Fréttablaðið - 04.10.2016, Page 20
Varla líður það ár sem verka-
menn í verksmiðjum Hyundai
í S-Kóreu fara ekki í verkfall í
styttri eða lengri tíma. Fyrir því
fengu eigendur Hyundai að finna
í síðasta mánuði þegar allir verka-
menn í verksmiðj um Hyundai í
landinu fóru í verkfall í einu og er
það í fyrsta sinn í 12 ár sem svo
víðtækt verkfall er boðað. Ástæða
verkfallsins er sú að samninga-
umleitanir um launahækkun
starfsmanna hafa strandað með
öllu, en þær hafa staðið yfir í allt
sumar. Áður höfðu starfsmenn Hy-
undai boðað til tímabundinna og
staðbundinna verkfalla í ýmsum
verksmiðjum Hyundai af sömu
ástæðu, en vinnustöðvunin nú
hefur valdið 114.000 bíla tapaðri
framleiðslu. Það hefur orsakað
framleiðslutap upp á 259 milljarða
króna sem komið er, en vinna er
þó hafin aftur í verksmiðjunum.
Yfir eigendum vofa þó enn fleiri
vinnustöðvanir, ef ekki semst.
Gera ráð fyrir 170.000
bíla tapaðri framleiðslu
Ljóst er að uppgjör Hyundai fyrir
þriðja fjórðung þess árs verður
ekki kræsilegt. Áframhaldandi
vinnustöðvanir gætu einnig haft
veruleg áhrif á uppgjör fjórða
ársfjórðungs. Á þessu ári hefur
Indland tekið fram úr S-Kóreu
sem fimmta stærsta bílafram-
leiðsluland heims og hækkandi
framleiðslukostnaður í S-Kóreu
gæti hæglega fært landið enn
neðar á þeim lista á næstu árum,
enda fer samkeppnishæfni lands-
ins í bílaframleiðslu þverrandi
með síhækkandi launum. Hyundai
og Kia áætluðu að framleiða 8,13
milljónir bíla í ár, en þessi verkföll
hafa fært þá spá niður í 7,96 millj-
ón bíla. Á síðustu 29 árum hafa
aðeins verið 4 ár þar sem ekki
hafa verið verkföll í verksmiðjum
Hyundai í S-Kóreu.
Enn eitt verkfallið hjá Hyundai
Þeir voru heldur betur ókátir
hluthafarnir í Volkswagen þegar
hlutabréfaverð í Volks wagen
hrundi við dísilvélahneyksli
fyrir tækisins síðastliðið haust.
Þeir fara nú fram á myndarleg
ar bætur fyrir misgjörðir Volks
wagen og nema kröfur þeirra 8,2
milljörðum evra, eða 1.055 millj
örðum króna. Alls hafa 1.400
kærur birst Volkswagen vegna
dísilvélahneykslisins og komu
750 þeirra inn á borð dómstóla
í Brunswick í nágrenni höfuð
stöðva Volkswagen í Wolfsburg
á einum degi, þ.e. daginn sem
eitt ár var liðið frá uppgötv
un hneykslisins í síðasta mán
uði. Sá dagur markaði þau tíma
mót að hann var síðasti dagur
inn sem hægt var að leggja inn
kærur vegna málsins. Volks
wagen hefur nú þegar sam
þykkt að greiða 16,5 milljarða
dollara kröfur frá Bandaríkjun
um, eða sem nemur 1.903 millj
örðum króna. Hlutabréf í Volks
wagen féllu um 35% þegar upp
komst um dísilvélahneykslið
og það sætta hluthafar í Volks
wagen sig ekki við og vilja bætur
vegna þess.
Hluthafar í Volkswagen vilja
1.055 milljarða í bætur
Frá höfuðstöðvum Volkswagen í Wolfsburg í Þýskalandi.
Volkswagen hefur unnið að smíði
nýs jeppa sem meiningin er að
markaðssetja í Bandaríkjun
um, en einnig í Kína og líklega
fyrst þar. Það má merkja af því
að þessi mynd náðist af jeppanum
án feluklæða í Kína um daginn.
