Fréttablaðið - 02.08.2016, Page 6
Stjórn Vina Vatnajökuls
auglýsir eftir umsóknum
um styrki.
Vinir Vatnajökuls eru hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs.
Samtökin styrkja rannsóknir, kynninga- og fræðslustarf sem stuðlar
að því að sem flestir geti notið náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs.
Umsóknarfrestur stendur frá 1. ágúst til 30. september 2016.
Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu samtakanna www.vinirvatnajökuls.is.
Fjarskipti Sjómenn Samherja eru
ósáttir við fyrirkomulag greiðslna
sinna til fyrirtækisins vegna fjar-
skiptakostnaðar þegar þeir eru á
hafi úti.
Á launaseðlum sjómannanna er
settur upp kostnaður við fjarskipti
án þess að þeir fái að sjá sundur-
liðun notkunar sinnar. Fyrirtækið
hefur neitað að svara fyrirspurn
Fréttablaðsins hvernig þessum
málum er háttað.
Sjómenn Samherja greiða fyrir
þann kostnað sem hlýst af fjarskipt-
um þeirra meðan þeir eru á hafi úti.
Bæði símasamband við fastalandið
sem og internettengingu greiða sjó-
menn sjálfir. Voru menn að greiða
upp undir fjörutíu þúsund krónur í
einum túr fyrir síma og net. Það sem
þeir eru hins vegar ósáttir við er að
þeir fá ekki að sjá sundurliðun á
notkun sinni. Samherji rukkar fyrir
afnotin með því að taka af launum
sjómanna við útborgun.
Valmundur Valmundsson, for-
maður Sjómannasambands Íslands,
segir sambandið hafa farið í herferð
í fyrra einmitt vegna fjarskiptakostn-
aðar sjómanna á hafi úti.
„Sumstaðar var það þannig að
kostnaði við fjarskipti skipsins var
bara deilt á áhöfnina og allir greiddu
sama verðið óháð því hversu mikið
sjómaður nýtti sér þjónustuna. Búið
er að taka fyrir svoleiðis og þetta ætti
að vera komið í lag á flestum stöðum,“
segir Valmundur. „Við viljum auð-
vitað og það á að vera þannig að sjó-
menn eiga að geta séð notkun sína.“
Valmundur segir sum fyrirtæki
hafa þann háttinn á að veita sjó-
mönnum sínum þessa þjónustu
þeim að kostnaðarlausu.
Fréttablaðið sendi Samherja fyrir-
spurn um hvernig sjómenn greiði fyrir
fjarskipti sín meðan þeir eru á hafi úti,
hvort þeir geti fengið að sjá útskrift af
notkun sinni með launaseðlum sínum
og af hvaða fjarskiptafyrirtæki Sam-
herji keypti þjónustu sína.
Anna María Kristinsdóttir, starfs-
mannastjóri Samherja, svaraði
fyrir hönd fyrirtækisins á þá leið
að þessar upplýsingar væru milli
fyrirtækisins og starfsmanna og því
myndi Samherji ekki gefa Frétta-
blaðinu umbeðnar upplýsingar.
sveinn@frettabladid.is
Borga net og síma en fá
ekki að vita notkunina
Sjómenn Samherja segjast ekki fá sundurliðun á notkun sinni á neti og síma
sem fyrirtækið dregur af launum. Samherji neitar að svara fyrirspurn Frétta-
blaðsins. Formaður Sjómannasambandsins segir þetta þurfa að liggja fyrir.
Uppreisnar gyðinga minnst í Varsjá
Þess var minnst í Varsjá í gær að 72 ár voru liðin frá því uppreisnin í gyðingahverfinu þar hófst. Hópur ungra
liðsmenn í hreyfingu sem kallar sig Róttæka þjóðernishópinn gekk um með blys. Samnefnd hreyfing starfaði
í Póllandi á fjórða áratugnum og stundaði þá ofsóknir á hendur gyðingum. Fréttablaðið/EPa
togari Samherja við festar í akureyrarhöfn. Fréttablaðið/Sveinn
sýrland Uppreisnarmenn í Sýr-
landi skutu í gær niður rússneska
herþyrlu af gerðinni Mi-8 skammt
suður af borginni Aleppo. Um borð
voru fimm manns, sem allir fórust.
