Fréttablaðið - 02.08.2016, Síða 2
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
Gæði og g
læsileiki e
ndalaust ú
rval af há
gæða flísu
m
Veður
Á morgun verður fremur hæg
breytileg átt og víða skúrir, síst þó
austast á landinu. Hiti 10 til 16 stig.
Sjá Síðu 26
Heyannir á Álftanesi
Guðmundur Ólafsson snýr heyi sem slegið var við Pálshús á Álftanesi í síðustu viku. Einmuna blíða hefur verið þar undanfarnar vikur eins og
víðast á landinu. Fréttablaðið/Eyþór
Líbía Bandaríkjaher gerði í gær
loftárásir á borgina Sirte í Líbíu,
þar sem liðsmenn Íslamska ríkisins
hafa hreiðrað um sig.
Þetta eru fyrstu árásirnar af
þessu tagi í Líbíu. Þær eru gerðar
að beiðni stjórnvalda. Fayez al Sar-
raj forsætisráðherra sagði í sjón-
varpsávarpi að árásirnar hafi valdið
miklu tjóni.
Peter Cook, talsmaður banda-
ríska varnarmálaráðuneytisins,
sagði ekkert hafa verið ákveðið um
framhald á þessum árásum.
Stjórnarherinn í Líbíu hefur lengi
barist við liðsmenn Íslamska ríkis-
ins í Sirte og hafa þau átök kostað
nærri 300 stjórnarhermenn lífið.
Sirte er fæðingarborg Múamm-
ars Gaddafís, sem uppreisnarmenn
í Líbíu steyptu af stóli fyrir bráðum
fimm árum með aðstoð Bandaríkj-
anna, Bretlands og fleiri Vestur-
landa. – gb
Loftárásir
á Líbíu
LögregLumáL Að minnsta kosti
þrjátíu og sex manns gistu í fanga-
geymslum um helgina. Víða um
landið var mikið að gera hjá lög-
reglunni en sums staðar var nokkuð
rólegt.
Í Vestmannaeyjum voru um fimm-
tán þúsund manns samankomin
á Þjóðhátíð þegar mest var. Ellefu
manns gistu þar í fangageymslu
um helgina vegna mismunandi
brota. Fíkniefnamál voru um þrjá-
tíu í heildina. „Við vorum með fjóra
hunda og sex óeinkennisklædda
lögreglumenn sem sinntu fíkniefna-
málunum. Í fyrra voru fleiri fíkni-
efnamál og er stífa eftirlitið hjá okkur
vonandi farið að skila sér,“ segir
Jóhannes Ólafsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni í Vestmanna-
eyjum. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum fréttastofu hafa minnst
tvö kynferðisbrot verið tilkynnt á
Þjóðhátíð. Jóhannes vildi ekki tjá
sig um málið en eins og kunnugt er
er það yfirlýst stefna lögreglustjórans
í Vestmannaeyjum að lögreglan tjái
sig ekki um atvik af þessu tagi.
Að sögn Jóhannesar var nokkuð
um líkamsárásir en þó ekki fleiri en
undanfarin ár. Enginn var tekinn
vegna ölvunaraksturs.
Lögreglan á Suðurlandi þurfti
að hafa afskipti af fólki sem gisti á
tjaldsvæðinu á Flúðum um helgina
en nokkuð var um ölvun og læti
þar. Alls gistu sjö í fangageymslu
á Selfossi um helgina. „Á heildina
litið gekk helgin vel en það var eitt-
hvað um slagsmál og þó nokkuð um
ölvunar- og fíkniefnaakstur,“ segir
Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn
á Selfossi. Engar tilkynningar hafa
borist embættinu vegna kynferðis-
brota.
Á Ísafirði fór mýrarbolti fram
en þar gistu tveir í fangageymslu
um helgina. Að sögn varðstjóra
var mikið að gera hjá lögreglunni
en nokkuð mikið var um ölvun og
minniháttar slagsmál. Þá var mikið
um hraðakstur á Vestfjörðum en
alveg slysalaust. Engar tilkynningar
hafa borist vegna kynferðisbrota né
líkamsárása.
Frá Neskaupstað fengust þær upp-
lýsingar að þar hefði verið örlítill
erill vegna ölvunar en engar kærur
eða slagsmál. Einn aðili gisti í fanga-
geymslu vegna slagsmála en hátíðin
Neistaflug fór þar fram um helgina.
Á Akureyri fór hátíðin Sumarleik-
arnir fram en þar gistu tveir fanga-
geymslu um helgina. Að sögn varð-
stjóra á Akureyri gekk helgin vel og
eru engar tilkynningar um kynferðis-
brot né líkamsárás á borði lögreglu.
Samtals gistu fimmtán manns í
fangageymslu í Reykjavík um helgina.
Nokkuð var um akstur undir áhrifum
áfengis, vímuefna eða án ökuréttinda.
Einnig var tilkynnt um eignaspjöll og
innbrot í borginni. Fjögur kynferðis-
brotamál komu á borð Neyðarmót-
töku Landspítalans en þrjú þeirra eiga
að hafa verið framin á höfuðborgar-
svæðinu. nadine@frettabladid.is
Fangageymslur hýstu
nær fjörtíu um helgina
Víða voru annir hjá lögreglu um nýliðna verslunarmannahelgi. Á Þjóðhátíð í
Eyjum voru um 30 fíkniefnamál og mun hafa verið tilkynnt um minnst tvö kyn-
ferðisbrotamál þar. Þá var mikið um hraðakstur á Vestfjörðum segir lögregla.
Sex óeinkennisklæddir lögreglumenn sinntu fíkniefnamálunum á þjóðhátíð.
Fréttablaðið/óSKar P. FriðriKSSON
LögregLumáL Þrjár íslenskar konur
voru handteknar á sunnudagskvöld
eftir að eldur kviknaði í einbýlishúsi
í Skólagerði í Kópavogi.
Ein kvennanna var í gær úrskurð-
uð í gæsluvarðhald vegna gruns um
íkveikju en hinar tvær voru látnar
lausar. Allt tiltækt slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins var kallað út en
greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Talsverðar skemmdir urðu á húsinu.
Allar eru konurnar á þrítugsaldri.
Sú sem er í varðhaldi býr í húsinu.
Gunnar Hilmarsson aðalvarð-
stjóri segir rannsókn málsins vera í
fullum gangi. – ngy
Í haldi vegna
elds í Kópavogi
Nígería Fertugur Nígeríumaður
hefur verið handtekinn, sakaður um
að hafa staðið í stórtæku netsvindli
víða um heim.
Maðurinn hefur ekki verið nafn-
greindur, en hann er talinn hafa
stjórnað fjörutíu manna hópi sem
sendi tölvupósta í gríð og erg út um
allan heim, ýmist með vírusum eða
ýmiss konar tilboðum til að veiða
fólk í gildru.
Mennirnir eru taldir hafa haft
meira en sjö milljarða króna upp úr
krafsinu. – gb
Nígeríusvindlari
handtekinn
Gruna íkveikju. Fréttablaðið/StEFÁN
Hermenn við Sirte. Fréttablaðið/EPa
2 . á g ú S t 2 0 1 6 Þ r I ð j u D a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a ð I ð
0
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
2
0
-1
D
2
0
1
A
2
0
-1
B
E
4
1
A
2
0
-1
A
A
8
1
A
2
0
-1
9
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K