Fréttablaðið

Dagfesting
  • fyrri mánaðurinoktober 2016næsti mánaðurin
    mifrlesu
    262728293012
    3456789
    10111213141516
    17181920212223
    24252627282930
    31123456

Fréttablaðið - 05.10.2016, Síða 46

Fréttablaðið - 05.10.2016, Síða 46
Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur hvar@frettabladid.is 5. október Tónlist Hvað? Lifandi tónlist Hvenær? 22.00 Hvar? Nóra Magasín Reynir Snær spilar þægilega og skemmtilega djasstónlist fyrir bjórþyrsta og svanga gesti. Síðustu þrjú miðvikudagskvöld hafa íslenskir tónlistarmenn komið fram á Nóra Magasín og hefur myndast afar notaleg stemning á staðnum. Það eru allir velkomnir. Hvað? Minningartónleikar, Hádegistón- leikar „Þeir sem lutu í lægra haldi fyrir krabbameini“ Hvenær? 12.10 Hvar? Bústaðakirkja Í hádeginu í dag verða haldnir tón- leikar í Bústaðakirkju í minningu þeirra sem töpuðu stríðinu við krabbameinið. Yfirskrift tónleik- anna er „Þeir sem lutu í lægra haldi fyrir krabbameini“. Á tónleikunum mun Jóhann Friðgeir Valdimars- son tenór og Jónas Þórir, kantor kirkjunnar, flytja fjölbreytta tón- list er kallast trúarleg eða „sacred aries“. Á meðal söngperla sem fluttar verða má nefna Ave Maria (Bach/Gonoud), Pieta Signore, Agnus dei, Næturljóð og Faðir vor, ásamt fleiri lögum. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana. Allir velkomnir. Hvað? Flutningalandið Ísland Hvenær? 09.00 Hvar? Harpa Hver er framtíð Íslands sem tengi- punkts milli Norður-Ameríku og Evrópu? Hvernig verður atvinnu- svæðið Reykjavík árið 2040? Hvaða áhrif hefur ný tækni á flutn- inga til og frá Íslandi til framtíðar? Þessum og fleiri spurningum verður leitast við að svara á árlegu viðskiptaráðstefnunni Flutninga- landið Ísland, sem er vettvangur þeirra sem starfa í flutningum og samgöngum og atvinnugreinum í innflutningi og útflutningi hér á landi. Á ráðstefnunni, sem nú er haldin í þriðja sinn, eru leiddir saman leiðtogar, stjórnendur og aðrir sérfræðingar til að ræða, fræðast um og móta þá framtíð sem blasir við í íslensku atvinnulífi með tilliti til flutninga og innviða þeirra. Hvað? Blikktromman – Úlfur Úlfur Hvenær? 20.00 Hvar? Harpa Blikktromman býður velkomna eina vinsælustu hljómsveit lands- ins og gest októbermánaðar, Úlf Úlf. Hljómsveitin Úlfur Úlfur er rappdúett sem hefur starfað síðan 2011. Meðlimir hljómsveitarinnar hafa mikla reynslu af fjölbreyttum tónlistarstefnum og skilar það sér í einstakri nálgun að rapptón- list. Innblásturinn er lífið sjálft, íslenskur veruleiki, óraunveruleiki og allt þar á milli. Hvað? Magnús & Sölvi Hvenær? 21.00 Hvar? Mengi Sölvi Kolbeinsson var nýverið kosinn bjartasta vonin í flokki djass- og spunatónlistar á Íslensku tónlistarverð- laununum og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir einstakt músíkalítet. Magnús er einn af öflugustu tón- listarmönnum íslenskrar spunatónlistarsenu, hann er einn af meðlimum kvart- ettsins ADHD, er í hljóm- sveitunum Moses Hightower, amiinu og Kippa kanínusi og hefur spilað með fjölda annarra hljómsveita. Hvað? Bubbi með kassagítarinn – Örtúr Hvenær? 20.30 Hvar? Hveragerðiskirkja Í byrjun október ætlar Bubbi að mæta með kassagítarinn á fjóra staði og spila nýtt efni ásamt eldra efni í bland. Það er langt síðan Bubbi hefur verið á ferðinni með kassagítarinn en af tilefni af því að hann er sextugur á árinu þá er ýmislegt á döfinni og er þessi örtúr hluti af því. Uppákomur Hvað? Lífsstílskaffi | Nýtum og njótum Hvenær? 20.00 Hvar? Borgarbókasafnið Gerðubergi Talið er að þriðjungur þess matar sem framleiddur er í heiminum endi í ruslinu. Með því að draga úr matarsóun spörum við peninga og orku og hættum að vinna gegn náttúrunni. Við Íslendingar erum ekkert öðruvísi en aðrar þjóðir og sóum miklum fjármunum með því að henda mat – sem er fullkomlega ætur – beint í ruslið. Flestir væru sennilega til í að nýta peningana sína í eitthvað skemmtilegra. Rakel Garðarsdóttir las grein í dagblaði fyrir nokkrum árum um það hversu miklum mat er sóað í heiminum. Í kjölfarið fór hún að leita sér upplýsinga um matarsóun og varð sjokkeruð yfir afleiðingum þess að henda öllum þessum mat. Rakel var sannfærð um að vitundarvakning væri það sem þyrfti til og stofnaði í kjölfarið Vakandi. Vakandi eru samtök sem vilja vekja athygli á málefninu og benda á að við berum öll ábyrgð. Að saman getum við gert heiminn betri. Hvað? Improv Ísland Hvenær? 