Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.10.2016, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 04.10.2016, Qupperneq 18
4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r4 Nú hafa vísindamenn fundið mögu- lega lausn á þessu. Hægt er að losna við lyktina af hvítlauknum með því að borða epli, jöklasalat eða mintu- blöð eftir að hvítlaukur hefur verið borðaður. Rannsóknin fór fram við háskólann í Ohio í Bandaríkj- unum. Vísindamenn gáfu þátttak- endum þrjú grömm af hvítlauks- bátum sem þeir áttu að tyggja í 25 sekúndur. Mælingar áttu sér stað með því að þátttakendur voru látn- ir blása í rör á meðan þeir borðuðu hvítlaukinn. Eftir að hvítlauknum hafði verið kyngt fengu þátttakend- ur mismunandi matvæli sem þeir áttu að tyggja í 20 sekúndur. Þeir borðuðu epli, bökuð epli, salat, bæði hrátt og eldað, fersk mintublöð eða drukku eplasafa, safa með mintu og grænt te. Einn hópurinn fékk aðeins vatn og var hann notaður til viðmiðunar. Mælingin í heild tók 60 mínútur. Rannsóknin sýndi að öll matvælin nema grænt te höfðu áhrif á þetta lyktarefni. Fersk epli (óbakað), ferskt jöklasalat og mintublöð höfðu mest áhrif á efnin í hvítlauknum. Þetta þrennt hefur líka hátt innihald af fenóli. Vísinda- menn komust að þeirri niður stöðu að epli, salat og minta losar fólk við vondu hvítlaukslyktina. Epla- og mintusafar höfðu einnig áhrif en ekki eins mikil og ferskmetið. Ef þú ætlar að borða mat með miklum hvítlauk er sniðugt að fá sér smá epli í eftirrétt. Eins og flestir vita er hvítlauk- ur afar hollur. Hann er ríkur af and oxunarefnum, B- og C-víta- míni, járni, fosfór, kalki og magn- esíum. Sagt er að ef fólk borðar tvö hrá hvítlauksrif á dag sé það allra meina bót fyrir heilsuna. Flestum finnst þó hvítlaukurinn betri eftir að hann hefur verið eldaður. Bak- aður hvítlaukur er til dæmis afar ljúffengur með brauði. Hvítlaukssmjör Hvítlaukssmjör er mjög gott með bökuðum kartöflum eða brauði. Það er einfalt að útbúa. 1 búnt steinselja 2 stór hvítlauksrif 1 pakki mjúkt smjör Nýmalaður pipar Skolið steinseljuna og hakkið hana mjög smátt. Pressið hvítlaukinn út í smjörið og hrærið steinselju saman við. Dreifið pipar yfir. Geymið smjör- ið í ísskáp þar til það verður notað. spagettí með Hvítlauk og cHilli-pipar Spagettí með hvítlauk og chilli-pipar er vinsæll réttur á Ítalíu. Það er mjög einfalt að útbúa þennan rétt. Hann er bæði ljúffengur og ódýr. Upp- skriftin miðast við tvo. 200 g spagettí 5-6 stór hvítlauksrif 1 chilli-pipar, stór eða lítill eftir smekk 5-6 msk. gæða- jómfrúarólífuolía 1 búnt steinselja, smátt skorin Nýmalaður pipar Parmesanostur Sjóðið spagettí í söltu vatni eftir leiðbeiningum. Skerið chilli-pip- ar og hvítlauk smátt. Það tekur stutta stund að gera hvítlaukssós- una svo gott er að gera hana rétt áður en suðutíma lýkur á spagettí- inu. Hitið olíu á pönnu undir miðl- ungshita. Steikið hvítlauk og chilli- pipar en passið að brenna ekki. Setj- ið soðna spagettíið beint á pönnuna og látið allt blandast vel saman. Það má bæta við olíu eða pastavatni ef þörf er á. Þá er steinselju, nýmöl- uðum pipar og parmesanosti dreift yfir. Gott er að bera fram brauð með þessum rétti og nota það til að þrífa upp alla olíuna af diskinum. Hvítlauksrækjur Einn vinsælast tapas-rétturinn á Spáni er hvítlauksrækjur, gambas al ajillo, en réttinn er einfalt að gera. Allir tapas-staðir bjóða upp á hvít- lauksrækjur og þær eru bornar fram kraumandi heitar í hvítlauks- olíu. Uppskriftin er fyrir fjóra, frek- ar sem forréttur en aðalréttur þar sem tapas- réttir eru yfirleitt nokkr- ir á borðum. 500 g risarækjur 125 ml góð jómfrúarolía 10 stór hvítlauksrif 1 msk. chilli-flögur 60-89 ml koníak eða þurrt sérrí (má sleppa) 3 msk. steinselja, smátt skorin 1 sítróna, bara safinn Salt og pipar Snittubrauð er borið fram með réttinum Hitið olíu á þykkbotna pönnu undir meðalhita. Setjið hvítlauk og chilli- flögur út í olíuna og látið aðeins brúnast, passið að brenna ekki hvít- laukinn. Stillið nú á hæsta hita og setjið rækjurnar út á pönnuna ásamt sítrónusafa og koníaki, hrærið á meðan rækjurnar taka lit, um það bil 3 mínútur. Saltið, piprið og skreytið diskinn með sítrónubáti. Takið af hit- anum og berið strax fram sjóðandi heitt með brauði. Hvítlaukur er allra meina bót Fólk annaðhvort elskar eða hatar hvítlauk. Flestir eru þó sammála um slæma andremmu sem hvítlaukur getur valdið eftir að hans hefur verið neytt. Hvítlaukslyktin getur verið viðvarandi í sólarhring. Ljúffengt spagettí með hvítlauk. Einfalt og ódýrt. MYND/GEttY Einn frægasti tapas-réttur Spánverja er hvítlauksrækjur. F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A Ð ∙ h e I l s A 1 7 -1 0 -2 0 1 6 0 9 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A F 5 -1 2 8 8 1 A F 5 -1 1 4 C 1 A F 5 -1 0 1 0 1 A F 5 -0 E D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.