Fréttablaðið - 02.11.2016, Side 34
Þetta er heimildarmynd þar sem ég ræddi við þrettán manns á aldrinum sjötíu til níutíu og eins árs um ham-ingjuna – sem sagt hvað er það sem skapar vellíðan og
hamingju og hvað við getum lært af fólki
sem hefur upplifað ýmislegt á langri lífs-
leið, bæði jákvæða atburði og auðvitað
líka mótlæti og erfiðleika. Þarna kemur
ýmislegt fróðlegt í ljós sem fólk talar um
í sambandi við hamingjuna,“ segir Ingrid
Kuhlman sem sýnir mynd sína Hamingjan
sanna! í Gerðubergi klukkan átta í kvöld.
„Ég hafði samband við Félag eldri
borgara í Reykjavík og Garðabæ, Kven-
félagið úti á Álftanesi og ég fékk ábend-
ingar frá bekkjarsystkinum því þetta er
lokaverkefnið mitt í jákvæðri sálfræði. Ég
fékk ábendingar um hamingjusama ein-
staklinga til að finna út hvað þeir gera til
að auka eigin vellíðan og viðhalda henni.“
Hvaða atriði eru það sem þetta fólk
nefnir helst?
„Eitt af því sem allir nefna er að rækta
tengslin við maka, börn, fjölskyldu, fólkið
í kringum okkur.
Annað atriði er að hreyfa sig, það skiptir
svo miklu máli að vera virkur, hvort sem
við förum að vinna úti í garði, dönsum eða
förum í göngutúr, sund eða jóga.
Þriðja atriðið sem flestir nefna er að
kunna að njóta lífsins, sem sagt að taka
eftir og veita innri líðan og upplifun
athygli, í stað þess að fara í gegnum lífið
án þess að taka virkilega eftir og njóta litlu
hlutanna.
Í fjórða lagi kemur líka mjög sterkt fram
að fólk talar um mikilvægi þess að halda
áfram að læra. Til dæmis er einn sem er
níutíu og eins árs og hann er enn þá með
nýjasta forritið í grafískri hönnun, önnur
fór á golfnámskeið sextíu og átta ára, þetta
er allt saman fólk sem tók upp ný áhuga-
mál, heldur áfram að læra og bæta sig.
Í fimmta lagi tala mjög margir um mikil-
vægi þess að gera eitthvað gott fyrir aðra,
láta gott af sér leiða og gefa til samfélagsins.
Í sjötta lagi er þakklætið. Allir sem ég tal-
aði við hafa tileinkað sér mjög þakklátt lífs-
viðhorf. Fólk segir einfaldlega „við verðum
ekki alltaf hér og það má ekki taka lífinu
sem sjálfsögðum hlut, það þarf að þakka
fyrir hvern dag sem maður fær“.“
Er rætt við eitthvað óhamingjusamt fólk
í myndinni?
„Það væri náttúrulega gaman líka að
taka viðtöl við fólk sem er ekki hamingju-
samt og bera það saman við þessi sex
atriði. Fólk sem er ekki hamingjusamt er
kannski ekki að hreyfa sig, ekki að þakka
fyrir litlu hlutina og svo framvegis, en það
er kannski efni í aðra mynd. Í jákvæðri
sálfræði erum við frekar að rannsaka og
skoða það sem er þess virði, sem sagt það
sem fólk gerir vel og hvernig við getum
aukið vellíðan frekar en hvernig við getum
dregið úr vanlíðan.
Við þurfum kannski öll að læra af eldri
kynslóðinni af því að það er allt of lítið
hlustað á þessa kynslóð. Það er allt of oft
verið að taka ákvarðanir um eldri borgara
frekar en með þeim. Þetta er fólk sem hefur
lifað lífinu og hefur sjötíu ára reynslu. Þetta
er meira en þúsund ára reynsla sem þessir
þrettán einstaklingar sem ég er að tala við
hafa samanlagt,“ segir Ingrid að lokum.
stefanthor@frettabladid.is
Meira en
þúsund ára
samanlögð
reynsla
Ingrid Kuhlman sýnir heimildarmyndina
Hamingjan sanna! í Gerðubergi í kvöld. Í
myndinni ræðir hún við nokkra hressa eldri
borgara sem hafa upplifað ýmislegt á lífsleið-
inni og deila því sem þau gera daglega til að
viðhalda lífshamingju sinni og auka hana.
Ingrid Kuhlman er þjálfari og ráðgjafi og
jafnframt framkvæmdastjóri Þekkingar-
miðlunar.
Þetta er meira en
þúsund ára reynsla sem
þessir þrettán einstaklingar sem
ég er að tala við hafa samanlagt.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir og tengdafaðir,
Jón Örn Ámundason
framkvæmdastjóri,
lést á nýrnadeild Landspítalans
mánudaginn 31. október. Útförin
verður auglýst síðar.