20.00 Hvar? Þjóðleikhúsið Á síðasta leikári var fullt á nær allar spunasýningar Improv Ísland í Þjóðleikhúskjallaranum og stór hluti áhorfenda kom aftur og aftur enda leiðist engum að hlæja! Hvað? Kjallara-djass Hvenær? 21.00 Hvar? Stúdentakjallarinn Kvöldin eru með frjálslegu ívafi og allir sem vilja syngja, dansa eða spila á hljóðfæri eru velkomnir og hvattir til að stíga fram í sviðsljósið og taka þátt. Píanó, harmonikka og gítar á staðnum. Fundir Hvað? Málstofa 2017.is, Siðaskiptaára- tugirnir 1551-1571 Hvenær? 15.30 Hvar? Háskóli Íslands, stofa 229 í aðal- byggingu Hjalti Hugason, prófessor í kirkju- sögu, kynnir rannsóknir sínar á framgangi siðaskiptanna — eink- um á Norðurlandi, á tímabili sem afmarkast af aftöku Jóns Arasonar og vígslu Guðbrands Þorlákssonar Hólabiskups. Allir velkomnir. Hvað? Uppbrot – Fyrirlestur Listfræða- félags Íslands í Safnahúsinu Hvenær? 12.00 Hvar? Safnahúsið á Hverfisgötu Uppbrot, fyrirlestur Dorothée Kirch, verður fluttur í Safnahús- inu við Hverfisgötu í dag. Í fyrir- lestrinum ræðir Dorothée tilurð og forsendur sýningar sinnar í Ásmundarsafni þar sem verk Elín- ar Hansdóttur eru sett í samhengi verka Ásmundar Sveinssonar. Í dag verða haldnir tónleikar í Bústaðakirkju í minningu þeirra sem töpuðu stríðinu við krabbamein. Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór og Jónas Þórir, kantor kirkjunnar, flytja fjölbreytta tónlist. Borgarbókasafnið Gerðubergi býður upp á Lífsstílskaffi, Nýtum og njótum, Rakel Garðarsdóttir ræðir við gesti um matarsóun. FRéttaBLaðið/VaLLi ÁLFABAKKA DEEPWATER HORIZON KL. 5:40 - 8 - 10:20 DEEPWATER HORIZON VIP KL. 5:40 - 8 - 10:20 STORKAR ÍSLTAL KL. 6 STORKS ENSKT TAL KL. 8 - 10:20 SULLY KL. 5:50 - 8 - 10:10 MECHANIC: RESURRECTION KL. 8 - 10:20 WAR DOGS KL. 8 - 10:30 SUICIDE SQUAD 2D KL. 5:20 LEYNILÍF GÆLUDÝRA ÍSLTAL 2D KL. 6 KEFLAVÍK DEEPWATER HORIZON KL. 8 - 10:40 THE MAGNIFICENT SEVEN KL. 10:20 BRIDGET JONES’S BABY KL. 8 AKUREYRI DEEPWATER HORIZON KL. 8 - 10:20 STORKAR ÍSLTAL KL. 6 STORKS ENSKT TAL KL. 6 SKIPTRACE KL. 10:20 SULLY KL. 8 DEEPWATER HORIZON KL. 8 - 10:40 STORKAR ÍSLTAL KL. 5:50 BRIDGET JONES’S BABY KL. 5:20 - 8 - 10:20 SULLY KL. 6:50 - 9 KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI EGILSHÖLL DEEPWATER HORIZON KL. 5:30 - 8 - 10:30 STORKAR ÍSLTAL KL. 5:30 SKIPTRACE KL. 8 - 10:10 SULLY KL. 5:50 - 8 - 10:20 WAR DOGS KL. 10:20 PETE’S DRAGON KL. 5:30 Nýjasta stórmynd Clint Eastwood VARIETY  SEATTLE TIMES  CHICAGO SUN-TIMES  HOLLYWOOD REPORTER  Geggjuð grín-spennumynd ROGEREBERT.COM  EMPIRE  ENTERTAINMENT WEEKLY  EMPIRE  THE GUARDIAN  HOLLYWOOD REPORTER  HOLLYWOOD REPORTER  THE WRAP  Ein magnaðasta stórmynd ársins Sýnd með íslensku og ensku tali Sýningartímar á eMiði.is, miði.is og smarabio.is COSI FAN TUTTI 17. október í Háskólabíói - HS, MORGUNBLAÐIÐ - GUARDIAN „FYNDIN OG HEILLANDI“ - GUARDIAN - ROTTENTOMATOES 87% KVIKMYND EFTIR TIM BURTON VÆNTANLEG 21. OKT MAGNIFICENT 7 7:20, 10 FRÖKEN PEREGRINE 5:20 BRIDGET JONES’S BABY 5:20, 8 EIÐURINN 9, 10:30 STORKAR 2D ÍSL.TAL 5:20 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar 5 DAGAR EFTIR riff.is 5 . o k T ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r26 M e n n I n G ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð 0 5 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A D 0 -2 4 7 4 1 A D 0 -2 3 3 8 1 A D 0 -2 1 F C 1 A D 0 -2 0 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Værktype:
Samling:
Gegnir:
ISSN:
1670-3871
Sprog:
Årgange:
23
Eksemplarer:
7021
Udgivet:
2001-2023
Tilgængelig indtil :
31.03.2023
Udgivelsessted:
Nøgleord:
Beskrivelse:
Dagblað
Sponsor:

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar: 235. tölublað (05.10.2016)
https://timarit.is/issue/390102

Link til denne side: 46
https://timarit.is/page/6722759

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

235. tölublað (05.10.2016)

Gongd: