Fréttablaðið - 02.11.2016, Síða 4

Fréttablaðið - 02.11.2016, Síða 4
„Bráðskemmtileg og mjög lifandi frásögn.“ E g i l l H e l g a s o n / K i l j a n „Vigdís og Sigríður sjarmera mann alveg í gegnum þessa bók ...“ E g i l l H e l g a s o n / K i l j a n „Ofboðslega heillandi ... sjarmeraði mig alveg upp úr skónum ...“ S u n n a D í s M á s d ó t t i r / K i l j a n Ævisögur vika 42 www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 heilbrigðismál Af þeim um 85.000 einstaklingum sem leituðu til bráða- móttöku Landspítala í Fossvogi hefðu allt að 13.000 þeirra í raun átt að leita til heilsugæslunnar til að leita úrlausnar vegna heilsuvanda síns. Komum á bráðamóttökuna fjölgar ár frá ári sem skýrist að hluta af fjölgun ferðamanna. Bráðamóttakan er hugsuð fyrir þá sem þurfa að leita sér aðstoðar vegna bráðra veikinda eða slysa og geta ekki beðið úrlausnar heilsu- gæslu eða á læknavakt. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðisviðs, segir að tvisvar á fimm ára tímabili hafi komur á bráðadeildina í Fossvogi verið greindar með tilliti til þessa og útkoman hafi verið sú sama í bæði skiptin. Verkferillinn er þann- ig að hjúkrunarfræðingur í móttöku forgangsraðar sjúklingum eftir því hversu slasaðir eða veikir þeir eru, um er að ræða fimm flokka kerfi. Margir sem flokkast í fjórða flokk, og allir í þeim fimmta, eru taldir geta beðið á meðan alvarlegri tilfellum er sinnt og í því ljósi fengið lausn sinna mála hjá heilsugæslunni. Guðlaug Rakel telur að undir- liggjandi ástæða þessa sé sú að það vanti skýran vegvísi um kerfið – hvert beri að leita í það og það skiptið. „Það sem fólk segir sjálft við komuna til okkar er að það fái ekki tíma í heilsugæslunni fyrr en eftir langan tíma, eða að aðgengið að þjónustunni henti ekki,“ segir Guð- laug Rakel en bætir við að unnið sé með heilsugæslunni við að vísa fólki af bráðamóttökunni þangað – og hefur gengið ágætlega. „Ef á að halda uppi vissu þjónustustigi, og það viljum við held ég öll, þá gengur ekki að biðtíminn hlaupi á nokkrum dögum. Ég held að meirihluti þessa hóps sem um ræðir komi til okkar vegna þessa. Kannski þarf breyt- ingar á þjónustustiginu í heilsu- gæslunni til að laga þetta.“ Spurð um þýðingu þessa fyrir daglegan rekstur bráðadeildarinn- ar svarar Guðlaug Rakel því til að enginn megi halda að hann sé óvel- kominn á bráðadeildina. Hins vegar taki þetta vissulega tíma starfsfólks, þó þessi hópur sjúklinga hafi yfir- leitt stuttan meðferðartíma – þó upplifun fólks sé oft að biðtíminn sé langur. Það skýrist þó af eðli starfs deildarinnar að huga fyrst að þeim sem frekast þurfa á því að halda. Eins sé það eðlileg hugsun þegar veikindi knýja dyra að leita strax þangað sem líklegast sé að fá úrlausn sinna mála, og fyrir hvern og einn sé erfitt að meta hvort veik- indi séu alvarleg eða ekki. svavar@frettabladid.is Biðin rekur fólk á bráðadeild Af þeim 85.000 sem leita á bráðadeild LSH í Fossvogi gætu ellefu til þrettán þúsund fengið úrlausn sinna mála hjá heilsugæslunni. Flestir þeirra fá ekki tíma á heilsugæslunni sem hentar. Veldur töfum og auknu 20.000 krónur má gróflega áætla að kostnaður við hverja komu sjúklings