Fréttablaðið - 25.10.2016, Síða 13
Virk samkeppni á markaði skiptir máli. Fyrir almenning á þetta ekki síst við um vör
urnar í matarkörfunni. Matarkarfan
er stór hluti af lífi okkar allra, bæði
hvað varðar útgjöld og hversdags
hamingju.
En samkeppnin fær ekki að
blómstra í matarkörfunni. Við
búum við fákeppni á mjólkurmark
aði og neytandinn hefur ekki alltaf
val um hvert hann vill beina við
skiptum sínum. Minni fyrirtækin
eiga í vök að verjast í baráttunni við
risann. Úrval af öðrum landbún
aðarvörum í verslunum gæti sömu
leiðis auðveldlega verið meira.
Gegn viðskiptafrelsi
Innflutningur á landbúnaðarvörum
hefur verið háður kvótum sem seld
ir hafa verið á háu verði á uppboði.
Þessar leikreglur hafa tryggt að sam
keppni frá erlendum vörum er ekki
raunveruleg. Stefnan í landbún
aðarmálum er að sumu leyti eins og
refsistefna gegn almenningi, sem
býr við hærra matarverð og skert
vöruúrval vegna þessarar stefnu.
Landbúnaðurinn virðist í öllu falli
vera erfiðasta vígi frjálsræðisins.
Erlendis geta neytendur valið
úr alls konar mjólk frá alls konar
framleiðendum. Hér er oftast búið
að velja framleiðandann fyrir mann.
Og þótt það sé gleðilegt að íslenskir
framleiðendur framleiði íslenskt
salami og íslenskan fetaost ættu
íslenskir neytendur að geta valið
um ítalskar og grískar útgáfur þess
ara vara án þess að vera refsað sér
staklega fyrir.
Búvörusamningarnir sem Bjarni
Benediktsson og Sigurður Ingi
Jóhannsson undirrituðu fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar eru búvöru
samningar hinna glötuðu tækifæra.
Úreltu kerfi framleiðslustyrkja er
viðhaldið. Krónutölutollar á ýmsar
mjólkurvörur sem höfðu staðið
óbreyttir í stað í nokkurn tíma eru
hækkaðir tvöfalt, í því felst skýr yfir
lýsing um að tollverndin á þessar
vörur sé ekki að fara neitt. Verðlags
þróun hafði lækkað þessa múra tals
vert en þá er bara hlaðið aftur ofan
á þá. Loks er ríkissjóður skuldbund
inn áratug fram í tímann. Neytend
ur búa áfram við sömu fákeppnina
og sama skerta vöruúrvalið.
Gegn nýsköpun
Við í Viðreisn viljum viðskipta
frelsi og nýsköpun í landbúnaði.
Athafnafrelsi og nýsköpun á að fá
að njóta sín í landbúnaði eins og á
öðrum sviðum. Það á að ýta undir
nýsköpun en ekki draga úr henni
eins og búvörusamningar ríkis
stjórnarinnar gera. Stuðningur við
bændur á að stuðla að því að land
búnaðurinn fái frelsi til að dafna.
Það ætti að greiða bændum sem
rækta jörð beint í stað þess að tengja
greiðslurnar við tiltekna tegund
búskapar. Síðan myndu menn bara
rækta og framleiða það sem borgar
sig mest. Íslenskur landbúnaður
er fyllilega samkeppnishæfur og
getur vel blómstrað fái hann tæki
færi til þess. Þá eru miklir mögu
leikar fólgnir í því að einfalda reglur
varðandi sölu beint til neytenda og
skapa þannig grundvöll fyrir ferða
þjónustutengda landbúnaðarfram
leiðslu.
Tregða ríkisstjórnarinnar við
kerfisbreytingar í landbúnaði undir
strikar vel þá staðreynd að ríkis
stjórnin gætir ekki almannahags
muna. Á vettvangi stjórnmálanna
virðist auðveldara að ná í gegn með
hugmyndina um afglæpavæðingu
fíkniefna en að ætla að leyfa meiri
innflutning á erlendum ostum. Það
segir ákveðna sögu af pólitískum
veruleika landbúnaðarins að það er
líklegra að núverandi ríkisstjórn geti
samþykkt að afglæpavæða fíkniefni
en að samþykkja frekari innflutning
á osti.
