Fréttablaðið - 25.10.2016, Page 30

Fréttablaðið - 25.10.2016, Page 30
TónlisT óperusýning HHHHH Eldborg í Hörpu laugardaginn 22. október Évgení Ónegín, Tsjajkovskí. Flytjendur: Þóra Einarsdóttir, Andrey Zhilikhovsky, Elmar Gilbertsson, Nat- halía Druzin Halldórsdóttir, Rúni Bratta- berg, Hanna Dóra Sturludóttir, Alina Dubik, Hlöðver Sigurðsson auk annarra söngvara, kórs og hljómsveitar Íslensku óperunnar. Hljómsveitarstjórn: Benjamin Levy. Leikstjórn: Anthony Pilavachi. Ég greip andann á lofti þegar ég kom inn í Eldborgina í Hörpu á laugar- dagskvöldið. Frumsýna átti Évgení Ónegín, þar sem sagan hefst á rúss- nesku sveitasetri. Búið var að breyta sviðinu í blómagarð; blóm voru nán- ast alls staðar, í öllum regnbogans litum. Það var ótrúlega flott. Meðfram sviðsveggjunum lágu hvít, hálfgegnsæ tjöld, eins konar stórísar. Á þá var varpað skrifuðum línum á hreyfingu þegar aðalper- sónan var að rita ástarbréf; ýmiss konar birtu, líðandi skuggum, reykjarbólstrum. Þessi undursam- lega sviðsmynd var hönnuð af Evu Signýju Berger. Hinar tvær senurnar í óperunni voru ekki síðri, annars vegar ískaldur skógur, hins vegar glæsileg höll. Tjöldin spiluðu veglegt hlutverk í þeim báðum. Lýsing Björns Bergsteins Guðmundssonar var svo punkturinn yfir i-ið, hún skapaði töfraveröld sem dásamlegt var að upplifa. Búningar Maríu Th. Ólafsdóttur voru fallegir. Hvít föt fólksins í sveitinni og svartir búningar í höll- inni voru stílhreinir. Rauður kjóll aðalpersónunnar innan um þetta svarta var kröftugur. Búningarnir féllu prýðilega að sviðsmyndinni; heildarútlitið var veisla fyrir augað. Tónlist Tsjajkovskís er himnesk, full af drama og undurfögrum laglín- um. Évgení Ónegín fjallar um mann sem er sinn eigin versti óvinur. Félagi hans, Lenskí að nafni, kynnir hann fyrir Tatjönu sem verður strax yfir sig ástfangin af honum. En hann hafnar henni, daðrar við systur hennar, sem er heitbundin Lenskí. Það orsakar einvígi þar sem Ónegín drepur hann. Mörgum árum síðar hittir hann Tatjönu, og sér þá eftir öllu saman. Það er heldur seint, hún er gift öðrum manni. Líkt og með sjónræna hlutann þá var sterkur heildarsvipur á tónlistar- flutningnum undir stjórn Benjamins Levy. Söngvararnir voru hver öðrum betri og aðdáunarvert var hve radd- irnar pössuðu vel saman. Rétt list- ræn ákvörðun var að hafa óperuna á rússnesku. Tungumálið er hluti af tónlistinni; ef óperan hefði verið sungin á íslensku hefði það gjör- breytt verkinu. Ég gat ekki betur heyrt en að söngvararnir hefðu rúss- neskuna ágætlega á valdi sínu þrátt fyrir að þeir tali hana fæstir. Þóra Einarsdóttir var Tatjana, en Ónegín var leikinn af Andrey Zhil- ikhovsky og Lenskí af Elmari Gil- bertssyni. Þau voru öll frábær. Rödd Þóru var einstök og leikurinn var áhrifamikill. Senan þar sem hún skrifaði ástarbréfið hlýtur að vera einhver stórfenglegasta sena í sögu óperunnar hér á landi. Hvílíkur til- finningahiti! Zhilikhovsky var einn- ig ákaflega sannfærandi, bæði sem hinn hrokafulli flagari og svo sem niðurbrotinn maður í lok óper- unnar. Sömuleiðis sópaði að Elmari, arían hans eftir hlé var t.d. svo hjart- næm og einlæg að maður komst við. Aðrir söngvarar stóðu sig líka prýðilega. Alina Dubik söng veru- lega fallega, sem og Nathalía Druzin