Ljóðormur - 01.12.1990, Side 61
59
Höfiindar og þýðendur:
Arnór Hannibalsson, f. 1934. Prófessor í heimspeki við
Háskóla íslands.
Axel Pedersen, danskt skáld, f. 1952. Sjá kynningu með
ljóðum hans.
Ágústína Jónsdóttir, f. 1950. Hefur áður birt ljóð í
tímaritum.
Bárður Jónsson, f. 1953- Hefiir áður birt ljóð í tímaritum.
Birgitta Jónsdóttir, f. 1S>67. Fyrsta ljóðabók hennar,
Frostdinglar, kom út 1989.
Elísabet Jökulsdóttir, f. 1958. Fyrsta ljóðabók hennar, Dans
í lokuðu herbergi, kom út 1989.
Gunnhildur Sigurjónsdóttir, f. 191$. Hefúr ekki birt ljóð
áður.
Hjörtur Pálsson, f. 1941. Hefur gefið út ljóðabækur og er
kunnur þýðandi.
Jón Egill Bergþórsson, f. 1960. Hefúr gefið út tvær
ljóðabækur. Dagskrárgerðarmaður hjá Sjónvarpinu.
Jón firá Pálmholti, f. 1930. Út hafa komið eftir hann margar
ljóðabækur auk sagnaskáldskapar.
Jónas Þorbjarnarson, f. 1960. Fyrsta ljóðabók hans, I jaðri
bæjarins, kom út 1989- Ljóð eftir hann hafa áður birst í
Ljóðormi.
Kavafls, Konstantínos, 1863-1933. Eitt helsta ljóðskáld
Grikkja á þessari öld. Hann fæddist í Alexandríu í
Egyptalandi og ól þar næstum allan sinn aldur. Mörg
bestu kvæði hans fjalla um söguleg efhi, ekki þó um
stóratburði, heldur um smáatvik sem lýsa þó vel hvötum
manna og hegðun.
Milosz, Czeslaw, er Lithái en móðurmál hans er pólska.
Hann fæddist árið 1911 í Litháen og ólst upp í Vilnius.
Eftir 1940 hefur hann búið í Póllandi, Frakklandi en
lengst af í Bandaríkjunum. Hann fékk Nóbelsverðlaunin í
bókmenntum 1980.
Ottó Másson, f. 1965. Bókavörður í Reykjavík.
Sigfús Daðason, f. 1928, Fjórar ljóðabækur hafa komið út
frá hendi Sigfúsar, hin nýjasta 1987.
Steinunn Ásmundsdóttir, f. 1966. Fyrsta ljóðabók
Steinunnar, Einleikur á regnboga, kom út 1989.
Valgerður Benediktsdóttir, f. 1965. Bókmenntafræðingur.
Vilhjálmur Bergsson, f. 1937. Kunnur listmálari, búsettur í
Þýskalandi. Sjá nánari kynningu á skáldskap hans bls. 13.
Þorsteinn Þorsteinsson, f. 1938. Þýðandi og
menntaskólakennari.
Þóra Elfa Björnsson, f. 1939- Frumort ljóð eftir Þóru hafa
birst í 7. og 9- hefti Ljóðorms.
Þuríður Kristjánsdóttir, f. 1927. Doktor í uppeldisfræði,
fyrtv. prófessor við Kennaraháskóla íslands.