Fréttablaðið - 04.10.2016, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 04.10.2016, Blaðsíða 43
TónlisT Kammertónleikar HHHHH norðurljós í Hörpu Föstudaginn 30. september Nordic Affect (Halla Steinunn Stefánsdóttir, fiðla; Guðrún Hrund Harðardóttir, víóla; Hanna Lofts- dóttir, selló/gamba; Guðrún Óskars- dóttir, semball) flutti verk eftir Mirjam Tally, Hildi Guðnadóttur, Önnu Þorvaldsdóttur, Úlf Hansson og Georg Kára Hilmarsson á Nor- rænum músíkdögum. Einnig var flutt verk eftir Höllu Steinunni. Tónleikar kammerhópsins Nordic Affect koma stöðugt á óvart. Það sem gerir tónleikana svo spennandi er rannsóknarvinnan sem liggur að baki dagskrá með eldri tónlist, og hversu vel valin nýrri músíkin er. Tónleikarnir á Norrænum músík- dögum voru engin undantekning. Þar voru fluttar nokkrar tónsmíðar, aðallega eftir innlend tónskáld. En inn á milli atriða heyrðist úr hátöl- urum hinn undarlegasti gerningur. Að því er virtist var það samhengis- laust orðagjálfur ljóðabrota sem þó myndaði skemmtilegan hljóðheim. Þessi athyglisverða umgjörð tengdi hin ólíku tónverk, gerði úr þeim ánægjulega heild. Kannski var þetta Ginnungagapið, ringulreiðin sem öll tónlist kemur út úr! Gerningurinn kallaðist He(a)r og var eftir Höllu Steinunni Stefánsdóttur, listrænan stjórnanda hópsins. Fyrsta formlega atriðið á efnis- skránni var eftir Mirjam Tally og nefndist Warm Life at the Foot of the Iceberg. Allskonar skruðningar og rennerí eftir strengjunum kallaði fram í hugann sýn af skríðandi jökli, frjósandi og bráðnandi á víxl. Tón- listin var mjög afstrakt, en það var í henni sterkt andrúmsloft sem greip mann. Hún var fíngerð og nostur- samlega ofin. Point of Departure eftir Hildi Guðnadóttur var allt öðruvísi. Hildur semur kvikmyndalega tón- Tónleikagestir sungu með Lokaverkið á vel heppnuðum tónleikum Nordic Affect var eftir Georg Kára Hilmarsson. FréTTAbLAðið/VALLi list, og verkið nú var í slíkum anda. Það byggðist á einföldum stefjum og endur tekningu, sem þó var aldrei leiðigjörn. Þvert á móti myndaði end- urtekningin leiðslukennda stemn- ingu sem var rómantísk og hugljúf. Reflections eftir Önnu Þorvalds- dóttur var mun myrkari. Það byrj- aði sem þykkur, fremur ómstríður ymur, en gliðnaði smám saman í frumeiningar sínar. Hljómurinn varð að nöktum stefbrotum sem voru óhugnanleg og afar áhrifamikil. Þýð eftir Úlf Hansson var þægi- legri áheyrnar, enda tónlistin að mestu byggð á sparlegum formum. Hér voru tónleikagestir virkjaðir til að syngja, eða humma hljóm í kyrrstöðu sem var samansettur af þremur tónum. Hljómurinn skapaði sveimkenndan grunn, en yfir honum léku hljóðfæraleikararnir áleitnar hendingar sem voru fullar af skáld- skap. Lokaverkið á tónleikunum var svo eftir Georg Kára Hilmarsson og var innblásturinn sóttur í frum- spekilegar hugleiðingar um ljós og hljóð. Útkoman var íhugul, dálítið annarleg en ávallt full af fallegum blæbrigðum sem sköpuðu eftir- minnileg hughrif. Flutningurinn á öllum verkunum var til fyrirmyndar. Samspilið var nákvæmt; hver einasta tónahending var markviss og tilfinningaþrungin. Það verður varla betra en þetta. Jónas Sen niðursTaða: Framúrskarandi tónleikar; skemmtileg dagskrá og mögnuð spilamennska. Samtök um sorg og sorgarviðbrögð NÝ DÖGUN www.nydogun. is • www.sorg. is • sorg@sorg. is Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur fjallar almennt um sorg og sorgarviðbrögð á fræðslukvöldi Nýrrar dögunar, miðvikudagskvöldið 5. október kl. 20:00 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Allir velkomnir. Sorg og sorgarviðbrögð GILDIR AÐEINS Í INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 17. SUN. 13 - 17. GILDIR TIL 17. OKTÓBER 2016 NYTT! 50% AFSLÆTTI HAGLÖFS GORE-TEX BUXUR Á MEÐ HVERJUM KEYPTUM HAGLÖFS GORE-TEX JAKKA! M e n n i n g ∙ F r É T T a B l a ð i ð 23Þ r i ð J u D a g u r 4 . o K T ó B e r 2 0 1 6 1 7 -1 0 -2 0 1 6 0 9 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A F 5 -0 8 A 8 1 A F 5 -0 7 6 C 1 A F 5 -0 6 3 0 1 A F 5 -0 4 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.