Fréttablaðið - 04.10.2016, Side 6
Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis
tilkynnir:
Framboðsfrestur til alþingiskosninga 29. október 2016 rennur
út 14. október 2016, kl. 12:00 á hádegi.
Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis tekur á móti fram
boðs list um fimmtudaginn 13. október 2016, kl. 10:0013:00
í Setbergi, sal á 2. hæð í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.
Á framboðslistum skulu vera nöfn 20 frambjóðenda, hvorki
fleiri né færri. Tilgreina skal skýrlega nafn frambjóðanda,
kenni tölu hans, stöðu eða starfsheiti og heimili. Listanum skal
fylgja skrifl eg yfirlýsing allra frambjóðenda um að þeir hafi
leyft að setja nöfn sín á listann.
Þá skal fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann og
fyrir hvaða stjórnmálasamtök listinn er borinn fram frá kjós
endum í Norðausturkjördæmi. Fjöldi meðmælenda skal vera
að lágmarki 300 en 400 að hámarki. Við nöfn meðmælenda
skal greina kennitölu og heimili. Vakin er sérstök athygli á að
afhenda skal yfirkjörstjórn frumrit meðmælendalista, á tölu
settum blaðsíðum í framhaldandi röð.
Til að flýta fyrir yfirferð og vinnslu er mælst til þess að
meðmælendalistar verði skráðir með rafrænum hætti á þar
til gerðu vefsvæði á www.island.is áður en þeim er skilað til
yfirkjörstjórnar.
Loks skal fylgja framboðslista skrifleg tilkynning frá fram
bjóð endum listans, hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans
í kjördæminu.
Framboðslistar verða úrskurðaðir á fundi yfirkjörstjórnar
sem haldinn verður í Setbergi, Menningarhúsinu Hofi á
Akureyri, laugardaginn 15. október 2016, kl. 16:00.
Meðan kosning fer fram, laugardaginn 29. október 2016,
verður aðsetur yfirkjörstjórnar Norðausturkjördæmis í Verk
menntaskólanum á Akureyri en talning atkvæða fer fram í sal
Brekkuskóla við Skólastíg á Akureyri að loknum kjörfundi.
Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis
28. september 2016
Gestur Jónsson oddviti
Inga Þöll Þórgnýsdóttir
Ólafur Rúnar Ólafsson
Katý Bjarnadóttir
Ólafur Arnar Pálsson
Súlnasalur - Hótel Sögu
6. október 2016 kl. 19:00
Húsið opnar kl. 18:30
Hver miði er einnig happdrættismiði
Miðasala á skrifstofu Samhjálpar
Miðaverð kr. 7500
Sími 561 1000
Hlíðarsmári 14 • 201 Kópavogur • Sími 561 1000 • www.samhjalp.is
ALLTAF VIÐ HÖNDINA
Þú getur lesið
Fréttablaðið í heild
sinni á Vísi og í
Fréttablaðs-appinu
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
Brugðið á leik við þingsetningu
Störf breska þingsins hefjast í október með guðsþjónustu í Westminster Abbey. Dómarar taka þátt í athöfn-
inni. Einn þeirra ákvað að bregða á leik og taka sjálfu þegar athöfnin fór fram í gær. Fréttablaðið/EPa
SAMFÉLAG Íslensk kona bíður nú
staðfestingar á því að fá heimsmet
skráð í Heimsmetabók Guinness.
Heimsmetið er í óvenjulegri kant-
inum en það felst í því að ferðast
rúmlega 2.500 kílómetra á smá-
mótorhjóli.
Ferðalag Sigríðar Ýrar Unnarsdótt-
ur hófst í Ohio-ríki í byrjun septem-
bermánaðar og lauk 17. september
í Nýju-Mexíkó. Með í för voru þrír
Bandaríkjamenn. Tveir þeirra tóku
einnig þátt í að setja metið en sá
síðasti ók fylgdarbíl hópsins.
„Til að byrja með gekk þetta mjög
vel þó undirbúningurinn hafi verið
mikil pappírsvinna,“ segir Sigríður. Á
níunda degi af tólf tók að halla örlítið
undan fæti. Tveir samferðamenn
hennar skaðbrenndust í mikilli sól
og sá þriðji meiddi sig á kaktus. Sjálf
hlaut Sigríður skurð á fæti þegar hún
datt af hjóli sínu. „Það voru saumuð
nokkur spor sem síðan rifnuðu upp
þegar ég settist á hjólið á ný.“
Hrakfarirnar stöðvuðu þau ekki og
komst hópurinn að lokum á leiðar-
enda. Þess er nú beðið að starfsmenn
Guinness staðfesti það að fyrra met
hafi verið slegið. Það met er 718 kíló-
metrar og var sett árið 2009. „Við
skráðum för okkar með GPS-tækj-
um og myndavélum. Þá geymdum
við allar kvittanir og allt sem okkur
áskotnaðist á leiðinni. Í raun gerðum
við allt í samræmi við það sem okkur
var sagt í upphafi frá Guinness.“
Sigríður segir að það geti tekið allt
að tólf vikur að fá staðfest að fyrra
heimsmet hafi verið slegið en boðið
er upp á flýtimeðferð sé þess óskað.
„Við eigum von á niðurstöðu á allra
næstu dögum. Ég trúi ekki öðru en að
þetta fáist staðfest.“
Aðspurð um hvort hún hafi í
hyggju að reyna við fleiri heimsmet
segir hún að það sé aldrei að vita.
„Ég er nú þegar með nokkur áhuga-
verð í huga en það verður að koma í
ljós hvað verður úr því,“ segir Sigríð-
ur að lokum. johannoli@frettabladid.is
Fór 2.500 kílómetra á
pínulitlu mótorhjóli
Sigríður Ýr Unnarsdóttir lagði í nokkuð óvenjulega ferð í septembermánuði en
þá freistaði hún þess að komast í Heimsmetabók Guinness. Ferðalagið er nú á
enda en þess er beðið að metið fáist staðfest af starfsmönnum Guinness.
Sigríður Ýr Unnarsdóttir á hjóli sínu ásamt föruneyti. alls ferðuðust þau 2.500 kíló-
metra á smáhjólunum en ferðin tók tólf daga. MYND/MiKE rEiD
4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r6 F r É t t I r ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
1
7
-1
0
-2
0
1
6
0
9
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
F
5
-0
8
A
8
1
A
F
5
-0
7
6
C
1
A
F
5
-0
6
3
0
1
A
F
5
-0
4
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K