Í Kína fær bíllinn nafnið Tera
mont en þessi bíll er býsna líkur
Croosbluetilraunabílnum sem
Volkswagen sýndi fyrst á bíla
sýningunni í Detroit árið 2013.
Hann er með sömu LEDfram
ljósin og Crossblue, en afturljósin
hafa breyst úr því að vera hring
laga í teygðari ljós sem einnig eru
með LEDtækni. Bíllinn er greini
lega með V6vél en merki um það
er aftan á bílnum, en líklega er
það sama 3,6 lítra vélin sem finna
má í Passat í Bandaríkjunum.
Engu að síður er líklegt að bíll
inn verði einnig í boði með fjög
urra strokka vél með forþjöppu
og síðar meir með tengiltvinnafl
rás. Bíllinn sem myndir náðust af
í Kína er leðurklæddur að innan
og frekar ríkulegur. Í fyrri áætl
unum Volkswagen var meining
in að markaðssetja þennan jeppa
í Bandaríkjunum, og verður hann
þar í boði með þriðju sætaröðinni,
fljótlega á næsta ári og á hann að
hífa upp dræma sölu Volkswagen
bíla þar í landi. Sala Volkswagen
bíla í Bandaríkjunum hefur verið
dræm frá uppgötvun dísilvéla
svindls Volkswagen.
Nýi Volkswagen-jeppinn í Kína
Þessi mynd náðist af nýja Volkswagen-jeppanum í Kína. Hjólbarðar eru það eina á bíln
um sem snertir veginn og því
er mikil vægt að þeir séu í góðu
ástandi. Sturla Pétursson, fram
kvæmdastjóri Gúmmívinnustof
unnar, segir að góðir hjólbarðar
auki öryggi bílsins til muna hvort
sem það er vetur eða sumar. „Ör
yggi bílsins byggist á góðum hjól
börðum. Það er mikilvægt að
huga reglulega að dekkjunum og
skoða mynsturdýpt, loftþrýsting
og almennt ástand þeirra. Nýleg
reglugerð segir að mynsturdýpt
dekkja verði að vera að minnsta
kosti 3 millimetrar yfir vetur
inn, þ.e. frá 1. nóvember til 14.
apríl. Yfir sumartímann á dýptin
að vera lágmark 1,5 millimetrar,“
segir Sturla og bætir við að það
sé ýmislegt sem þurfi að huga að
varðandi dekkin.
Loftþrýstingur þarf að vera réttur
„Loft í dekkjum þarf að vera
hæfilegt til að aksturseiginleik
ar bílsins haldist réttir. Gott er að
athuga loftþrýstinginn á dekkjun
um reglulega. Réttur loftþrýsting
ur eykur endingu dekkjanna. Það
þarf að vera sami loftþrýstingur
á dekkjum sama áss. Of mikið eða
of lítið loft slítur dekkjunum og
getur valdið hættu við akstur. Þá
er mikilvægt að láta jafnvægis
stilla dekkin. Svo er oft ágætt að
hreinsa dekkin á veturna. Ef það
hefur verið mikill snjór og hálka
er ágætt að nota tjöruhreinsi til
að hreinsa tjöruna sem myndast.
Þeir sem eru á heilsársdekkjum
ættu að láta skipta á milli fram
og afturdekkja með reglulegu
millibili svo þeir klári ekki annað
hvort parið. Framdekkin eyðast
meira á framhjóladrifnum bílum
og afturdekkin á afturhjóladrifn
um bílum,“ segir Sturla.
Harðskelja- og harðkornadekk
í sókn
Það er ekki síst mikilvægt að vera
með dekkin á hreinu fyrir vetur
inn enda versnar þá færð með
snjó og hálku og götur verða erf
iðari yfirferðar.
