Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.10.2016, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 05.10.2016, Qupperneq 28
Eins og þegar við upplifum ást eða ástarsorg þá skilur hún eitthvað eftir sig þó við sjáum það ekki endilega. Ljóðin hjálpa okkur að staldra við og líta til baka, þannig að þau geta geymt margt.” Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir Skýjafar er fyrsta ljóðabók Jónu Kristjönu Hólmgeirsdóttur og kemur hún út á morgun en hún er hluti af seríu Meðgönguljóða, bókaflokki Partusar sem helgaður er nýjabruminu í íslenskri ljóðlist. Í bókinni er samansafn ljóða sem Jóna Kristjana hefur ort á síðustu tveimur til þremur árum en hún byrjaði að vinna að henni í janú- ar í fyrra. „Þá safnaði ég saman því sem ég hafði verið að gera áður og bætti við nýju efni. Bók- inni er ritstýrt af Sigurlín Bjarn- eyju Gísladóttur og það var ótrú- lega gott fyrirkomulag. Það mynd- aðist mikið traust á milli okkar, hún kenndi mér margt og þetta var lærdómsríkt ferli. Þetta er í fyrsta skipti sem ég gef út ljóðabók þann- ig að ég vissi ekki út í hvað ég var að fara,“ lýsir Jóna Kristjana. Ljóðin geyma margt Ljóðin í Skýjafari eru þrettán í heildina og segir skáldið að þegar upp er staðið myndi þau eins konar ferðalag. „Ef ég ætti að lýsa ein- hverju heildarþema bókarinnar, þá er þetta ferðalag innra með mér en ég vil að hver túlki það á sinn hátt. Ég lít á þetta sem ákveðið uppgjör við tímabil í mínu lífi og þá má líta á að það hefjist á einum tíma- punkti og ljúki síðan á öðrum. Það má líka segja að þetta séu brot úr lífinu sem safnast saman og þegar upp er staðið mynda þau kannski eina heild og sýna ferðalag.“ Titill bókarinnar vísar einn- ig til þess að sögn Jónu Kristjönu. „Ský eru alltaf á hreyfingu fyrir ofan okkur en þau skilja líka eftir eitthvað sem er jafnvel ósýnilegt. Eins og þegar við upplifum ást eða ástar sorg, þá skilur hún eitthvað eftir sig þó við sjáum það ekki endilega. Ljóðin hjálpa okkur að staldra við og líta til baka, þann- ig að þau geta geymt margt,“ segir hún íbyggin. innbLásin af náttúrunni Jóna Kristjana segist hafa skrif- að mikið síðan hún byrjaði að lesa sem var mjög snemma. „Ég var algjör bókaormur þegar ég var lítil og fannst gaman að ljóðum sérstaklega. Ég byrjaði að gera rím ljóð þegar ég var barn og gat dundað mér við það heilu dagana. Þegar ég var unglingur uppgötvaði ég atóm ljóð og fór að gera þannig ljóð. Í bókinni sem ég gef út núna eru einmitt bara atómljóð en það er það sem ég hef mest verið að fást við að undanförnu en ég skrifa annars alls konar texta.“ Innblástur að ljóðunum og text- unum sækir Jóna Kristjana mikið til náttúrunnar. „Ég er mjög tengd náttúrunni en líka borginni, ég er mjög hrifin af Reykjavík og hún gefur mér mikinn innblástur. Einnig fólkið í kringum mann og allar tilfinningar sem maður upp- lifir, vinir og vinamissir, ást og ástarsorg.“ Langar að prófa prósa Jóna Kristjana er í BA-námi í ís- lensku og ritlist sem hún stefnir á að klára og langar svo að sækja um í framhaldsnámi í ritlist. „Ég er líka að reyna að halda áfram að skrifa fyrir sjálfa mig og mig lang- ar að prófa að breyta um form. Í öllum ljóðunum í þessari bók ein- beiti ég mér mikið að því að meitla tungumálið og tálga það þannig að það verði tært. Mig langar að sleppa fram af mér beislinu og gera meira af prósatextum og sjá til hvernig það gengur, hver veit nema það verði önnur bók úr því,“ segir Jóna Kristjana og brosir. Útgáfu Skýjafars verður fagn- að annað kvöld í Mengi klukkan átta en þar verður líka fagnað út- komu tveggja annarra ljóðabóka í seríu Meðgönguljóða, Vertu heima á þriðjudag, eftir Berg Ebba Bene- diktsson, og Hamingjan leit við og beit mig, eftir Elínu Eddu Þor- steinsdóttur. Það kostar tvö þús- und krónur inn en með greidd- um aðgangseyri fylgir ljóðabók að eigin vali. staLdrað við í Ljóðinu Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir hefur skrifað alls kyns texta frá því hún var barn. Á morgun kemur út hennar fyrsta ljóðabók, Skýjafar. Ljóðin í henni mynda nokkurs konar ferðalag en skáldið vill að hver og einn túlki ljóðin á sinn hátt. Fyrsta ljóðabók Jónu Kristjönu, Skýjafar, kemur út á morgun. MYND/GVA • Innleiðing lögreglu á áhættumati fyrir ofbeldi í nánum samböndum Guðrún Sesselja Baldursdóttir, embætti ríkislögreglustjóra • Panelumræða um ólíka nálgun við íhlutun vegna heimilisofbeldis Fulltrúar frá barnaverndarnefndum, lögreglu, Barnaverndarstofu og Barnahúsi • Kynning á stuttmyndinni Tölum um ofbeldi Sigþrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins • The Quality of Silence Matthew McVarish, leikari, leikskáld og aðgerðasinni Sýning á mynd Matthew McVarish To Kill a Kelpie á RIFF kl. 18:00 í Bíó Paradís. Frítt fyrir ráðstefnugesti meðan húsrúm leyfir ÖryGGi Barna ný huGSun - ný nálGun Barnaverndarþing 2016 Dagskrá: • Setning þingsins Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson • Ávarp Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu • Risk assessment and management for families living with domestic violence – state of the art nicky Stanley, prófessor í félagsráðgjöf og stjórnandi The Connect Centre for international research on interpersonal Violence and harm í háskólanum í Central lancashire • Children living with domestic violence in the UK Making early help work? lorraine radford, rannsóknarprófessor í félagsráðgjöf og félagslegri stefnumótun og stjórnandi The Connect Centre for international research on interpersonal Violence and harm í háskólanum í Central lancashire Nána r i upplýs inga r og sk rán ing á www.bvs . i s Föstudaginn 7. október 2016 í Gullteig á Grand hótel kl 8:00 – 17:00 5 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r4 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X X ∙ k y n n I n G A r b l A Ð V I Ð b U r Ð I r 0 5 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A D 0 -1 5 A 4 1 A D 0 -1 4 6 8 1 A D 0 -1 3 2 C 1 A D 0 -1 1 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.