Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild - 01.12.1891, Page 113
111
yfirskriptinni: Fasteignir sem kaupstaðurinn hefur keypt og eignast, og síðan hefur á
skýrslum þaðan verið haldið sjerstökum dálk með þessari yfirskript. En við sjálfa yfir-
skriptina er það að athuga, aö tæpast er rjett að tilfæra keyptar eignir í tekjum, heldur
á sá liður heima í útgjöldunum það árið, sem eignirnar eru keyptar. Að svo rniklu leyti
sem hjer er átt við gefnar eignir má telja þær með tekjum ársins, þó því að eins að
þær sje gefnar á reikningsárinu.
Yfir höfuð er lítið byggjandi á framan prentuðum skýrslum um efnahag sveitar-
sjóðanna, nema með mestu varkárni, því reikningsfærslan í hreppuuum virðist vera svo
ósamkvæm og öfug. það er vfst ekkert ofhermi að skýrslurnar gefi að eins óljósa hug-
mynd um hvað tekjur og gjöld hreppanna hafa verið hvert einstakt ár í raun og veru,
og um efnahaginn gefa þær sáralitlar upplýsingar.
Sem sýnishorn af hvernig reikningsfærslu í sumum hreppum er varið skal hjer
tilfærð skýrsla um tekjur og gjöld tveggja hreppa árin 1886—89, og er annar þeirra á
Austurlandi en hinn á Suðurlandi.
Vopnafjarðarhreppur
Tekjur
Eptirstöðvar frá f. á. Óvissar tekjur Allar aðrar tekjur Samtals
kr. kr. kr. kr.
1885—86 615 15166 3056 18827
1886—87 808 16495 3125 20428
1887—88 600 22509 3031 26140
1888—89 600 22159 4367 27159
Samtals 2623 76352 13579 92554
Óviss gjöld Útgjöld
Öll önnur gjöld Eptirstöðvar til n. á. Samtals
kr. kr. kr. kr.
1885—86 16185 1834 808 18827
1886—87 17620 2207 600 20427
1887—88 23407 2134 600 26141
1888—89 24706 1852 600 27158
Samtals 81918 8027 2608 92553
Vatnsleysustrandarhreppur
Tekjur
1885— 86 1886— 87 1887— 88 1888— 89 Eptirstöðvar frá f. á. kr. > » 5866 4150 Óvissar tekjur kr. 12143 11835 12936 15998 Allar aðrar tekjur kr. 3267 2992 3733 5365 Samtals kr. 16010 14827 22535 22513
Samtals 10016 53512 15357 78885