Fréttablaðið - 25.10.2016, Síða 30
TónlisT
óperusýning
HHHHH
Eldborg í Hörpu
laugardaginn 22. október
Évgení Ónegín, Tsjajkovskí.
Flytjendur: Þóra Einarsdóttir, Andrey
Zhilikhovsky, Elmar Gilbertsson, Nat-
halía Druzin Halldórsdóttir, Rúni Bratta-
berg, Hanna Dóra Sturludóttir, Alina
Dubik, Hlöðver Sigurðsson auk annarra
söngvara, kórs og hljómsveitar Íslensku
óperunnar.
Hljómsveitarstjórn: Benjamin Levy.
Leikstjórn: Anthony Pilavachi.
Ég greip andann á lofti þegar ég kom
inn í Eldborgina í Hörpu á laugar-
dagskvöldið. Frumsýna átti Évgení
Ónegín, þar sem sagan hefst á rúss-
nesku sveitasetri. Búið var að breyta
sviðinu í blómagarð; blóm voru nán-
ast alls staðar, í öllum regnbogans
litum. Það var ótrúlega flott.
Meðfram sviðsveggjunum lágu
hvít, hálfgegnsæ tjöld, eins konar
stórísar. Á þá var varpað skrifuðum
línum á hreyfingu þegar aðalper-
sónan var að rita ástarbréf; ýmiss
konar birtu, líðandi skuggum,
reykjarbólstrum. Þessi undursam-
lega sviðsmynd var hönnuð af Evu
Signýju Berger.
Hinar tvær senurnar í óperunni
voru ekki síðri, annars vegar ískaldur
skógur, hins vegar glæsileg höll.
Tjöldin spiluðu veglegt hlutverk í
þeim báðum. Lýsing Björns Bergsteins
Guðmundssonar var svo punkturinn
yfir i-ið, hún skapaði töfraveröld sem
dásamlegt var að upplifa.
Búningar Maríu Th. Ólafsdóttur
voru fallegir. Hvít föt fólksins í
sveitinni og svartir búningar í höll-
inni voru stílhreinir. Rauður kjóll
aðalpersónunnar innan um þetta
svarta var kröftugur. Búningarnir
féllu prýðilega að sviðsmyndinni;
heildarútlitið var veisla fyrir augað.
Tónlist Tsjajkovskís er himnesk,
full af drama og undurfögrum laglín-
um. Évgení Ónegín fjallar um mann
sem er sinn eigin versti óvinur.
Félagi hans, Lenskí að nafni, kynnir
hann fyrir Tatjönu sem verður strax
yfir sig ástfangin af honum. En hann
hafnar henni, daðrar við systur
hennar, sem er heitbundin Lenskí.
Það orsakar einvígi þar sem Ónegín
drepur hann. Mörgum árum síðar
hittir hann Tatjönu, og sér þá eftir
öllu saman. Það er heldur seint, hún
er gift öðrum manni.
Líkt og með sjónræna hlutann þá
var sterkur heildarsvipur á tónlistar-
flutningnum undir stjórn Benjamins
Levy. Söngvararnir voru hver öðrum
betri og aðdáunarvert var hve radd-
irnar pössuðu vel saman. Rétt list-
ræn ákvörðun var að hafa óperuna
á rússnesku. Tungumálið er hluti
af tónlistinni; ef óperan hefði verið
sungin á íslensku hefði það gjör-
breytt verkinu. Ég gat ekki betur
heyrt en að söngvararnir hefðu rúss-
neskuna ágætlega á valdi sínu þrátt
fyrir að þeir tali hana fæstir.
Þóra Einarsdóttir var Tatjana, en
Ónegín var leikinn af Andrey Zhil-
ikhovsky og Lenskí af Elmari Gil-
bertssyni. Þau voru öll frábær. Rödd
Þóru var einstök og leikurinn var
áhrifamikill. Senan þar sem hún
skrifaði ástarbréfið hlýtur að vera
einhver stórfenglegasta sena í sögu
óperunnar hér á landi. Hvílíkur til-
finningahiti! Zhilikhovsky var einn-
ig ákaflega sannfærandi, bæði sem
hinn hrokafulli flagari og svo sem
niðurbrotinn maður í lok óper-
unnar. Sömuleiðis sópaði að Elmari,
arían hans eftir hlé var t.d. svo hjart-
næm og einlæg að maður komst við.
