Fréttablaðið - 05.10.2016, Blaðsíða 46
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
5. október
Tónlist
Hvað? Lifandi tónlist
Hvenær? 22.00
Hvar? Nóra Magasín
Reynir Snær spilar þægilega og
skemmtilega djasstónlist fyrir
bjórþyrsta og svanga gesti. Síðustu
þrjú miðvikudagskvöld hafa
íslenskir tónlistarmenn komið
fram á Nóra Magasín og hefur
myndast afar notaleg stemning á
staðnum. Það eru allir velkomnir.
Hvað? Minningartónleikar, Hádegistón-
leikar „Þeir sem lutu í lægra haldi fyrir
krabbameini“
Hvenær? 12.10
Hvar? Bústaðakirkja
Í hádeginu í dag verða haldnir tón-
leikar í Bústaðakirkju í minningu
þeirra sem töpuðu stríðinu við
krabbameinið. Yfirskrift tónleik-
anna er „Þeir sem lutu í lægra haldi
fyrir krabbameini“. Á tónleikunum
mun Jóhann Friðgeir Valdimars-
son tenór og Jónas Þórir, kantor
kirkjunnar, flytja fjölbreytta tón-
list er kallast trúarleg eða „sacred
aries“. Á meðal söngperla sem
fluttar verða má nefna Ave Maria
(Bach/Gonoud), Pieta Signore,
Agnus dei, Næturljóð og Faðir
vor, ásamt fleiri lögum. Enginn
aðgangseyrir er á tónleikana. Allir
velkomnir.
Hvað? Flutningalandið Ísland
Hvenær? 09.00
Hvar? Harpa
Hver er framtíð Íslands sem tengi-
punkts milli Norður-Ameríku og
Evrópu? Hvernig verður atvinnu-
svæðið Reykjavík árið 2040?
Hvaða áhrif hefur ný tækni á flutn-
inga til og frá Íslandi til framtíðar?
Þessum og fleiri spurningum
verður leitast við að svara á árlegu
viðskiptaráðstefnunni Flutninga-
landið Ísland, sem er vettvangur
þeirra sem starfa í flutningum og
samgöngum og atvinnugreinum
í innflutningi og útflutningi hér
á landi. Á ráðstefnunni, sem nú
er haldin í þriðja sinn, eru leiddir
saman leiðtogar, stjórnendur og
aðrir sérfræðingar til að ræða,
fræðast um og móta þá framtíð
sem blasir við í íslensku atvinnulífi
með tilliti til flutninga og innviða
þeirra.
Hvað? Blikktromman – Úlfur Úlfur
Hvenær? 20.00
Hvar? Harpa
Blikktromman býður velkomna
eina vinsælustu hljómsveit lands-
ins og gest októbermánaðar, Úlf
Úlf. Hljómsveitin Úlfur Úlfur er
rappdúett sem hefur starfað síðan
2011. Meðlimir hljómsveitarinnar
hafa mikla reynslu af fjölbreyttum
tónlistarstefnum og skilar það
sér í einstakri nálgun að rapptón-
list. Innblásturinn er lífið sjálft,
íslenskur veruleiki, óraunveruleiki
og allt þar á milli.
Hvað? Magnús & Sölvi
Hvenær? 21.00
Hvar? Mengi
Sölvi Kolbeinsson var
nýverið kosinn bjartasta
vonin í flokki djass-
og spunatónlistar á
Íslensku tónlistarverð-
laununum og hefur
vakið verðskuldaða
athygli fyrir einstakt
músíkalítet. Magnús er
einn af öflugustu tón-
listarmönnum íslenskrar
spunatónlistarsenu, hann
er einn af meðlimum kvart-
ettsins ADHD, er í hljóm-
sveitunum Moses Hightower,
amiinu og Kippa kanínusi og
hefur spilað með fjölda annarra
hljómsveita.
Hvað? Bubbi með kassagítarinn – Örtúr
Hvenær? 20.30
Hvar? Hveragerðiskirkja
Í byrjun október ætlar Bubbi að
mæta með kassagítarinn á fjóra
staði og spila nýtt efni ásamt eldra
efni í bland. Það er langt síðan
Bubbi hefur verið á ferðinni með
kassagítarinn en af tilefni af því
að hann er sextugur á árinu þá er
ýmislegt á döfinni og er þessi örtúr
hluti af því.
Uppákomur
Hvað? Lífsstílskaffi | Nýtum og njótum
Hvenær? 20.00
Hvar? Borgarbókasafnið Gerðubergi
Talið er að þriðjungur þess matar
sem framleiddur er í heiminum
endi í ruslinu. Með því að draga úr
matarsóun spörum við peninga
og orku og hættum að vinna gegn
náttúrunni. Við Íslendingar erum
ekkert öðruvísi en aðrar þjóðir
og sóum miklum fjármunum
með því að henda mat – sem er
fullkomlega ætur – beint í ruslið.
Flestir væru sennilega til í að
nýta peningana sína í eitthvað
skemmtilegra. Rakel Garðarsdóttir
las grein í dagblaði fyrir nokkrum
árum um það hversu miklum mat
er sóað í heiminum. Í kjölfarið fór
hún að leita sér upplýsinga um
matarsóun og varð sjokkeruð yfir
afleiðingum þess að henda öllum
þessum mat. Rakel var sannfærð
um að vitundarvakning væri það
sem þyrfti til og stofnaði í kjölfarið
Vakandi. Vakandi eru samtök sem
vilja vekja athygli á málefninu og
benda á að við berum öll ábyrgð.
