Ljóðormur - 01.12.1990, Side 9

Ljóðormur - 01.12.1990, Side 9
Sigfus Daðason 7 Og þykjast að sönnu þekkja allra átta skil. Hitta óvörum í tvísýnur treysta þá ekki ratvísi sinni tortryggja kunnuglega spegilmynd sína og ber af leið langt út fyrir sjálfselskumiðið. Festa um sinn sjónir við óvissubólstra áræða ekki að hnýsast um annað farsumar né hirða framar að hlusta eftir hreinu bergmáli. En hljóta að leggja háa brú milli meginlanda handa þeim lofðungum sem ráða stórum ráðum og hafa einsett sér að taka loks duglega í taumana. * * * En farfugla-félagslegur maður þá athugull og ófreskur peningaskyggn prúður einn og margur með ekkisinn sakleysingjasvip og á sér ekki ills von að hagstæðum hofferðum loknum: hann er þegar byrjaður að telja tölur fyrir æðri sjónum nokkuðsvo voldugs ráðherra sem siglir óðfara undan mikla sigling á margföldunartöflunni stóru hróðugur alsæll og ábyrgðarfullur á útlíðandi morgni.

x

Ljóðormur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.