Rússar segja að þyrlan hafi verið
nýbúin að koma hjálpargögnum til
íbúa í Aleppo. Birst hafa myndir af
uppreisnarmönnum, þar sem þeir
sjást draga klæðlaust lík eftir jörð-
inni í grennd við flak þyrlunnar.
Í austurhluta borgarinnar,
sem uppreisnarmenn hafa á sínu
valdi, búa enn um 250 þúsund
almennir borgarar. Þeir eru þar
einangraðir vegna umsáturs stjórn-
arhersins, sem reglulega varpar
sprengjum á borgina og hefur meðal
annars eyðilagt þar öll sjúkrahús.
Rússar hafa aðstoðað stjórnarher-
inn með loftárásum á borgina. Reynt
hefur verið að fá stjórnarherinn og
Rússa til að halda opnum leiðum
frá borginni svo almennir borgarar
geti komist þaðan, en hörðum loftá-
rásum hefur ekki linnt. – gb
Rússnesk þyrla skotin
niður suður af Aleppo
Ban darí ki n Bandaríski öld-
ungadeildarþingmaðurinn John
McCain hefur ekki dregið til baka
stuðning sinn við Donald Trump, en
fordæmir engu að síður orð Trumps
í garð bandarískra múslimahjóna
sem stigu á svið á landsþingi Demó-
krataflokksins í síðustu viku.
McCain, sem sjálfur var forseta-
efni repúblikana árið 2008, segir að
þótt flokkurinn hafi gert Trump að
forsetaefni sínu þá veiti það honum
ekki heimild til þess að niðra góðu
fólki.
„Ég tel mig ekkert siðferðilega yfir
Trump hafinn,” sagði McCain. „En
ég skora á forsetaefnið að sýna gott
fordæmi um það sem land okkar
getur og á að standa fyrir.”
Hjónin komu fram á landsþing-
inu til að minnast sonar síns, sem
var í Bandaríkjaher og féll í Íraks-
stríðinu. – gb
Fordæmir Trump en
styður hann samt áfram
John McCain öldungadeildarþing-
maður. Fréttablaðið/EPa
Flak rússnesku þyrlunnar skammt frá aleppo. Fréttablaðið/EPa
tyrkland Tyrknesk stjórnvöld segja
að ekkert verði úr samkomulagi
við Evrópusambandið um flótta-
fólk nema ESB standi við loforð sitt
um að leyfa Tyrkjum að komast
til ESB-landa án vegabréfsá-
ritunar.
Þetta verði að gerast í
október í síðasta lagi, að
því er Mevlüt Cavus oglu
utanríkisráðherra fullyrðir.
Sigmar Gabriel, leið-
togi þýska Sósíal-
demókrata-
f l o k k s i n s ,
segir að ESB
megi undir
e n g u m
kringumstæðum láta Tyrki kúga sig
til að gefa eftir.
Jean-Claude Juncker, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, segir að Tyrkir verði fyrst að
uppfylla þau skilyrði, sem
sett voru fyrir því að aflétta
vegabréfs áritunarkröfunni
af Tyrkjum.
Ein af þessum kröfum var
sú, að málfrelsi verði
virt í Tyrklandi. – gb
Tyrkir kúgi ekki ESB
recep tayyip
Erdogan tyrklands-
forseti. Frétta-
blaðið/EPa
Birst hafa myndir þar
sem klæðlaust lík er dregið
um nálægt flaki rússnesku
þyrlunnar.
2 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ r i Ð j U d a g U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a Ð i Ð
0
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
2
0
-4
4
A
0
1
A
2
0
-4
3
6
4
1
A
2
0
-4
2
2
8
1
A
2
0
-4
0
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K