Fréttablaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðuroktóber 2016næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    2526272829301
    2345678
    9101112131415
    16171819202122
    23242526272829
    303112345

Fréttablaðið - 05.10.2016, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 05.10.2016, Blaðsíða 24
Stærstu stjórnmálaflokkar landsins telja að efna-hagslegur stöðugleiki, fjölbreyttur orkuiðnaður í sátt við umhverfi, og menntun og nýsköpun séu mikilvægustu áherslumálin er varða atvinnulífið. Þetta kom fram á fundi Samtaka iðnaðarins í gær. Samtökin hafa lagt fram sex mál- efni sem skipta atvinnulífið og þar með fólkið í landinu miklu máli. Skiptar skoðanir voru um fram- tíð krónunnar, hvort myntráð, upptaka evru eða önnur tól í pen- ingastefnu væru lausnin. Jóna Sólveig Elínardóttir, fulltrúi Við- reisnar, talaði fyrir myntráði og sagði að mikilvægt væri að hugsa ekki um lausn hverju sinni heldur líta til stöðugleika til lengri tíma. Össur Skarphéðinsson benti þá á að skýrsla Seðlabankans væri búin að afgreiða myntráð sem ekki besta kostinn, enda væri hann of áhættumikill. Langtímamarkmiðið í stöðugleika væri að taka upp evru Smári McCarthy taldi ákjósanlegt að notast við fastgengisstefnu til að ná því markmiði. Pólitísk samstaða var að mestu um að lækka tryggingargjald, en svo voru skiptar skoðanir um auð- lindagjald á fundinum. Fulltrúar allra flokkanna, utan Sjálfstæðis- flokksins, sögðust vilja að þjóðin kjósi um áframhaldandi viðræður um inngöngu í Evrópusambandið Teitur Björn Einarsson, fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins sagði þó þjóðarat- kvæðagreiðslu um hvort við göng- um inn eða ekki vera mjög álitlega. Forystufólkið var sammála um nauðsyn á innviðauppbyggingu, hins vegar voru skiptar skoðanir um fjármögnun hennar, hvort fjár- magna ætti uppbyggingu úr ríkis- kassanum, með einkaframkvæmd eða blandaðri leið. Markaðurinn hefur tekið saman helstu skoðanir flokkanna á mál- efnunum sem tekin voru fyrir á fundinum, sem og sex málefni Sam- taka iðnaðarins. saeunn@frettabladid.is Vilja kjósa um ESB Fulltrúar sjö stærstu stjórnmálaflokka landsins, utan Sjálfstæðisflokksins, vilja að þjóðin kjósi um áframhaldandi viðræður um inngöngu í Evrópusambandið. Forystufólk úr sjö stærstu stjórnmálaflokkum landsins tók þátt í pallborði um áherslumál sín í atvinnulífinu á fundi Samtaka iðnaðarins í gær. Fréttablaðið/GVa Sæunn Gísladóttir saeunn@frettabladid.is Sex málefni sem skipta atvinnulífið máli samkvæmt SI 1. Efnahagslegur stöðugleiki l Rekstur fyrirtækja og heimila þrífst best við stöðugleika í verð­ lagi og gengi. 2. Húsnæði l Frá árinu 2009 hefur fjöldi full­ gerðra íbúða verið langt undir þörfum markaðarins. Skortur er á ýmsum tegundum húsnæðis. 3. Menntun l Menntun og þekking fólks á öllum sviðum er forsenda aukinnar framleiðni, velferðar og verðmætasköpunar. 4. Samgöngur og innviðir l Þrátt fyrir myndarlegan hagvöxt síðustu ára er fjárfesting í landinu enn of lítil. Innviðafjárfestingar styðja við alla aðra uppbyggingu. 5. Orka og umhverfi l Fyrirtæki eru í lykilstöðu til að bæta nýtingu auðlinda og minnka sóun. Með því að styrkja uppbyggingu fyrirtækja á þessu sviði má leggja stoðir undir sterka atvinnugrein sem fylgir grænni tækni. 6. Nýsköpun l Drifkraftur verðmætasköpunar og gjaldeyrisöflunar fyrir land og þjóð. Nýsköpun styrkir alla framþróun og því er mikilvægt að unnið sé stöðugt að fjölbreyttri nýsköpun í öllum atvinnu­ greinum. Lilja Alfreðsdóttir, Framsóknarflokki Áherslumál af sex málum Si: Efnahagslegur stöðug­ leiki og aukin áhersla á nýsköpun. Framtíð krónunnar: Vantar umboð þjóðar­ innar áður en farið er að skoða aðild að Evrópusam­ bandinu og upptöku evru. Ísland í ESb: Við erum til í þjóðar­ atkvæði um hvort við göngum inn í Evrópusambandið. Skattar og fyrirtæki: Lækka trygg­ ingargjaldið, einfalda regluverk og skapa nýja hvata. innviðauppbygging: Þörf á að gera betur í innviðauppbyggingu og vera með langtímasýn, þarf að klára að ljósleiðaravæða allt landið og setja meira í vegakerfið. Fjármagn til uppbyggingar innviða: Blönduð fjármögnun, til dæmis með samstarfi við lífeyrissjóði og önnur lönd. Smári McCarthy, Pírötum Áherslumál af sex málum Si: Menntun og efnahagslegur stöðugleiki. leið að efnahagslegum stöðugleika: Einbeita okkur að því að flytja út verðmætari varning. Búa til alvöru plön um að laga sam­ keppnishæfni okkar og krónuna. Framtíð krónunnar: Eina peninga­ stefnan sem hefur skilað okkur hagvexti er fastgengisstefna. Lausnin er eins og hjá Króatíu að hafa laus­ bindingu við aðra gjaldmiðla. Ísland í ESb: Til í þjóðaratkvæði um áframhaldandi viðræður. Skattar og fyrirtæki: Eðlilegt gjald sé tekið af orku og auðlindum, laga gallana í skattkerfinu, uppræta svindl, stöðva kennitöluflakk, þunna eigin­ fjármögnun. innviðauppbygging: Þarf að byggja upp innviðina í landinu, samgöngur, ferðamannastaði, rafmagn og ljós­ leiðarasamband. Fjármagn til innviðauppbyggingar: Grunnþjónusta hjá hinu opinbera, uppbygging ferðamannastaða má vera í höndum einkaaðila. Við erum búin að sjá núna gríðarlegan vöxt í útflutningi á hugverkaiðnaði. Þetta er ekki tak- mörkuð auðlind, þetta er sá iðnaður sem við viljum sjá börnin okkar vinna í í framtíðinni og við eigum að hlúa að honum. Verðbólgu- viðmiðin í dag eru ekki að virka nógu vel. Ég held að lausnin eigi að vera eins og hjá Króatíu, að hafa lausbindingu við aðra gjaldmiðla. 5 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r6 marKaðurinn 0 5 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A D 0 -3 D 2 4 1 A D 0 -3 B E 8 1 A D 0 -3 A A C 1 A D 0 -3 9 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað: 235. tölublað (05.10.2016)
https://timarit.is/issue/390102

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

235. tölublað (05.10.2016)

Aðgerðir: