Fréttablaðið - 02.11.2016, Side 8

Fréttablaðið - 02.11.2016, Side 8
 Takið vel á móti fermingarbörnunum Þau safna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar PIPA R \ TBW A • SÍA • 12290 0 kjararáð Engin efnisleg svör hafa borist frá kjararáði við bréfi Frétta- blaðsins frá því 13. júlí í sumar þar sem óskað var eftir gögnum sem kjararáð aflaði sér og byggði á varð- andi ákvarðanir sínar á árinu 2016. Fréttablaðið óskaði eftir því við Jónas Þór Guðmundsson, formann kjararáðs, að fá afrit af gögnum „í formi skýrslna, munn- legra og skriflegra, af starfsmönn- um og launagreiðendum þeirra sem heyra undir kjararáð“ vegna allra úrskurða ráðsins á árinu. „Vegna sumarleyfa verður ekki unnt að taka afstöðu til beiðn- innar fyrr en að þeim loknum,“ segir í svari sem barst frá skrifstofu kjararáðs 20. júlí. Síðan hefur ekk- ert heyrst frá kjararáði þrátt fyrir margítrekaðan tölvupóst og sím- hringingar. Í  sumar spurðist Fréttablaðið fyrir um það hjá Alþingi, forsætis- ráðuneyti, fjármálaráðuneyti og hjá kjararáði sjálfu hvort þar væri unnið að endurskoðun launa þing- manna og ráðherra og hvort til væru einhver skjalfest samskipti um það frá því næstu átján mánuð- ina þar á undan. Forsætisráðuneyti og Alþingi sögðu ekki svo vera en ekki barst lokasvar frá fjármála- ráðuneytinu. Í frétt blaðsins 5. ágúst kom fram að formaður kjararáðs segðist ekki mundu tjá sig um þessa spurningu. Má því segja að leynd hafi hvílt yfir þessu verki. – gar Kjararáð svarar engu og hunsar beiðni um gögn Jónas Þór Guðmundsson, formaður kjararáðs. Hulda Árnadóttir, með- limur kjararáðs. Óskar Bergsson, með- limur kjararáðs. Svanhildur Kaaber, meðlimur kjararáðs. Viljálmur H. Vilhjálmsson, meðlimur kjararáðs. Þessi ákvörðun er fáránleg, gjörsam- lega. Hvort sem ég er í forsvari fyrir sjómenn eða bara sem Íslendingur er mér misboðið. Við ætluðum að reyna að ná einhverju samkomulagi og sátt um að vera hóflegir í launahækkunum en svo koma æðstu embættismenn sem predika yfir okkur og gefa okkur puttann. Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands Það er ekki hægt að segja annað en þegar maður er kýldur í magann þá fer maður í keng. Þessi ákvörðun er alveg makalaus og þá er ég sérstaklega að horfa til hræsninnar í þeim aðilum sem eru að fá þessi laun. Þingmenn hafa talað um stöðugleika, að verðbólga verði að fara niður o.s.frv. en síðan kemur í ljós að þessi hópur er að fá miklu hærri laun en aðrir í þessu þjóðfélagi. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélagsins á Akranesi Það að laun ráðamanna hækki langt umfram þær línur sem lagðar hafa verið varðandi kjaraþróun í landinu – í nafni stöðugleika, er bæði óréttlátt og rangt – og má ekki standa. Ég vona að allir geri sér grein fyrir alvarleika málsins og hvað er í húfi. Í mínum huga er samstarf stjórnvalda og verkalýðs- hreyfingar um þróun kjaramála í fullkomnu uppnámi ef ekkert verður að gert. Þá er stöðugleiki úr sögunni og allir tapa. Það er augljóst mál. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í bréfi til allra alþingismanna Þegar ég sá þetta fyrst þá varð ég orðlaus. Ég hélt að þetta væri einhver brandari og var lengi að melta þessi tíðindi. Þetta er í alla staði siðlaust og ógeðslegt. Ég vil að ASÍ taki SALEK-samkomulagið og brenni það á báli á Austurvelli. Undir þessari ákvörðun er ekki hægt að sitja og verkalýðshreyf- ingunni ber skylda til að segja upp samningum. Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður verkalýðsfélagsins Framsýnar á Húsavík KJaramÁl Benedikt Bóas benediktboas@365.is ASÍ kom saman til skyndifundar vegna ákvörðunar kjararáðs um að hækka laun æðstu embættismanna. Ákvörðunin um launahækkunina til æðstu embættismanna fór vægast sagt illa í aðila vinnumarkaðsins og almenning í landinu. Flest öll hags- munasamtök sendu frá sér yfir- lýsingu og ályktun, eins og kenn- arar, lögreglumenn, BSRB, Samtök atvinnulífsins og viðskiptaráð og svona mætti lengi telja. Í minnisblaði fundar ASÍ kemur fram að hækkanirnar komi til við- bótar við 7,2 prósenta launahækkun sem kjararáð úrskurðaði þann 1. júní sl. sem þýðir að þingfararkaup hefur síðastliðið ár hækkað um 55 prósent, laun ráðherra um 46 pró- sent og forseta Íslands um 29 pró- sent. ASÍ skoðaði einnig launaþróun þessa hóps frá því í mars 2013, til samræmis við SALEK-samkomu- lagið sem byggði á sameiginlegri launastefnu um 32 prósenta hækk- un launa á tímabilinu frá nóvember 2013 til ársloka 2018. Þar má sjá að þingfararkaup hefur frá árinu 2013 hækkað um 471.000 krónur eða um 75 prósent, laun forsætisráðherra hafa hækkað um 790.733 krónur, eða 64 prósent og laun annarra ráð- herra um 713.667 krónur sem einnig er 64 prósenta hækkun. Mánaðarlaun forseta Íslands hafa á sama tímabili hækkað um 936.771 krónu eða 46 prósent. Til saman- burðar hefur launavísitalan, sem gefur mynd af almennri launaþróun, hækkað um 29 prósent frá því í mars 2013 og lægstu laun um 27 prósent. „Undanfarið ár hefur verið unnið að því að skapa sátt á vinnumarkaði og leggja þannig grunn að efna- hagslegum og félagslegum stöðug- leika. Flestir stjórnmálaleiðtogar á Alþingi Íslendinga hafa tekið undir þá ábyrgu sýn sem felst í breyttum vinnubrögðum við gerð kjarasamn- inga og ítrekuðu hana m.a. í stjórn- málaumræðum á nýafstöðnu þingi ASÍ,“ segir meðal annars í ályktun fundarins. „Úrskurður kjararáðs gengur þvert á þessa orðræðu og brýtur alvar- lega gegn öllum skynsemisrökum. Það er ekkert réttlæti í því að laun þingmanna, ráðherra og æðstu embættis manna hækki um allt að 75 prósent á þremur árum á sama tíma og almenn laun í landinu hafa hækkað um 29 prósent. Ef nýkjörið Alþingi vill halda áfram samtali um stöðugleika og sátt á vinnumarkaði verður þingið að koma saman nú þegar og draga þessar hækkanir til baka. Að öðrum kosti verður óstöðugleiki og upp- lausn á vinnumarkaði í boði Alþing- is,“ segir enn fremur. Fleiri hörmuðu ákvörðun kjara- ráðsins. Öryrkjabandalag Íslands skorar í harðorðri yfirlýsingu á nýja ríkisstjórn og nýkjörna þingmenn að hafna hækkuninni. „Ótrúleg hækkun skýtur skökku við á meðan hópur fólks í landinu býr við fátækt, börn líða skort og fatl- að fólk er fast heima hjá sér og hefur ekki tækifæri til samfélagsþátttöku til jafns við aðra. Ákvörðunin hefur vakið sterk viðbrögð og reiði á meðal fjölda örorkulífeyrisþega.“ Þá krafðist stjórn VR að ákvörðun kjararáðs verði tafarlaust dregin til baka, Samtök atvinnulífsins og viðskiptaráð sögðu að ákvörðunin stuðli að upplausn á vinnumarkaði og Landssamband lögreglumanna lýsti einnig furðu sinni og vanþókn- un á úrskurði og vinnubrögðum kjararáðsins. Skýlaus krafa að hafna hækkunum kjararáðs Verkalýðsfélög og hagsmunasamtök gagnrýna harðlega ákvörðun kjararáðs um hækkun launa til æðstu embættismanna. Krafist er að ákvörðunin verði tekin til baka annars sé stöðugleikanum ógnað og upplausn ríki í þjóðfélaginu. Samninganefnd aSÍ áréttar að kjararáð sé á ábyrgð alþingis og ríkisstjórnar. Sigurður Bessason, formaður Eflingar stéttarfélags, segir fólki misboðið. Frétta- Blaðið/anton 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m I ð v I k U D a G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a ð I ð 0 2 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 2 6 -4 9 C C 1 B 2 6 -4 8 9 0 1 B 2 6 -4 7 5 4 1 B 2 6 -4 6 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.