Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.10.2016, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 04.10.2016, Qupperneq 30
Allar líkur eru til þess að Merce- des-Benz verði stærsti lúxusbíla- sali heims í ár og hrifsi þann titil af BMW sem haldið hefur honum í mörg ár. Sala Benz jókst um 12% í ágúst en sala BMW um 5%. Benz seldi 156.246 bíla í mánuð- inum en BMW 142.554. Við það jókst munurinn milli fyrirtækj- anna úr 30.442 bílum í 44.124. Benz hefur alls selt 1,32 millj- ón bíla í ár en BMW 1,28 milljón. Audi hefur selt 1,23 milljón bíla og vöxturinn þar á bæ var að- eins 2,9% í ágúst og 132.350 seld- ir bílar. Mercedes Benz naut gríð- armikillar sölu nýs E-Class bíls í ágúst, sem og góðrar sölu í GLA- og GLC-bílunum og 25% vaxtar í sölu í Kína. Sala jeppa og jepp- linga Benz jókst um 40% á milli ára í ágúst. Mikil eftirspurn er reyndar líka eftir BMW X3 jepp- lingnum og jókst sala hans um 30% í ágúst og um 9,9% og 11% í X4- og X5-bílunum. Benz eykur enn forskotið á BMW  Hatrömm barátta Benz og BMW. Kraftaútgáfa Ford F-150 heit- ir Raptor og hefur verið fram- leiddur frá árinu 2009. Hann hefur hingað til verið í boði með 5,4 eða 6,2 lítra V8 vélum, 310 og 411 hestöfl. Nýjasta gerð Rapt- or verður hins vegar með miklu minni en samt mun öflugri vél. Það er 3,5 lítra V6 Eco Boost vél sem tengist 10 gíra sjálfskipt- ingu, en eldri gerð bílsins var með ansi úrelta 6 gíra sjálf- skiptingu. Nýja vélin togar 691 Nm, er 450 hestöfl sem dugar til að draga allt að 3.628 kg farm. Þessi nýja gerð Ford F-150 Rapt- or var fyrst kynnt á bílasýning- unni í Detroit í fyrra, en nú er bíllinn fyrst að koma á markað. Ford F-150 Raptor af eldri gerð- inni kostaði um 42.000 dollara en Ford hefur ekki gefið upp verð nýja bílsins. Ford Raptor 450 hestöfl og með 691 Nm tog Peugeot ætlar greinilega að leggja allt í sölurnar til að verja sigur sinn í Dakar-þolakstrinum í ár. Það verður gert með nýjum bíl sem byggður er á nýjum Peugeot 3008 bíl sem kynntur verður á bílasýningunni í París í þessum mánuði, ásamt þessum keppnisbíl. Sigurbíllinn frá Peugeot í ár var hins vegar byggður á 2008 bílnum og honum var ekið af Stephane Peterhansel. Nýja bílnum verður hins vegar fyrst ekið af Carlos Sainz í rallaksturskeppni í Marokkó seinna í þessum mánuði. Miklar breytingar hafa orðið á keppnisbíl Peugeot og þeir agnúar sniðnir af gamla bílnum sem fyrirfundust í síðustu Dakar-keppni. Bíllinn veður áfram með V6 dísilvél með tveimur forþjöppum, en þó af minni gerð, í takt við nýjar reglur í Dakar-keppninni. Það verður ekki annað sagt en að þessi nýi keppnisbíll Peugeot sé kraftalegur og flottur og vænlegur til árangurs í Dakar- keppninni í janúar næstkom- andi. Peugeot kynnir nýjan Dakar-keppnisbíl Ford Raptor eykur aflið. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Fjölbreyttar leiðir í bílafjármögnun Landsbankinn býður góð kjör, fjölbreyttar leiðir og allt að 80% fjármögnun við kaup á nýjum og notuðum bílum. Kynntu þér allt um bílalán á landsbankinn.is/bilalan. Lánshlutfall allt að 80% Allt að 7 ára lánstími Betri kjör fyrir viðskiptavini Bílar Fréttablaðið 12 4. október 2016 ÞRIÐJUDAGUR 1 7 -1 0 -2 0 1 6 0 9 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A F 5 -1 2 8 8 1 A F 5 -1 1 4 C 1 A F 5 -1 0 1 0 1 A F 5 -0 E D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.