Fréttablaðið - 25.10.2016, Qupperneq 4
18
Farandskáld
Hann átti það ætíð víst
ef hann settist um kyrrt
og hugði sig hólpinn
að fjarskinn mikli
færðist ögrandi
nær,
og nísti hann síðast.
Það deyfði sviðann að dvelja
sífellt skemur
í sama stað,
halda sem oftast
heiman að
og vera gestur sem víðast.
18
Farandskáld
Hann átti það ætíð víst
ef hann settist um kyrrt
og hugði sig hólpinn
að fjarskinn mikli
færðist ögrandi
nær,
og nísti hann síðast.
Það deyfði sviðann að dvelja
sífellt skemur
í sama stað,
halda sem oftast
heiman að
og vera gestur sem víðast.
vika 41 ljóð
Samfélag Ólga er innan lögregl-
unnar á Norðurlandi vestra vegna
yfirstjórnar hennar á svæðinu.
Starfsandinn er í molum og sam-
skipti stjórnenda lögreglunnar
við almenna lögreglumenn eru
óásættan leg. Hafa starfandi lögreglu-
menn brugðið á það ráð að senda
lögreglustjóranum bréf sem hann
hefur ekki svarað.
Á fundi félags lögreglumanna á
Norðvesturlandi í upphafi mánaðar-
ins var ákveðið að senda bréfið og
krefjast úrbóta þar sem starfsandi
vegna stjórnunarhátta við embættið
væru í ólestri. Bréfið má sjá hér til
hliðar.
Var óskað eftir því að lögreglustjór-
inn, Páll Björnsson, myndi svara bréf-
inu efnislega og koma með tillögur
að úrbótum fyrir 25. október. Ekkert
bólaði á svarinu í gær.
Mikil umræða hefur verið um lög-
gæslumál á Norðvesturlandi þar sem
fáir eru á vakt enda svæðið stórt og
víðfeðmt. Í sumar, þegar bifreið fór
í sjóinn á Hvammstanga með þeim
afleiðingum að maður drukknaði, tók
það lögregluna tvær klukkustundir
að koma á staðinn. Nú eru lögreglu-
menn úr umdæminu á námskeiði
í Reykjavík og á meðan er undir-
mannað á vöktum á svæðinu. Einn
lögreglumaður er á Sauðárkróki og
annar á vakt á Blönduósi.
Stefán Vagn Stefánsson, yfirlög-
regluþjónn á Sauðárkróki og for-
maður bæjarráðs Skagafjarðar, vék
af fundi þegar umræða um stjórnun
embættisins fór fram. „Ég vék af fundi
til þess að menn gætu rætt þetta opin-
skátt. Ég er yfirlögregluþjónn á svæð-
inu og því þótti mér réttara að víkja af
fundi,“ segir Stefán Vagn.
Undir bréfið sem sent var Páli,
skrifuðu þeir Vilhjálmur Stefánsson
og Pétur Björnsson sem er formaður
lögreglufélagsins á Norðvesturlandi.
Pétur vildi ekki tjá sig við Fréttablaðið
vegna bréfsins. Hann taldi eðlilegt að
ræða það fyrst við lögreglustjórann á
svæðinu áður en það yrði rætt í fjöl-
miðlum.
Ekki náðist í Pál Björnsson lög-
reglustjóra þar sem hann er í fríi
erlendis. sveinn@frettabladid.is
Starfsandinn er í molum hjá
lögreglunni á Norðvesturlandi
Lögreglumenn hafa sent lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra bréf þar sem þeir óska eftir úrbótum.
Starfsandi í molum og samskipti stjórnenda við lögreglumenn óásættanleg að þeirra mati.
Bréfið í
heild
Félagsfundur-
inn haldinn
þann 6.10. 2016
sendir lögreglu-
stjóra eftir-
farandi erindi:
„Eins og lögreglustjóra er kunnugt um er starfsandi
vegna stjórnunarhátta við embættið í miklum ólestri
og því óskum við eftir því að lögreglustjóri bregðist
við því sem allra fyrst. Fundurinn hefur áhyggjur af
því að félagsmenn séu farnir að leita sér að öðrum
störfum. Óskum við eftir tillögum að úrlausnum sem
allra fyrst og í síðasta lagi fyrir 25. október næst-
komandi,“
kveðja
F.h. félagsfundar
Vilhjálmur Stefánsson, gjaldkeri LNV
Pétur Björnsson, formaður LNV
Sjávarútvegur Samtök fiskfram-
leiðenda og útflytjenda (SFÚ) fagna
fullyrðingu Heiðrúnar Lindar Mar-
teinsdóttur, framkvæmdastjóra
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
(SFS), um að skiptaverð fisks í bein-
um viðskiptum eigi að vera sam-
bærilegt við fiskmarkaðsverð vegna
reikniformúlu skiptaverðsins.