Halldórsdóttir, Hanna Dóra Sturlu- dóttir og Rúni Brattaberg. Hlöðver Sigurðsson var svo trúðurinn á sýningunni, hann myndaði pott- þétt mótvægi við allt dramað í atburðarásinni. Söngvarar og leik- arar í minni hlutverkum stóðu sig jafnframt ágætlega. Kórinn, undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar söng af mikilli fag- mennsku, hann hefur sjaldan hljómað svona vel. Hljómsveitin var með sitt á hreinu undir ástríðufullri, en smekklegri stjórn Levy. Síðast en ekki síst verður að hrósa leikstjórn Anthony Pilavachi. Það var góð ákvörðun að ráða hann, alþjóð- legan óperuleikstjóra með fjöldann allan af uppfærslum undir beltinu. Flæðið í sýningunni var einstaklega ánægjulegt, kóreógrafían gladdi augað; hvergi var dauður punktur í atburðarásinni. Ég mæli með þessari snilld. Jónas Sen niðursTaða: Ein besta uppfærsla Íslensku óperunnar í langan tíma. Magnaður Évgení Ónegín slær í gegn Þóra Einarsdóttir fer á kostum í hlutverki Tatjönu. Mynd/JÓHanna ÓLaFSdÓTTir andrey Zhilikhovsky í hlutverki Évgení Ónegín í uppfærslu Íslensku óperunnar. Mynd/JÓHanna ÓLaFSdÓTTir Klassík í Vatnsmýrinni er tón-leikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna – klassískrar deildar FÍH í samvinnu við Nor- ræna húsið. Markmiðið með tón- leikaröðinni er að gefa áheyrendum tækifæri til að hlýða á fyrsta flokks innlenda og erlenda listamenn með áherslu á einleikarann annars vegar og kammertónlist hins vegar. Fyrstu tónleikar raðarinnar á þessum vetri verða í Norræna hús- inu í kvöld kl. 20. Þau Judith Ingolfs- son fiðluleikari og Vladimir Stoupel píanóleikari ríða á vaðið en á efnis- skránni er tónlist eftir Gabríel Fauré, Louis Vierne og Rudi Stephan. Dúóið kemur reglulega fram á helstu tónlistarhátíðum heims svo sem Schleswig-Holstein hátíðinni, Voix Etouffées hátíðinni í París, Sumartónleikum í Brandenburg og í National Gallery of Art í Washing- ton borg. Árið 2009 stofnuðu þau tónlistarhátíðina Aigues-Vives en Musiques í Suður-Frakklandi og eru listrænir stjórnendur hennar. Eitt af einkennum Klassíkur í Vatnsmýrinni er að standa fyrir nor- rænu og alþjóðlegu samstarfi og er hefð fyrir því að flytjendur kynni og fjalli um efnisskrána á tónleikunum. Á starfsárinu eru áætlaðir tvennir tónleikar með erlendum gestum og þrennir með listafólki FÍT. Aðgangs- eyrir 2.500 kr. en 1.500 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja, ókeypis fyrir 20 ára og yngri og tónlistarnema. – mg Alþjóðlegt samstarf í Vatnsmýri Judith ingólfsson fiðluleikari og Vlad­ imir Stoupel píanóleikari leika á tón­ leikum í norræna húsinu í kvöld kl. 20. Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Forsýning á verkunum í Gallerí Fold þriðjudag kl. 10–17 Listmunauppboð í Gallerí Fold þriðjudaginn 25. september, kl. 18 Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna ásamt fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Erró Uppboð í 20 ár 2 5 . o k T ó b E r 2 0 1 6 Þ r i ð J u D a G u r22 M E n n i n G ∙ F r É T T a b l a ð i ð menning 2 5 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :2 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 0 C -C F 5 C 1 B 0 C -C E 2 0 1 B 0 C -C C E 4 1 B 0 C -C B A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.