Fréttablaðið - 02.11.2016, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Við Siggi höfum auðvitað
þekkst í nokkur ár þar sem við
erum í sama bransa, en þetta er
í fyrsta skipti sem við vinnum
svona saman og það er virkilega
gaman að vinna með honum.
Siggi er frábær,“ segir meistara-
kokkurinn Hrefna Sætran um
annan meistarakokk, Sigga Hall,
en svo skemmtilega vill til að
þau Hrefna og Siggi skipa saman
hlutverk dómara í nýjum mat-
reiðsluskemmtiþáttum sem
hefja göngu sína á Stöð 2 í kvöld.
Þættirnir nefnast Ísskápastríð og
er stýrt af Evu Laufeyju Kjaran
Hermannsdóttur og Guðmundi
Benediktssyni, eða Gumma
Ben, knattspyrnu- og íþrótta-
fréttamanninum, sem vann sig
meðal annars inn í hug og hjörtu
heimsbyggðarinnar með ástríðu-
þrungnum lýsingum sínum
á leikjum á EM í Frakklandi í
sumar.
Eins og heyra má á Hrefnu
er hún yfir sig ánægð með að fá
tækifæri til að vinna með Sigga
Hall í þessum nýju sjónvarpsþátt-
um, enda hefur hún verið aðdá-
andi hans frá unga aldri. „Þegar
ég var lítil var ég rosalega hrifin
af Sigga Hall eins og svo margir
aðrir og tók alla sjónvarpsþættina
hans upp á VHS-spólur og lá svo
heima og horfði á þá endalaust.
Ef ég var veik heima horfði ég sko
ekki á neinar teiknimyndir held-
ur matreiðsluþætti með Sigga
Hall,“ segir Hrefna og hlær. Hún
minnist ákveðins þáttar sem Siggi
sá um í sjónvarpinu um jólaleytið
þegar Hrefna var níu ára gömul,
þá þegar orðin afar áhugasamur
og metnaðarfullur kokkur þrátt
fyrir ungan aldur. „Ég var svo
uppnumin af þessum jólaþætti
hans Sigga og uppskriftunum
sem hann eldaði í honum að ég
yfirtók eldhúsið heima hjá mér
og bjó sjálf til alla réttina.“
Þau Hrefna og Siggi spjölluðu
mikið saman um kokkabransann
á meðan á upptökum á Ísskápa-
stríði stóð, en sem dómarar þátt-
arins sitja þau í bakherbergi með
sjónvarpsskjá og fylgjast með
stjórnendunum Evu Laufeyju og
Guðmundi fá til sín sinn gestinn
hvort til að elda með forrétt,
aðalrétt og eftirrétt undir tíma-
pressu. „Það er bara gaman hjá
þeim og þau heyra ekkert í okkur,
en á meðan þau elda erum við á
fullu að fylgjast með þeim elda
og mynda okkur skoðanir,“ segir
Hrefna og bætir aðspurð við að
hún sé óhrædd við að bregða sér í
hlutverk hins ofurgagnrýna dóm-
ara. „Þegar málið snýst um mat
vil ég að hlutirnir séu í lagi. En
ég reyni líka að koma með upp-
byggilega gagnrýni. Gummi Ben
var til dæmis ekkert sérstaklega
sleipur í eldhúsinu í byrjun en
varð mun betri eftir því sem leið
á upptökur á þáttunum. Hann var
mjög duglegur og hlustaði vel á
það sem við höfðum að segja.“
Hrefna er auðvitað enginn
nýgræðingur í sjónvarpi, en hefur
þó ekki sest í dómarasæti í slíkum
þætti fyrr. „Hingað til hef ég verið
ein að elda í mínum þáttum, bara
ég og myndavélin, en nú er kom-
inn annar dómari og þáttastjórn-
endur og gestir í sal, sem gerir
þetta allt mun stærra að umfangi
og líka skemmtilegra. Sumir þætt-
irnir eru í raun bara eitt risastórt
hláturskast,“ segir Hrefna, sem
keppti í ótal matreiðslukeppnum
með íslenska kokkalandsliðinu á
tíu ára tímabili og hefur líka dóm-
araréttindi til að dæma í slíkum
keppnum. Spurð hvort hún hafi
fylgst með erlendum matreiðslu-
keppnisþáttum í gegnum tíðina
segist hún hafa gert töluvert af
því þegar slíkir þættir fóru fyrst
að njóta vinsælda fyrir mörgum
árum, en geri lítið af því lengur.
„Þegar þessar þáttaraðir eru
farnar að teygja sig upp í tíu
seríur eða meira er það orðið svo-
lítið mikið af endurteknu efni. Svo
eru líka flestir af þessum þáttum
framleiddir í Bandaríkjunum og
þar eru allir grátandi ef dómar-
arnir eru harkalegir. Það er dálítið
ofnotað og ekki skemmtilegt sjón-
varpsefni að mínu mati,“ segir
Hrefna Sætran að lokum. – kjg
Dæmir með
æskuhetjunni sinni
Meistarakokkarnir Hrefna Sætran og Siggi Hall bregða sér í hlut-
verk dómara í matreiðsluskemmtiþáttunum Ísskápastríð sem hefja
göngu sína í kvöld. Hrefna hefur verið aðdáandi Sigga frá unga aldri.
Hrefna Sætran segir það hafa verið frábært að vinna með Sigga Hall við þættina Ísskápastríð. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR
Það er bara gaman
hjá Þeim og Þau
heyra ekkert í okkur, en á
meðan Þau elDa erum við á
fullu að fylgjast með Þeim
elDa og mynDa okkur
skoðanir.
ALLTAF VIÐ HÖNDINA
Þú getur lesið
Fréttablaðið í heild
sinni á Vísi og í
Fréttablaðs-appinu
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
www.husgagnahollin.is
558 1100
Allir sófar á taxfree tilboði*
* Taxfree tilboðið gildir bara á sófum og
jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt
af söluverði.
Afslátturinn er alfarið á kostnað
Húsgagnahallarinnar.
SÓFAR
TAXFREE
KIRUNA
Þriggja sæta sófi.
Dökkgrátt slitsterkt áklæði.
Stærð: 227 x 90 x 78 cm 80.637 kr. 99.990 kr.
Bæklingurinn
kemur með
Póstinum í dag
EASY
Nettur og skemmtilegur tungusófi. Tunga
getur verið bæði vinstra og hægra megin.
Dökk- eða ljósgrátt áklæði.
Stærð: 232 x 145 x 85 cm 145.153 kr. 179.990 kr.
DEVON
Horntungusvefnsófi. Geymsla undir tungu og í armi.
Stærð: 244 x 225 x 82 cm
217.734 kr.
269.990 kr.
2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m I Ð v I K U D A G U r30 L í f I Ð ∙ f r É T T A b L A Ð I Ð
0
2
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
2
6
-3
6
0
C
1
B
2
6
-3
4
D
0
1
B
2
6
-3
3
9
4
1
B
2
6
-3
2
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K