Fréttablaðið - 04.10.2016, Page 43
TónlisT
Kammertónleikar
HHHHH
norðurljós í Hörpu
Föstudaginn 30. september
Nordic Affect (Halla Steinunn
Stefánsdóttir, fiðla; Guðrún Hrund
Harðardóttir, víóla; Hanna Lofts-
dóttir, selló/gamba; Guðrún Óskars-
dóttir, semball) flutti verk eftir
Mirjam Tally, Hildi Guðnadóttur,
Önnu Þorvaldsdóttur, Úlf Hansson
og Georg Kára Hilmarsson á Nor-
rænum músíkdögum. Einnig var
flutt verk eftir Höllu Steinunni.
Tónleikar kammerhópsins Nordic
Affect koma stöðugt á óvart. Það
sem gerir tónleikana svo spennandi
er rannsóknarvinnan sem liggur að
baki dagskrá með eldri tónlist, og
hversu vel valin nýrri músíkin er.
Tónleikarnir á Norrænum músík-
dögum voru engin undantekning.
Þar voru fluttar nokkrar tónsmíðar,
aðallega eftir innlend tónskáld. En
inn á milli atriða heyrðist úr hátöl-
urum hinn undarlegasti gerningur.
Að því er virtist var það samhengis-
laust orðagjálfur ljóðabrota sem þó
myndaði skemmtilegan hljóðheim.
Þessi athyglisverða umgjörð tengdi
hin ólíku tónverk, gerði úr þeim
ánægjulega heild. Kannski var þetta
Ginnungagapið, ringulreiðin sem öll
tónlist kemur út úr! Gerningurinn
kallaðist He(a)r og var eftir Höllu
Steinunni Stefánsdóttur, listrænan
stjórnanda hópsins.
Fyrsta formlega atriðið á efnis-
skránni var eftir Mirjam Tally og
nefndist Warm Life at the Foot of
the Iceberg. Allskonar skruðningar
og rennerí eftir strengjunum kallaði
fram í hugann sýn af skríðandi jökli,
frjósandi og bráðnandi á víxl. Tón-
listin var mjög afstrakt, en það var í
henni sterkt andrúmsloft sem greip
mann. Hún var fíngerð og nostur-
samlega ofin.
Point of Departure eftir Hildi
Guðnadóttur var allt öðruvísi.
Hildur semur kvikmyndalega tón-
Tónleikagestir sungu með
Lokaverkið á vel heppnuðum tónleikum Nordic Affect var eftir Georg Kára
Hilmarsson. FréTTAbLAðið/VALLi
list, og verkið nú var í slíkum anda.
Það byggðist á einföldum stefjum
og endur tekningu, sem þó var aldrei
leiðigjörn. Þvert á móti myndaði end-
urtekningin leiðslukennda stemn-
ingu sem var rómantísk og hugljúf.
Reflections eftir Önnu Þorvalds-
dóttur var mun myrkari. Það byrj-
aði sem þykkur, fremur ómstríður
ymur, en gliðnaði smám saman í
frumeiningar sínar. Hljómurinn
varð að nöktum stefbrotum sem
voru óhugnanleg og afar áhrifamikil.
Þýð eftir Úlf Hansson var þægi-
legri áheyrnar, enda tónlistin að
mestu byggð á sparlegum formum.
Hér voru tónleikagestir virkjaðir
til að syngja, eða humma hljóm í
kyrrstöðu sem var samansettur af
þremur tónum. Hljómurinn skapaði
sveimkenndan grunn, en yfir honum
léku hljóðfæraleikararnir áleitnar
hendingar sem voru fullar af skáld-
skap.
Lokaverkið á tónleikunum var
svo eftir Georg Kára Hilmarsson
og var innblásturinn sóttur í frum-
spekilegar hugleiðingar um ljós og
hljóð. Útkoman var íhugul, dálítið
annarleg en ávallt full af fallegum
blæbrigðum sem sköpuðu eftir-
minnileg hughrif.
Flutningurinn á öllum verkunum
var til fyrirmyndar. Samspilið var
nákvæmt; hver einasta tónahending
var markviss og tilfinningaþrungin.
Það verður varla betra en þetta.
Jónas Sen
niðursTaða: Framúrskarandi
tónleikar; skemmtileg dagskrá og
mögnuð spilamennska.
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun. is • www.sorg. is • sorg@sorg. is
Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur
fjallar almennt um sorg og sorgarviðbrögð á fræðslukvöldi
Nýrrar dögunar, miðvikudagskvöldið 5. október kl. 20:00
í safnaðarheimili Háteigskirkju.
Allir velkomnir.
Sorg
og sorgarviðbrögð
GILDIR AÐEINS Í INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA
SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 17. SUN. 13 - 17.
GILDIR TIL 17. OKTÓBER 2016
NYTT!
50%
AFSLÆTTI
HAGLÖFS
GORE-TEX BUXUR Á
MEÐ HVERJUM
KEYPTUM HAGLÖFS
GORE-TEX JAKKA!
M e n n i n g ∙ F r É T T a B l a ð i ð 23Þ r i ð J u D a g u r 4 . o K T ó B e r 2 0 1 6
1
7
-1
0
-2
0
1
6
0
9
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
F
5
-0
8
A
8
1
A
F
5
-0
7
6
C
1
A
F
5
-0
6
3
0
1
A
F
5
-0
4
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K