Fréttablaðið - 04.10.2016, Side 42
Kúnstpásutónleikar Íslensku óperunnar njóta sívaxandi vinsælda. Tónleikarnir eru
haldnir í hádeginu á þriðjudögum í
Norðurljósasal Hörpu og er aðgang-
ur er ókeypis. Þar gefst því skemmti-
legt tækifæri fyrir óperuunnendur
sem og þá sem eru að byrja að feta
þá braut til að kynna sér formið á
stuttum en skemmtilegum tón-
leikum.
Forever Young er yfirskrift
annarra hádegistónleika
Kúnstpásuraðar á þessu hausti
en þar koma fram þær Bylgja
Dís Gunnarsdóttir sópran-
söngkona og Hrönn Þráins-
dóttir píanóleikari. Bylgja
Dís segir að dagskráin að
þessu sinni sé nokkuð
óhefðbundin en á efnis-
skránni verða nokkur fjölbreytt
og falleg sönglög eftir bandarísk
tónskáld frá 20. og 21. öld, m.a.
tvö mögnuð lög eftir
John Corigliano við
ljóð Bobs Dylan;
Chimes of Free-
dom og Forever
Young. Áður en
að þeim kemur verða flutt lög eftir
nokkra af áhrifavöldum þeirra. Má
þar nefna Samuel Barber, Aaron
Copland og Kurt Weill.
„Þessi tvö lög sem Corigliano
samdi við ljóð Dylans eru tiltölulega
nýsamin og lögin sem fljóta með eru
áhrifavaldar þeirra laga. Corigliano
hafði ekki heyrt lög Dylans þegar
hann las ljóðin og það er
gaman að því hvað
þessi ljóð falla vel
að tónmáli hans.
Útkoman er þann-
ig að maður sér
þessi fallegu ljóð
í aðeins nýju ljósi
og það er alltaf
skemmtilegt.“
Bylgja Dís segir að það hafi nú
ekki verið planið að tengja saman
efnisskrána og friðarþemað sem er
í gangi í borginni um þessar mundir
en að það sé þó tilvalið að gera það.
„Chimes of Freedom er til að mynda
þannig lag og texti að það fellur
ákaflega vel að þessu þema. Þarna
er ríkjandi sú tilfinning að finna til
með þeim sem minna mega sín og
það er okkur öllum hollt.
Þessir tónleikar henta líka alltaf
sérstaklega vel þeim sem eru að
byrja að kynna sér óperutónlistina.
Það er alltaf rosalega vel mætt og
skemmtileg stemning á þessum
tónleikum og Norðurljósasalurinn
rammar þetta fallega inn. Það er
hátíðlegt að koma í hádeginu, njóta
listarinnar og anda aðeins í dagsins
önn.“
Lög Bobs Dylan í nýju ljósi
Leikhús
horft frá brúnni
HHHHH
eftir Arthur Miller
Þjóðleikhúsið
Leikstjóri: Stefan Metz
Leikarar: Arnar Jónsson, Baldur
Trausti Hreinsson, Baltasar Breki
Samper, Hallgrímur Ólafsson, Harpa
Arnardóttir, Hilmir Snær Guðnason,
Lára Jóhanna Jónsdóttir, Snorri Engil-
bertsson, Stefán Hallur Stefánsson
Leikmynd og búningar: Sean
Mackaoui
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Hljóðhönnun og hljóðmynd: Elvar
Geir Sævarsson
Þýðing: Sigurður Pálsson
Horft frá brúnni eftir Arthur Miller
var frumsýnt á Broadway fyrir sex-
tíu árum og nú má sjá það á fjölum
Þjóðleikhússins, í fjórða skiptið,
enda einstaklega gott leikverk sem
vert er að sýna reglulega. Leikstjór-
inn Stefan Metz og hönnuðurinn
Sean Mackaou taka höndum saman
á ný og freista þess að endurtaka
smellinn sem þeir framleiddu með
Eldrauninni, líka eftir Miller.
Leikverkið fjallar um ástir og átök
ítalskra hafnarverkamanna í Brook-
lyn. Hjónin Eddie og Beatrice Car-
bone hafa alið upp Katrínu, systur-
dóttur Beatrice, nánast sem sína
eigin. En með komu tveggja ólög-
legra innflytjenda sem hjónin veita
húsaskjól vella óþægilegar tilfinn-
ingar upp á yfirborðið. Miller taldi,
og vildi sýna með þessu verki, að
leikrit yrðu að innihalda heildræna
túlkun á samfélaginu og manneskj-
unni í veröldinni. Þau gætu hvorki
verið of sjálfhverf né táknræn.