Aðrir söngvarar stóðu sig líka
prýðilega. Alina Dubik söng veru-
lega fallega, sem og Nathalía Druzin
Halldórsdóttir, Hanna Dóra Sturlu-
dóttir og Rúni Brattaberg. Hlöðver
Sigurðsson var svo trúðurinn á
sýningunni, hann myndaði pott-
þétt mótvægi við allt dramað í
atburðarásinni. Söngvarar og leik-
arar í minni hlutverkum stóðu sig
jafnframt ágætlega.
Kórinn, undir stjórn Magnúsar
Ragnarssonar söng af mikilli fag-
mennsku, hann hefur sjaldan
hljómað svona vel. Hljómsveitin var
með sitt á hreinu undir ástríðufullri,
en smekklegri stjórn Levy. Síðast en
ekki síst verður að hrósa leikstjórn
Anthony Pilavachi. Það var góð
ákvörðun að ráða hann, alþjóð-
legan óperuleikstjóra með fjöldann
allan af uppfærslum undir beltinu.
Flæðið í sýningunni var einstaklega
ánægjulegt, kóreógrafían gladdi
augað; hvergi var dauður punktur í
atburðarásinni. Ég mæli með þessari
snilld. Jónas Sen
niðursTaða: Ein besta uppfærsla
Íslensku óperunnar í langan tíma.
Magnaður Évgení Ónegín slær í gegn
Þóra Einarsdóttir fer á kostum í hlutverki Tatjönu. Mynd/JÓHanna ÓLaFSdÓTTir
andrey Zhilikhovsky í hlutverki Évgení Ónegín í uppfærslu Íslensku óperunnar.
Mynd/JÓHanna ÓLaFSdÓTTir
Klassík í Vatnsmýrinni er tón-leikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna – klassískrar
deildar FÍH í samvinnu við Nor-
ræna húsið. Markmiðið með tón-
leikaröðinni er að gefa áheyrendum
tækifæri til að hlýða á fyrsta flokks
innlenda og erlenda listamenn með
áherslu á einleikarann annars vegar
og kammertónlist hins vegar.
Fyrstu tónleikar raðarinnar á
þessum vetri verða í Norræna hús-
inu í kvöld kl. 20. Þau Judith Ingolfs-
son fiðluleikari og Vladimir Stoupel
píanóleikari ríða á vaðið en á efnis-
skránni er tónlist eftir Gabríel Fauré,
Louis Vierne og Rudi Stephan.
Dúóið kemur reglulega fram á
helstu tónlistarhátíðum heims svo
sem Schleswig-Holstein hátíðinni,
Voix Etouffées hátíðinni í París,
Sumartónleikum í Brandenburg og
í National Gallery of Art í Washing-
ton borg. Árið 2009 stofnuðu þau
tónlistarhátíðina Aigues-Vives en
Musiques í Suður-Frakklandi og eru
listrænir stjórnendur hennar.
Eitt af einkennum Klassíkur í
Vatnsmýrinni er að standa fyrir nor-
rænu og alþjóðlegu samstarfi og er
hefð fyrir því að flytjendur kynni og
fjalli um efnisskrána á tónleikunum.
Á starfsárinu eru áætlaðir tvennir
tónleikar með erlendum gestum og
þrennir með listafólki FÍT. Aðgangs-
eyrir 2.500 kr. en 1.500 kr. fyrir eldri
borgara og öryrkja, ókeypis fyrir 20
ára og yngri og tónlistarnema. – mg
Alþjóðlegt samstarf í Vatnsmýri
Judith ingólfsson fiðluleikari og Vlad
imir Stoupel píanóleikari leika á tón
leikum í norræna húsinu í kvöld kl. 20.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Forsýning á verkunum í Gallerí Fold
þriðjudag kl. 10–17
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
þriðjudaginn 25. september, kl. 18
Á uppboðinu verður gott úrval verka
samtímalistamanna ásamt fjöldi frábærra
verka gömlu meistaranna.
Erró
Uppboð í 20 ár
2 5 . o k T ó b E r 2 0 1 6 Þ r i ð J u D a G u r22 M E n n i n G ∙ F r É T T a b l a ð i ð
menning
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
C
-C
F
5
C
1
B
0
C
-C
E
2
0
1
B
0
C
-C
C
E
4
1
B
0
C
-C
B
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K