Fréttablaðið - 02.11.2016, Síða 24
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
ragnheiður
tryggvadóttir
heida@365.is
„Við erum bara að flippa og ég held að það sé kannski það sem fólk elskar mest. Við tökum okkur ekki of alvarlega,“ segir óli
gunnar gunnarsson, annar höfunda leikverksins stefán rís sem sýnt er í gaflaraleikhúsinu. mynd/anton
„Við eigum þrjár sýningar að baki
sem allar gengu afskaplega vel.
Við Arnór sömdum handritið en
með okkur er hópur unglinga sem
mótaði sýninguna með okkur í æf-
ingaferlinu og á því stóran þátt í
þessu. Við fengum tvo frábæra
dóma upp á fjórar og fimm stjörn-
ur,“ segir Óli Gunnar Gunnars-
son, einn leikara og annar höfunda
verksins Stefán rís, sem sýnt er í
Gaflaraleikhúsinu en verkið skrif-
aði hann ásamt Arnóri Björnssyni,
besta vini sínum og frænda.
Þeir félagar slógu í gegn fyrir
tveimur árum með leikrit sitt
Unglinginn og gáfu í fyrra einnig
út bók, Leitin að tilgangi unglings-
ins. Verkið Stefán rís er að hluta
byggt á bókinni.
„Það er samt ekkert úr leikrit-
inu Unglingnum í Stefán rís. Verk-
ið fjallar þó um ungling, strák í tí-
unda bekk, sem er ástfanginn.
Þetta er erfiður tími fyrir marga
og því tengir fólk við þetta. Verk-
ið er fyrst og fremst ástarsaga en
að auki fjallar sýningin um okkur
tvo að skrifa leikritið.“
Ástarsaga unglings. Byggið þið
verkið á eigin reynslu?
„Allar góðar sögur hljóta að
vera sannar að einhverju leyti,“
segir Óli Gunnar sposkur. „Aðal-
lega er þetta samt skáldsaga en
kannski setjum við margt úr okkar
eigin reynslu inn í leikritið án þess
endilega að fatta það,“ bætir hann
við.
Hann segir að þeim félögum
líði vel á sviði og þeir þekki ekki
sviðskrekk
„Það var smá stress í okkur
þegar fór að líða að frumsýning-
unni. Það tók nefnilega talsverðan
tíma að setja verkið allt saman og
við vorum ekki komin með endinn
fyrr en viku fyrir frumsýningu!
En það reddaðist að sjálfsögðu,
eins og við vissum svo sem alltaf.
Það var því enginn sviðskrekkur
þegar kom að sýningunni,“ segir
Óli Gunnar og kemur því ekki á
óvart að hann stefnir ótrauður á
leiklistarnám þegar hann hefur
lokið Versló.
„Ég stefni pottþétt á leiklistar-
nám í framtíðinni, annaðhvort hér
heima eða í útlöndum. Það að geta
skapað finnst mér heillandi við
leiklistina.“
Þið eruð þá þokkalega vel á veg
komnir, með tvö leikrit og eina
skáldsögu á ferilskránni?
„Jú, við gerum okkur alveg
grein fyrir því að það er frek-
ar gott. En við erum samt aldr-
ei að reyna neitt. Við erum bara
að flippa og ég held að það sé
kannski það sem fólk elskar mest.
Við tökum okkur ekki of alvarlega.
Við erum bara tveir unglingar að
skrifa það sem okkur dettur í hug.“
Hvað ertu að fást við annað?
Gefst einhver tími til annars en
að leika?
„Ég er í vídeónefndinni Rjóm-
anum í Versló og svo er ég bara
að læra og slaka á. Mér finnst ein-
mitt mjög mikilvægt að slaka á þar
sem ég hef eiginlega engan tíma
til þess.“
Tökum okkur
ekki oF alvarlega
óli gunnar gunnarsson er annar höfunda leikritsins Stefán rís sem nú
er sýnt í Gaflaraleikhúsinu. Hann þekkir ekki sviðskrekk þó stress fylgi
stundum leiklistinni og stefnir á leiklistarnám í framtíðinni.
ParisarTizkan
SKIPHOLTI 29B
20% AFSLÁTTUR
AF BUXUM
LAGERHREINSUN/STÆRÐIR 34-50
BUXNADAGAR
2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m I Ð v I K U D A G U r2 F ó l K ∙ K y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X X ∙ K y n n I n G A r b l A Ð v I Ð b U r Ð I r
0
2
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
2
6
-2
C
2
C
1
B
2
6
-2
A
F
0
1
B
2
6
-2
9
B
4
1
B
2
6
-2
8
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K