sem gæti farið á heilsugæslu sé að lágmarki - eða 360 milljónir króna á ári. Á bráðadeild LSH leituðu yfir 5.000 manns í september – yfir 800 hefðu getað leitað aðstoðar á heilsugæslu. FréttabLaðið/Ernir Okkur varðar ekkert um rauðu línuna ykkar. Það er þjóðin sem dregur rauðu línuna. Binali Yildirim forsætisráðherra 2,7 milljóna lítra kvóti var keypt- ur á 555 milljónir króna. lANDbÚNAðUr Síðasti markaður með greiðslumark mjólkur varð jafn- framt sá stærsti frá upphafi. Alls var 2,7 milljóna lítra kvóti keyptur fyrir tæplega 555 milljónir króna. Síðasti uppboðsmarkaður fór fram í sept- ember en þá voru 1,6 milljónir lítra keyptar fyrir 390 milljónir. Athygli vekur að 69 buðu fram sölu á greiðslumarki. Til viðbótar við þær 2,7 milljónir lítra sem seldust var 3,2 milljóna lítra greiðslumark sem seldist ekki. Samkvæmt breytingum á búvöru- lögum tekur við innlausnarskylda ríkisins á greiðslumarki á næstu þremur árum. Miðað er við að inn- lausnarverðið á komandi ári verði 140 krónur á hvern lítra. Það lækkar niður í 111 krónur á lítra árið 2018. – jóe Síðasti markaðurinn einnig sá stærsti TyrklAND Yfirvöld í Tyrklandi hafa handtekið ritstjóra og blaðamenn á dagblaðinu Cumhuriyet, sem er eitt fárra dagblaða stjórnarandstöðunn- ar sem enn er gefið út þar í landi. Daginn áður voru tíu þúsund opinberir embættismenn reknir á einu bretti, allir grunaðir um tengsl við Gülenista-samtökin sem tyrk- neskir ráðamenn telja bera ábyrgð á tilraun til stjórnarbyltingar í júlí. Síðan í sumar hafa meira en 40 þúsund manns verið handteknir og að minnsta kosti hundrað þús- und reknir í Tyrklandi, grunaðir um tengsl við Gülenista-samtökin. Meðal hinna handteknu og reknu eru fjölmargir dómarar, hermenn, lögreglumenn og kennarar. Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin hafa harðlega gagnrýnt handtökur blaðamanna og lokanir fjölmiðla í Tyrklandi. Martin Schulz, forseti Evrópuþingsins, sagði tyrk- nesk stjórnvöld  með þessu  hafa farið yfir enn eina „rauðu línuna“ gegn tjáningarfrelsi. Binali Yildirim forsætisráð- herra sagðist ekkert mark taka á aðfinnslum Evrópusambandsins. „Okkur varðar ekkert um rauðu línuna ykkar. Það er þjóðin sem dregur rauðu línuna,“ sagði hann. „Tyrkland fær völd sín frá þjóðinni og yrði dregið til ábyrgðar af þjóð- inni.“ Eftir byltingartilraunina í júlí lýsti Recep Tayyip Erdogan for- seti yfir neyðarástandi, sem veitir stjórnvöldum víðtækar heimildir til aðgerða gegn hverjum þeim sem grunaður er um tengsl við byltingar- mennina. Í síðasta mánuði var þetta neyðarástand framlengt um níutíu daga til viðbótar. – gb Yfirvöld í Tyrklandi þrengja enn frekar að málfrelsi í landinu innköllunarskylda ríkisins á kvóta hefst á næsta ári. FréttabLaðið/EYÞÓr Fjöldi fólks mótmælti í gær handtöku ritstjóra Cumhuriyet, sem er eitt fárra dag- blaða stjórnarandstöðunnar sem enn er gefið út í tyrklandi. FréttabLaðið/EPa 2 . N ó v e m b e r 2 0 1 6 m i ð v i k U D A g U r4 f r é T T i r ∙ f r é T T A b l A ð i ð 0 2 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 2 6 -3 A F C 1 B 2 6 -3 9 C 0 1 B 2 6 -3 8 8 4 1 B 2 6 -3 7 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.