni litlu stúlkunnar; engan andar-'
drátt að finna.
Meðan Lucien var að vinna sér inn
fé í spilum með gulldalnum sem hann
hafði stolið frá þessum munaðarleys-
ingja, hafði barnið orðið úti, dáið úr
kulda!
Ógurleg angist tók fyrir kverkar
Lucien, hann ætlaði að reka upp óp . . .
og við það vaknaði hann af mörunni,
á klúbb-bekknum þar sem hann hafði
sofnað rétt fyrir miðnætti, en þegar
þjónninn fór út síðastur allra undir
klukkan fimm um morguninn, hafði
hann látið hann í friði, af brjóstgæð-
um við hann, féleysingjann.
Glýjaður desembermánaðar morgun-
roðinn varpaði fölum bjarma á glugga-
rúðurnar. Lucien gekk út, veðsetti úrið
sitt, tók sér laugar, át dagverð, og hélt
til nýliða-skrifstofu til þess að rita sig á
sjálfboða-skrá í fyrstu hersveit afrík-
anskra veiðiliða.
Nú er Lucien de Hem orðinn lautin-
ant; hann hefir aðeins kaup sitt til að
lifa af, en það nægir honum, með því
að’hann er mjög reglusamur maður og
tekur aldrei á spilum. Hann virðist
jafnvel enn hafa ráð á að leggja upp
fé; því að á dögunum gekk einn félagi
hans í Alzír í humátt á eftir honum inn
í bratta götu, sem liggur upp að stjórn-
arhöllinni, og sá hann gefa ölmusu lítilli
spænskri stúlku, er svaf þar undir porti;
hann var svo hnýsinn að skoða hvað
Lucien hefði gefið þessari förumey.
Maðurinn varð steinhissá á örlæti laut-
inantsins fátæka.
Lucien de Hem hafði lagt gulldal í
hönd litlu stúlkunnar.
Heð IBgnm er bannað
að selja snjðrllU useð meir en 5°|0 af smjðri
— en þrátt fyrir það býðst yðar ná
með 101 ai besta r|émabússm|ðrl.
Til jðlanna kaapa alíar bnsmæðnr
bjóhabAsshjörlíkib.
Kaupbætismiði með Rjómabússmjörlíkinu. — Rjómabús-
smjörlíkið inniheldur 5% af besta rjómabússmjöri, en til
jóla afhendum vjer ennfremur y2 pund af fyrsta flokks
rjómabússmjöri gegn hverjum tíu kaupbætismiðum, sem
því fylgja. Á þennan hátt fáið þjer 5% af smjöri í smjör-
líkinu og önnur 5% með því.
íslenðingar!
Látið árið
marka spor í viðskiptum vðar við
EIMSKIP