Hilmir Snær Guðnason gerir
aðra atlögu að einu af höfuðhlut-
verkum Millers. Nú tekst hann á
við hinn stolta Eddie sem berst
á móti breytingum en neitar að
horfast í augu við sitt eigið tilfinn-
ingarót. Hilmir leikur Eddie ágæt-
lega en aldrei af ástríðu. Hann slær
ekki frá sér fyrr en hann er gjörsam-
lega innikróaður en nær aldrei að
brjótast í gegnum glerhjúpinn sem
virðist umlykja leik hans.
Lögfræðinginn hr. Alfieri leikur
Arnar Jónsson en hans viðvera í
verkinu verkar nánast líkt og kór-
arnir í forngrískum leikverkum:
Hann bæði rammar inn söguna
og tjáir sig um þróun mála. Arnar
leikur af öryggi og er nánast eins
manns kór. Harpa Arnardóttir
leikur Beatrice af mikilli næmni
en heldur sér þó aðeins of mikið til
hlés. Málamiðlunin verður ofan á
frekar en ástin.
Katrínu leikur Lára Jóhanna
Jónsdóttir en hún er sakleysið og
barnslega einlægnin uppmáluð.
Raddbeiting Láru Jóhönnu er ekki
nægilega góð en hún virðist anda
línunum frá sér frekar en að segja
þær. Snorri Engilbertsson leikur
gleðigosann Rodolfo sem heillar
Katrínu upp úr skónum og Stefán
Hallur Stefánsson leikur Marco,
eldri bróður Rodolfos. Hvorugur
þróast með sýningunni heldur leika
þeir nánast alltaf í sama taktinum
en skila sínu.
Þeir Baltasar Breki Samper, Hall-
grímur Ólafsson og Baldur Trausti
Hreinsson sinna minni, en þó mik-
ilvægum, hlutverkum og ferst það
þokkalega úr hendi.
Fagurfræði virðist eiga allan hug
Stefans Metz frekar en leikræn
túlkun. Leikararnir virðast vera að
leika táknmyndir frekar en raun-
verulegar manneskjur. Sýningin er
leikin án hlés sem er vel til fundið
en drifkraftinn vantar. Persónur
tala hver til annarrar frekar en hver
við aðra.
Búningar Seans Mackaoui eru
ekkert sérstaklega eftirminni-
legir en leikmyndin er virkilega vel
útfærð. Hringsviðið minnir á kvik-
myndasett film noir kvikmyndanna
þar sem bognir skuggar og ljóstírur
takast á. Lýsing Ólafs Ágústs Sævars-
sonar er einnig einkar góð þar sem
ljóskastararnir hreinlega elta per-
sónurnar á röndum og fallegar línur
eru dregnar í yfirþyrmandi myrkr-
ið, sem verður reyndar stundum of
dimmt. Elvar Geir Sævarsson sér
ágætlega um bæði hljóðhönnun og
hljóðmynd en dramatísku undir-
tónarnir verða stundum of meló-
dramatískir.
Við lestur á leikriti Arthurs Miller
leiftra tilfinningarnar á hverri blað-
síðu þannig að þær nánast neista. Í
þessari sýningu malla þær einungis
undir yfirborðinu en ná aldrei
suðupunkti. Ástríðan, tilfinninga-
lega óreiðan og mannlegi harm-
leikurinn kemst þess vegna aldrei
almennilega til skila.
Sigríður Jónsdóttir
NiðurstAðA: Vel hönnuð sýning sem
verður aldrei nema ylvolg.
Tempraður tilfinningahiti
Bylgja Dís Gunnars-
dóttir syngur á
Kúnstpásutón-
leikum Íslensku
óperunnar í
hádeginu í
dag.
Hilmir Snær Guðnason og Arnar Jónsson í hlutverkum sínum í Horft frá brúnni.
Chimes of freedom
er til að mynda
þannig lag og texti að það
fellur ákaflega vel að
þessu þema.
4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r i ð J u D A G u r22 M e N N i N G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
menning
1
7
-1
0
-2
0
1
6
0
9
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
F
5
-0
8
A
8
1
A
F
5
-0
7
6
C
1
A
F
5
-0
6
3
0
1
A
F
5
-0
4
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K