Ummælin lét hún falla í viðtali við
Fréttablaðið í gær.
Í fréttatilkynningu sinni segist
SFÚ fagna nýjum upplýsingum.
„Þær gefa tilefni til að álykta að
engin fyrirstaða geti lengur staðið
í vegi þess að gengið verði að hug-
myndum SFÚ og kröfum sjómanna
um að eitt fiskverð skuli gilda um
öll viðskipti með fisk í landinu.“ Þá
segir enn fremur að slík breyting
myndi höggva á hnútinn í kjara-
deilu sjómanna og skapa íslenskum
neytendum réttlátara verð á fiski.
Fréttablaðið greindi frá því í síð-
ustu viku að talsverður munur væri
á skiptaverði í beinum viðskiptum
og á markaðsverði. – þea
SFÚ fagnar
fullyrðingu SFS
Samfélag „Með því að hringja
kirkjuklukkunum erum við að vekja
athygli á ástandinu í Aleppo í Sýr-
landi,“ segir Agnes M. Sigurðardótt-
ir, biskup Íslands, en kirkjuklukkur
landsins munu hringja í þrjár mín-
útur klukkan 17.00 á hverjum degi
í heila viku. Agnes segir söfnuði
landsins hafa sýnt átakinu mikla
velvild.
„Mér rann blóðið til skyldunnar,
það er ekki hægt að vita af svona
hryllingi án þess að aðhafast. Við
viljum vekja fólk til umhugsunar
um að þarna er fólk að þjást og
okkur er ekki sama um það,“ segir
Agnes. Hún segir að kristnu fólki
beri skylda til að sýna fórnarlömb-
unum í Aleppo samhug.
Ákveðið var að hefja átakið í dag
vegna þess að dagur Sameinuðu
þjóðanna er í dag og ljúka því þann
31. október, á siðbótardaginn. Átak-
ið hófst í Finnlandi þann 12. október
þegar Teemu Laajaselo, sóknar-
prestur Kallio-kirkjunnar í Helsinki,
ákvað að hringja kirkjuklukkum til
að minnast hinna látnu í Aleppo.
Það vakti mikla athygli og er áætl-
að að rúmlega 500 kirkjur taki þátt
í átakinu í dag. Þar á meðal kirkjur
allra Norðurlandanna, Bandaríkj-
anna, Kanada, Ástralíu og Suður-
Afríku. – þh
Kirkjuklukkur klingja klukkan fimm fyrir Aleppo
Klukkurnar í Hallgrímskirkju munu óma til að vekja athygli á ástandinu í Aleppo.
Bandaríkin Hillary Clinton, for-
setaframbjóðandi Demókrata í
Bandaríkjunum, braut kosningalög
með því að hafa samráð við sjálf-
stæð samtök um það hvernig sam-
tökin skyldu haga sér í kosninga-
baráttu fyrir Clinton. Þetta fullyrðir
blaðamaðurinn James O’Keefe sem
hefur undanfarnar vikur birt mynd-
bönd af starfsmönnum samtakanna
Democracy Partners sem tekin voru
með falinni myndavél.
Í myndbandi sem birtist í gær sést
framkvæmdastjóri Democracy
Partners segja að Clinton hafi beðið
samtökin um að mæta á kosninga-
fundi Donalds Trump, frambjóð-
anda Repúblikana, í Andrésar andar
(e. Donald Duck) búningum og deila
þannig á Trump.
O’Keefe hefur verið sakaður um
að klippa myndbönd sín til að sýna
viðfangsefnið í óhagstæðu ljósi en
neitað sök. Hann segir myndbandið
sanna lögbrot Clinton en ólöglegt er
fyrir frambjóðanda að hafa samráð
við slík óháð samtök um kosninga-
baráttu. – þea
Segir Hillary
Clinton brjóta
kosningalög
Töluverð umræða hefur verið um löggæslu á Norðvesturlandi eftir slys á Hvammstanga í sumar. FréTTAblAðið/GVA
Hillary Clinton er sem stendur líklegri
til að hafa betur. FréTTAblAðið/EPA
2 5 . o k t ó B e r 2 0 1 6 Þ r i Ð j u d a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
C
-D
E
2
C
1
B
0
C
-D
C
F
0
1
B
0
C
-D
B
B
4
1
B
0
C
-D
A
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K