Markmið hverrar þjóðar hlýtur að vera það að landsmenn séu það bjart
sýnir á framtíð sína, að þeir hlakki
til að stuðla að áframhaldandi
fjölgun hennar. Við þurfum fólk,
hamingjusamt fólk sem treystir því
að ákvörðunin um að eignast barn
verði gæfurík. Til þess að ná þessu
markmiði hafa þjóðir heimsins
farið mjög mismunandi leiðir. Allt
frá því að gera næstum ekki neitt
eins og víða í Bandaríkjunum og til
þess að senda öllum nýbökuðum
foreldrum byrjunarpakka með
helstu nauðsynjum til að styðja við
bakið á þeim eins og í Finnlandi.
Sumar hafa engan virðisaukaskatt
á bleyjum og barnamat og margar
hafa komist að þeirri niðurstöðu að
fæðingarorlof sé mikilvægur réttur
og stuðningur sem skilar sér til baka
á fleiri vegu en einn. Í raun og veru
stuðningur við hagsæld þjóðarinnar
sjálfrar.
Nú er svo komið fyrir okkur
Íslendingum, sem þó stöndum
mörgum framar í þessum efnum, að
fæðingartíðni er að lækka og feður
eru ekki að taka fæðingar orlof til
jafns við mæður. Þar tapa allir.
Feður verða af hugsanlega mestu
gæðastundum sem lífið getur gefið
okkur, ungbörn njóta ekki nálægðar
föður síns og mæður skerða mögu
leika sína á vinnumarkaði. Og í
þokkabót skerðast möguleikar allra
kvenna á vinnumarkaðnum. Þetta
viljum við laga.
Fyrir marga er það svo mikið fjár
hagslegt högg að eignast barn að því
er frestað eða sleppt. Höggið slær
svo samfélagið, sem bregst ekki við
vandanum, til baka með lækkaðri
fæðingartíðni, færri einstaklingum
til að halda uppi samfélaginu og
erfiðleikum, sem við þekkjum nú vel
sem fámenn þjóð. Þetta þarf að laga.
Lykilorðið er mannsæmandi
Píratar stefna að því að lögfesta
lágmarksframfærsluviðmið þar
sem allir eiga rétt á mannsæmandi
tekjum. Lykilorð eru allir og mann
sæmandi. Píratar stefna einnig að því
að lágmarksgreiðslur úr fæðingar
orlofssjóði og vegna fæðingarstyrks
verði aldrei lægri heldur en grunn
neysluviðmið sem velferðarráðu
neytið gefur út.
Nú árið 2016 er þetta grunnvið
mið 224.155 kr. fyrir par í sambúð á
höfuðborgarsvæðinu með ungbarn
fyrir utan húsnæðiskostnað. Þegar
hann bætist við er ljóst að upphæðin
dugar alls ekki fyrir framfærslu og er
því ekki mannsæmandi.
Í stjórnarskrárfrumvarpi Stjórn
lagaráðs er ákvæði um að konur og
karlar skuli njóta jafns réttar í hví
vetna. Nýja stjórnarskráin er eitt
megináhersluatriði Pírata. Foreldr
ar eiga að fá úthlutaða jafn marga
mánuði til fæðingarorlofs ásamt því
að geta skipt hluta tímans sín á milli
eftir geðþótta. Ísland hefur langstyst
an fæðingarorlofstíma allra Norður
landanna með níu mánuði á meðan
hin löndin hafa 1216 mánuði. Þar
sem erfitt er að fá pláss í daggæslu
fyrir ungbörn undir 12 mánaða aldri
hafa margir íslenskir foreldrar þurft
að dreifa fæðingarorlofsgreiðslum
sínum til lengri tíma til þess að geta
brúað bilið milli fæðingarorlofstíma
og daggæslu. Það leiðir til frekari
tekjuskerðingar fjölskyldunnar.
Með lengingu fæðingarorlofs
tímans í 12 mánuði þar sem móðir
fengi þrjá mánuði, faðir þrjá mán
uði og sex mánuðir væru sameigin
legir væri auðveldara fyrir foreldra
að brúa þetta bil ásamt því að
aukinn tími sem fjölskyldan fær
saman stuðlar að vellíðan og velferð
barns og foreldra. Að því markmiði
stefnum við.
Fæðingartíðni Íslendinga er nú sú
lægsta síðan mælingar hófust. Það
þarf fólk til að halda úti þjóð. Látum
ekki endurreisn fjölskyldunnar
verða kosningamál í framtíðinni.
Förum í þetta núna.
Fyrir hönd Pírata í fæðingarorlofi.