Að saman getum við gert heiminn
betri.
Hvað? Improv Ísland
Hvenær? 20.00
Hvar? Þjóðleikhúsið
Á síðasta leikári var fullt á nær
allar spunasýningar Improv Ísland
í Þjóðleikhúskjallaranum og stór
hluti áhorfenda kom aftur og aftur
enda leiðist engum að hlæja!
Hvað? Kjallara-djass
Hvenær? 21.00
Hvar? Stúdentakjallarinn
Kvöldin eru með frjálslegu ívafi og
allir sem vilja syngja, dansa eða
spila á hljóðfæri eru velkomnir og
hvattir til að stíga fram í sviðsljósið
og taka þátt. Píanó, harmonikka
og gítar á staðnum.
Fundir
Hvað? Málstofa 2017.is, Siðaskiptaára-
tugirnir 1551-1571
Hvenær? 15.30
Hvar? Háskóli Íslands, stofa 229 í aðal-
byggingu
Hjalti Hugason, prófessor í kirkju-
sögu, kynnir rannsóknir sínar á
framgangi siðaskiptanna — eink-
um á Norðurlandi, á tímabili sem
afmarkast af aftöku Jóns Arasonar
og vígslu Guðbrands Þorlákssonar
Hólabiskups. Allir velkomnir.
Hvað? Uppbrot – Fyrirlestur Listfræða-
félags Íslands í Safnahúsinu
Hvenær? 12.00
Hvar? Safnahúsið á Hverfisgötu
Uppbrot, fyrirlestur Dorothée
Kirch, verður fluttur í Safnahús-
inu við Hverfisgötu í dag. Í fyrir-
lestrinum ræðir Dorothée tilurð
og forsendur sýningar sinnar í
Ásmundarsafni þar sem verk Elín-
ar Hansdóttur eru sett í samhengi
verka Ásmundar Sveinssonar.
Í dag verða haldnir tónleikar í Bústaðakirkju í minningu þeirra sem töpuðu stríðinu
við krabbamein. Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór og Jónas Þórir, kantor
kirkjunnar, flytja fjölbreytta tónlist.
Borgarbókasafnið Gerðubergi býður
upp á Lífsstílskaffi, Nýtum og njótum,
Rakel Garðarsdóttir ræðir við gesti
um matarsóun. FRéttaBLaðið/VaLLi
ÁLFABAKKA
DEEPWATER HORIZON KL. 5:40 - 8 - 10:20
DEEPWATER HORIZON VIP KL. 5:40 - 8 - 10:20
STORKAR ÍSLTAL KL. 6
STORKS ENSKT TAL KL. 8 - 10:20
SULLY KL. 5:50 - 8 - 10:10
MECHANIC: RESURRECTION KL. 8 - 10:20
WAR DOGS KL. 8 - 10:30
SUICIDE SQUAD 2D KL. 5:20
LEYNILÍF GÆLUDÝRA ÍSLTAL 2D KL. 6
KEFLAVÍK
DEEPWATER HORIZON KL. 8 - 10:40
THE MAGNIFICENT SEVEN KL. 10:20
BRIDGET JONES’S BABY KL. 8
AKUREYRI
DEEPWATER HORIZON KL. 8 - 10:20
STORKAR ÍSLTAL KL. 6
STORKS ENSKT TAL KL. 6
SKIPTRACE KL. 10:20
SULLY KL. 8
DEEPWATER HORIZON KL. 8 - 10:40
STORKAR ÍSLTAL KL. 5:50
BRIDGET JONES’S BABY KL. 5:20 - 8 - 10:20
SULLY KL. 6:50 - 9
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
EGILSHÖLL
DEEPWATER HORIZON KL. 5:30 - 8 - 10:30
STORKAR ÍSLTAL KL. 5:30
SKIPTRACE KL. 8 - 10:10
SULLY KL. 5:50 - 8 - 10:20
WAR DOGS KL. 10:20
PETE’S DRAGON KL. 5:30
Nýjasta stórmynd Clint Eastwood
VARIETY
SEATTLE TIMES
CHICAGO SUN-TIMES
HOLLYWOOD REPORTER
Geggjuð
grín-spennumynd
ROGEREBERT.COM
EMPIRE
ENTERTAINMENT WEEKLY
EMPIRE
THE GUARDIAN
HOLLYWOOD REPORTER
HOLLYWOOD REPORTER
THE WRAP
Ein magnaðasta stórmynd ársins
Sýnd með íslensku
og ensku tali
Sýningartímar á eMiði.is, miði.is og smarabio.is
COSI FAN TUTTI
17. október í Háskólabíói
- HS, MORGUNBLAÐIÐ
- GUARDIAN
„FYNDIN OG HEILLANDI“
- GUARDIAN
- ROTTENTOMATOES
87%
KVIKMYND EFTIR
TIM BURTON
VÆNTANLEG
21. OKT
MAGNIFICENT 7 7:20, 10
FRÖKEN PEREGRINE 5:20
BRIDGET JONES’S BABY 5:20, 8
EIÐURINN 9, 10:30
STORKAR 2D ÍSL.TAL 5:20
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
5
DAGAR EFTIR
riff.is
5 . o k T ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r26 M e n n I n G ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
0
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
D
0
-2
4
7
4
1
A
D
0
-2
3
3
8
1
A
D
0
-2
1
F
C
1
A
D
0
-2
0
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K