Fréttablaðið - 02.11.2016, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 02.11.2016, Blaðsíða 2
Veður Suðaustankaldi og rigning eða slydda í dag, þurrt að mestu norðaustanlands. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst. sjá síðu 20 Þingflokkur Pírata kom saman í þingfundarherbergi sínu í gær, en þingflokkurinn hefur þrefaldast að stærð frá því fyrir helgi. Nýr þingmaður, Eva Pandora Baldursdóttir, tók tveggja mánaða dóttur sína með. Sú virðist, af myndinni að dæma, hafa verið býsna þyrst. Fréttablaðið/Eyþór samfélag „Við fáum margar fyrir- spurnir sem hægt er að verða við og aðrar sem ómögulegt er að gera. Þessi beiðni var svo sjálfsögð að þetta var minna en ekkert mál og nærði bæði hjarta og sál,“ segir Stefán Jakobsson, söngvari þunga- rokkshljómsveitarinnar Dimmu sem hélt einkatónleika fyrir Ólaf Karl Óskarsson, átta ára aðdáanda í Sjallanum á föstudag. Ólafur Karl hlustar mikið á íslenskt þungarokk og er með Dimmu og Skálmöld yfirleitt í eyrunum. Ólafur er með Vacterl- heilkenni og hafði aldrei farið á tónleika. Þegar frænka hans sendi hljóm- sveitinni fyrirspurn um hvenær hljómsveitin ætlaði að halda  tón- leika fyrir alla aldurshópa var svarið að þeir væru ekki á næst- unni. „Það er alltaf á dagskrá að halda slíka tónleika en það er erfitt í framkvæmd. Við vorum að spila á  Akureyri þar sem Ólafur á heima. Bubbi Morthens átti að vera með okkur en þurfti að sitja heima vegna veikinda. Frænka hans hafði sagt okkur sögu Ólafs og fyrst Bubbi var frá þurftum við að æfa nokkur lög og tókum því volduga hljóðprufu og buðum guttanum. Þau komu og skemmtu sér held ég mjög vel. Við spiluðum sex lög fyrir hann og spjölluðum svo við hann á eftir. Hann var aðeins feiminn fyrst en lék svo á als oddi,“ segir Stefán en Dimma gaf guttanum nokkrar gjafir á eftir. „Tónleikarnir fyrir hann voru litlir fyrir okkur en gerðu mikið fyrir hann og það er gott að geta glatt unga aðdáendur.“ Ásrún Hersteinsdóttir, móðir Ólafs, segir hann hafa verið mik- inn aðdáanda Dimmu fyrir en nú Héldu einkatónleika fyrir langveikan dreng Þungarokkshljómsveitin Dimma spilaði sex lög fyrir átta ára aðdáanda. Gutt- inn brosti sínu breiðasta á eftir enda hlustar hann mikið á íslenskt þungarokk. birgir Jónsson, Silli Geirdal, ólafur og pabbi hans óskar Árnason, Stefán Jakobsson og ingó Geirdal. Mynd/brynJa HErborG Ólafur hlustar mikið á íslenskt þungarokk og ég hef ekki tölu á því hvað hann hefur horft oft á Skálmöld og Sinfó á DVD-disknum. Hann sofnar stundum yfir þungarokki á DVD. Ásrún Hersteinsdóttir, móðir Ólafs Karls sé hljómsveitin númer eitt. „Hann er alsæll og líkti þessari upplifun að hitta Lionel Messi. Þetta var algjört æði og frábært framtak hjá Dimmu. Ólafur hlustar mikið á íslenskt þunga- rokk og ég hef ekki tölu á því hvað hann hefur horft oft á Skálmöld og Sinfó á DVD-disknum. Hann sofnar stundum yfir þungarokki á DVD,“ segir hún og hlær. „Hann er með Vacterl-heilkenni sem er fjölþættur fæðingargalli og ígrætt nýra. Í veikindunum hefur þungarokkið hjálpað honum, ekki spurning.“ benediktboas@frettabladid.is Stefán Jakobsson 26. nóvember kl. 20.00 Jólatónleikar í Grafarvogskirkju Miðala á miði.  Nýr þingflokkur fundar sTjÓRNmál Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, segir að afar erfitt sé að mynda ríkisstjórn án aðkomu Sjálfstæðisflokksins. Þetta kom meðal annars fram á opnum fundi þingflokks Viðreisnar. „Ég fór yfir kosningarnar, aðdrag- andann og þakkaði fólki fyrir. Síðan fór ég yfir hvaða möguleikar eru til stjórnarmyndunar,“ segir Benedikt. Hann segir að sumir flokkar hafi gefið út að þeir hafi ekki í hyggju að starfa með þessum og hinum og það flæki jöfnuna eilítið. „Ég skoðaði bara stærðfræðina þarna að baki. Hverjir geta myndað stjórn með þessum og hverjir með hinum,“ segir Benedikt. „Það er aug- ljóst að þegar einn flokkur hefur svona mikinn þingstyrk, þá er erfitt að mynda ríkisstjórn án hans aðkomu.“ Formaðurinn segir að lítið hafi gerst í gær enda þótt einhverjar þreifingar hafi átt sér stað. Þess sé beðið að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, veiti einhverjum stjórnarmyndunarumboð. Heim- ildir Fréttablaðsins herma að hann hafi rætt við formenn minnst þriggja stjórnmálaflokka í gær. Umræddir formenn voru Benedikt Jóhannesson, Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir. Líklegt þykir að forsetinn muni liggja undir feldi fram eftir degi og veita stjórnarmyndunarumboð þegar líða tekur á daginn. Það gæti þó dregist þar til á morgun. Þar er um að ræða eldskírn Guðna Th. Jóhannessonar í þeim efnum. – jóe Erfitt að mynda stjórn án D-lista sTjÓRNmál „Ég hef sent nýjum for- manni, Loga Einarssyni, uppsagnar- bréf mitt enda var það alltaf svo að framtíð mín í starfi myndi miðast við árangur í kosningum,“ segir Kristján Guy Burgess. Hann sagði í dag upp sem framkvæmdastjóri Samfylking- arinnar, ári eftir að hann hóf þar störf. „Þetta hefur verið ævintýralegur tími og meiri lífsreynsla en ég hefði nokkurn tímann getað ímyndað mér og ég er ótrúlega þakklátur fyrir sam- starfið við fólkið sem ég hef unnið með og kynnst í Samfylkingunni og annars staðar í pólitíkinni,“ sagði Kristján Guy í færslu á Fésbókarsíðu sinni í gær. – skó Kristján Guy hættur störfum Kristján Guy burgess, fráfarandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar Það er augljóst að þegar einn flokkur hefur svona mikinn þing- styrk, þá er erfitt að mynda ríkisstjórn án hans. Benedikt Jóhannes- son, formaður Viðreisnar 2 . N Ó v e m b e R 2 0 1 6 m I ð v I K u D a g u R2 f R é T T I R ∙ f R é T T a b l a ð I ð 0 2 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 2 6 -2 7 3 C 1 B 2 6 -2 6 0 0 1 B 2 6 -2 4 C 4 1 B 2 6 -2 3 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.