Látum ekki endurreisn
fjölskyldunnar verða
kosningamál í framtíðinni
Búvörusamningur
Bjarna
Pawel BartoszekÞorbjörg
Sigríður
Gunnlaugsdóttir
frambjóðendur Viðreisnar
Fyrir marga er það svo mikið
fjárhagslegt högg að eignast
barn að því er frestað eða
sleppt.
Eva Pandora
í 1. sæti Pírata
í Norðvestur-
kjördæmi og
nýbökuð móðir
Andri Þór
Sturluson
í 3. sæti Pírata í
Suðvesturkjör-
dæmi og þriggja
barna faðir
Það segir ákveðna sögu
af pólitískum veruleika
landbúnaðarins að það
er líklegra að núverandi
ríkisstjórn geti samþykkt
að afglæpavæða fíkniefni en
að samþykkja frekari inn-
flutning á osti.
Heilbrigðismálin eru enn bitbein í kosningabaráttu og einfaldar lausnir boðaðar
án nokkurs rökstuðnings.
Nokkrir stjórnmálaflokkar boða
gjaldfrjálsa þ.e. „fría“ heilbrigðis
þjónustu. Kári vill 11% af þjóðar
tekjum í heilbrigðisþjónustuna.
Fjármálaspeki mín er ekki mikil
en hugstæð er setning/frasi sem
oft heyrðist í dvöl minni í Banda
ríkjunum og almenningur þekkti
vel þ.e. „there is no free lunch“, sem
einfaldlega má þýða: það er enginn
frír (ókeypis) hádegisverður. Ein
hver verður alltaf að borga, yfirleitt
er það neytandinn eftir öðrum
leiðum.
Ef þessir boðberar ætla að afnema
alla gjaldtöku í heilbrigðisþjónustu
er þeim skylt að benda á hvar eigi
að draga úr öðrum útgjöldum. Alls
staðar virðist vanta meira fé, svo
sem í menntakerfið, löggæslu og
vegamál, hvar á að draga úr? Minni
menntun eða löggæslu, verri vegir?
Sama er að segja um 11% hans
Kára, hvar á að draga úr öðrum
framlögum? Kári hefur vissulega
nokkra reynslu af fjármálum með
gjaldþroti fyrirtækis upp á um
40 milljarða kr. (313,9 milljónir
Bandaríkjadala, (skv. Wikipedia))
eftir mikil hlutabréfakaup almenn
ings, án þess að yfirlýstum mark
miðum hafi verið náð. Var 800
milljóna kr. skannagjöf friðþæging?
Það dugar lítið að ætla sér að ráða og
reka menn úr stjórnmálum.
Þegar kallað er eftir ítarlegum
upplýsingum um fjármál forseta
fjölskyldu mætti líta sér nær.
Hver borgar?
Birgir
Guðjónsson
læknir
SHAREHOLDERS MEETING
OF CCP HF.
MEETING INVITATION
A shareholders meeting of CCP hf., reg. no. 450697-3469, will be held on Tuesday 1 November 2016
at 10am at Grandagarður 8, 101 Reykjavík.
The following matters will be on the agenda:
1. Proposal to reduce the share capital by cancelling 707,035 of the company’s own shares as
a part of a scheme to reduce the share capital following the purchase of own shares for an amount
between USD 20 and USD 25 per share
2. Proposal on amendment of the Articles of Association
The board of directors proposes that Article 2.01 (2) of the Articles of Association is amended to
read as follows:
“The total share capital of the company is ISK 10,368,531. The Class A shares amount to ISK
8,998,677 – eight million, nine hundred ninety eight thousand six hundred seventy seven 00/100
by nominal value, and is divided into the same number of shares of 1 ISK each.”
Icelandic version:
“Heildarhlutafé er kr. 10.368.531. Hlutafé félagsins í A flokki er kr. 8.998.677 - krónur átta milljónir
níu hundruð níutíu og átta þúsund sex hundruð sjötíu og sjö 00/100 að nafnvirði, og skiptist í
jafnmarga einnar krónu hluti.”
3. Other matters
The agenda and final proposals will be available at the company‘s office for shareholders to view,
before the meeting. Ballots and other documents will be delivered at the place of the meeting from
9am on the day of the meeting.
Reykjavík, 21 October 2016
CCP’s Board of Directors
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 2 5 . o k T ó B e R 2 0 1 6
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
C
-E
3
1
C
1
B
0
C
-E
1
E
0
1
B
0
C
-E
0
A
4
1
B
0
C
-D
F
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K