„Harðskelja og harðkorna
dekkin hafa verið vinsæl á undan
förnum árum. Þau hafa verið að
koma talsvert inn í staðinn fyrir
nagladekkin sem hafa verið á
undanhaldi síðustu ár. Annars eru
það þeir sem keyra mikið úti á
landi sem frekar velja nagladekk
in enda meiri þörf á að vera á
þeim þar. Nagladekkin hafa meira
grip og nýtast sérlega vel á þeim
stöðum þar sem er mikill snjór
og lítið rutt. Þau ná að rífa meira
og eru auðvitað best við ákveðn
ar aðstæður eins og t.d. þegar er
svokallað „black ice“ þegar er
rigning og það frystir að kvöldi
og það myndast lúmsk hálka,“
segir Sturla.
Dekkin alltaf að verða betri
Hann segir að það sé komið mjög
gott grip í flest vetrardekkin
eða heilsársdekkin, eins og má
kalla þau, sérstaklega frá bestu
framleiðendum. „Við leggjum
mikla áherslu á að bjóða upp á
gott úrval af vönduðum vetrar
dekkjum. Við höfum lagt áherslu
á Hankookdekkin, bæði negld
og ónegld. Hankook hefur verið
að koma mjög vel út í gæðapróf
unum. Hankook er að koma með
nýtt munstur í kornadekkin og
bíðum við mjög spenntir eftir
þeim. Í jeppadekkjum munum
við bjóða upp á nýja línu dekkja
frá Mastercraft og það er einnig
mikil spenna fyrir þeim. Búið er
að uppfæra öll dekkin frá Master
craft til að bæta aksturseigin
leika þeirra. Við erum einnig með
dekk frá öðrum þekktum fram
leiðendum eins og Mich elin, Go
odyear og Toyo. Það eru að koma
ný munstur á þriggja ára fresti
og dekkin alltaf að verða betri.
Þetta er bara eins og með bílana.
Það koma ný módel sem eru upp
færð og betri en þau eldri,“ segir
Sturla.
Hvellur þegar fyrsta frostið kemur
Gúmmívinnustofan er eitt elsta
hjólbarðaverkstæðið á höfuð
borgarsvæðinu en það var stofn
að árið 1960. Þrír ættliðir hafa
rekið Gúmmívinnustofuna en
það er Halldór Björnsson, afi
konu Sturlu, sem stofnaði fyrir
tækið. Sturla er búinn að standa
vaktina í 30 ár eða síðan hann
var 18 ára gutti og hefur verið
eigandi og framkvæmdastjóri sl.
15 ár. „Þótt við einblínum mest
á hjólbarða þá erum við með raf
geyma og bremsu klossaskipti.
Svo erum við að bjóða upp á
fría ástandsskoðun á hjólbörð
um þannig að það er um að gera
fyrir fólk að nýta sér það,“ segir
Sturla. Það koma miklir álags
tímar á vorin og haustin í hjól
barðageiranum þegar veður
skipast fljótt í lofti. Sturla segir
að meira álag sé á haustin þegar
veður versnar og jafnvel mjög
skyndilega. „Það kemur hvell
ur þegar fyrsta frostið kemur
á haustin. Þá verður allt vit
laust að gera og menn vinna hér
mjög langan vinnudag í miklum
hasar,“ segir Sturla og er tilbú
inn fyrir veturinn.
Góðir hjólbarðar
auka öryGGi bílsins
Full ástæða er til að hvetja fólk til að huga að vetrardekkj-
unum þegar fyrstu frostin og snjórinn nálgast og ekki síður
til að losna við langar biðraðir. Best er að bregðast við strax.
Sturla Pétursson, framkvæmdastjóri Gúmmívinnustofunnar, hress að vanda.
www.visir.is/bilar
BíLar Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Sími 512 5457
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
bílar
Fréttablaðið
2 4. október 2016 ÞRIÐJUDAGUR
1
7
-1
0
-2
0
1
6
0
9
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
F
5
-0
D
9
8
1
A
F
5
-0
C
5
C
1
A
F
5
-0
B
2
0
1
A
F
5
-0
9
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K