Erna Hrólfsdóttir
Fanney Birna Jónsdóttir Andri Óttarsson
Hrólfur Örn Jónsson Hildur Guðný Káradóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðmundur Viggósson
frá Ísafirði,
Skipalóni 10, Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold
22. október sl. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 3. nóv. kl. 13.00.
Alda Garðarsdóttir
Helga Björk Guðmundsdóttir Einar Már Jóhannesson
Kristín Þorbj. Guðmundsdóttir Sigurður B. Sigurðsson
Sæmundur G. Guðmundsson Íris Hrund Sigurðardóttir
Hafdís Erla Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, dóttir,
móðir, tengdamóðir og amma,
Soffía Wedholm
Gunnarsdóttir
sem lést 26. október,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju
föstudaginn 4. nóvember kl. 13.00.
Helgi Björnsson
Jóna Jóhannesdóttir Wedholm
Gunnar Wedholm Helgason Þóra Björk Eysteinsdóttir
Ólöf Helgadóttir Guðmundur J. Kristjánsson
Erlen Björk Helgadóttir Kristinn Ottason
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Sjöfn Jóhannesdóttir
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
er látin. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju föstudaginn
4. nóvember kl. 13.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Höfða.
Jóhannes Guðjónsson Guðrún J. Guðmundsdóttir
Guðmundur Guðjónsson Ólöf Guðmundsdóttir
Hrefna Guðjónsdóttir Sigurður Sigurðsson
og ömmubörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma, dóttir og systir,
Valborg Stella Harðardóttir
Lundarbrekku 10, Kópavogi,
lést mánudaginn 24.október á
Landspítalanum. Hún verður
jarðsungin frá Digraneskirkju
föstudaginn 4. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar
vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Krabbameinsfélagið.
Eggert Þór Jóhannsson
Hörður Páll Eggertsson Karen Ómarsdóttir
Anton Ingi Eggertsson Þorgerður Jónsdóttir
Stefán J. Eggertsson Jóhanna L. Brynjólfsdóttir
barnabörn
Pálína Harðardóttir
Kristín Harðardóttir
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ásmunda Ólafía Ólafsdóttir
(Ása)
áður til heimilis að Hæðargarði 35,
sem andaðist á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund
18. október, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju,
föstudaginn 4. nóvember klukkan 13.
Erna Eiríksdóttir, Bragi G. Kristjánsson,
Áshildur, Kristján, Styrmir, Guðbjörg
og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sveinbjörn Hjálmarsson
Kirkjubæjarbraut 2,
Vestmannaeyjum,
lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja
fimmtudaginn 27. október 2016.
Útförin fer fram laugardaginn 5. nóvember nk. frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum og hefst athöfnin kl. 13.00.
Erna Margrét Jóhannesdóttir
Guðrún Sveinbjörnsdóttir Gunnlaugur Claessen
Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir Sigurður Vignisson
Egill Sveinbjörnsson Guðný Þórisdóttir
Ásdís Ingunn Sveinbjörnsdóttir Kristján Þór Jakobsson
afabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ásta Ásvaldsdóttir
frá Tröð í Önundarfirði,
lést laugardaginn 29. október. Útför
hennar fer fram laugardaginn
5. nóvember kl. 14.00 frá Holtskirkju.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ásvaldur, Sigríður, Guðmundur Helgi, Sólveig Bessa,
Guðný Hildur Magnúsarbörn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Elínar Ólafíu Finnbogadóttur
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar
fyrir einstaka alúð, umhyggju og umönnun.
Helgi Valdimarsson Jóna Ólafsdóttir
Sigríður G. Valdimarsdóttir Óttar Ólafsson
Aðalheiður Valdimarsdóttir Sveinn Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar og tengdafaðir,
Þórir Haukur Einarsson
fyrrv. skólastjóri,
Fiskinesi, Drangsnesi,
andaðist föstudaginn 21. október.
Útförin fer fram frá Drangsneskapellu
laugardaginn 5. nóvember kl. 14.
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Hólmfríður Þórisdóttir Pétur Örn Pétursson
Þóra Þórisdóttir Sigurður Magnússon
Guðbjörg Þórisdóttir Ágúst Þór Eiríksson
Ásta Þórisdóttir Svanur Kristjánsson
Einar Haukur Þórisson Kristjana Pálsdóttir
og fjölskyldur.
2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m I Ð v I K U D A G U r18 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
tímamót
0
2
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
2
6
-3
F
E
C
1
B
2
6
-3
E
B
0
1
B
2
6
-3
D
7
4
1
B
2
6
-3
C
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K