Fréttablaðið - 02.08.2016, Síða 12
Bandaríkin Stefnuskrár demókrata
og repúblikana, sem samþykktar
voru í nýliðnum mánuði, sýna að
báðir flokkarnir líta á Bandaríkin
sem boðbera frelsis og friðar í heim-
inum.
„Bandaríkin hafa alltaf verið
ljósberi vonar fyrir þá sem búa við
myrkur alræðisstjórnar, og þann-
ig verður það að vera áfram,“ segir
til dæmis í stefnuskrá Repúblikan-
aflokksins, og sérstök áhersla er
lögð á forystu flokksins í þessum
efnum: „Repúblikanar hafa verið í
fararbroddi við að styðja verkefni
sem hafa verndað og bjargað millj-
ónum manna sem eru berskjaldað-
astir og sæta mestum ofsóknum.“
Demókratar segja að verðmæta-
mat Bandaríkjamanna veki vonir
um heim allan og auki öryggi
Bandaríkjanna sjálfra: „Við reynum
að tryggja að þau gildi sem ríki
okkar var byggt á, þar á meðal trú
okkar á það að allir menn séu skap-
aðir jafnir, endurspeglist í öllu því
sem ríkið okkar gerir,“ segir í stefnu-
skrá flokksins. „Þess vegna munum
við styðja friðarviðleitni, vernda
lýðræði og berjast í þágu þeirra sem
vernda mannréttindi.“
Í stefnuskrám beggja flokkanna
er víða vikið að hlutverki Banda-
ríkjanna í flestum heimshlutum.
Hér eru nokkur dæmi.
Evrópa og NATO
Í stefnuskrá repúblikana er að finna
ótvíræðan stuðning við yfirlýsingar
Donalds Trump um að stuðningur
Bandaríkjanna við NATO sé háður
því að Evrópuríkin standi við skuld-
bindingar sínar um fjárframlög til
hervarna.
„Úr því að bandaríska þjóðin
ver, miðað við höfðatölu, fjórum
sinnum meira til varnarmála en Evr-
ópubúar þá krefjumst við þess, eins
og við höfum áður gert, að félagar
okkar í NATO standi við skuld-
bindingar sínar og mæti auknum
fjárfestingarþörfum sínum í her-
búnaði.“
Fullyrt er að það sem til þessa
hefur sameinað Bandaríkin og
Evrópu, hin sameiginlega saga og
sameiginlegt gildismat, sameigin-
legir hagsmunir og markmið, séu
í hættu vegna efnahagserfiðleika í
Evrópu og breytinga á mannfjölda-
samsetningu Evrópuríkja.
Repúblikanar segjast hins vegar
ætla að mæta auknum hernaðar-
umsvifum Rússa af „þeim sama
þrótti sem leiddi af sér hrun Sovét-
ríkjanna. Við munum ekki fallast
á neinar landamærabreytingar í
Austur-Evrópu sem þröngvað er
upp á fólk með valdi, hvorki í Úkra-
ínu, Georgíu né annars staðar.“
Demókratar fordæma hins vegar
þessa afstöðu andstæðinga sinna,
segja að Donald Trump muni koll-
varpa hálfrar aldar gamalli utan-
ríkisstefnu Bandaríkjanna með því
að yfirgefa samherja sína í NATO,
en leita í staðinn á náðir Vladimírs
Pútíns Rússlandsforseta.
„Við myndum gera Pútín það ljóst
að við erum reiðubúin til að starfa
með honum þar sem það er í okkar
þágu,“ segir í stefnuskrá demókrata,
„en við munum ekki hika við að
standa gegn árásarstefnu Rússa. Við
munum einnig standa með íbúum
Rússlands og beita stjórnvöld þrýst-
ingi til að virða grundvallarréttindi
borgaranna.“
Ísrael
Báðir flokkarnir lofa því að standa
þétt við bakið á Ísraelsríki.
Demókratar rökstyðja það með
því að sterkt og öruggt Ísraelsríki
sé lífsnauðsynlegt fyrir Bandaríkin
vegna sameiginlegra hagsmuna
og sameiginlegs gildismats: „Þess
vegna munum við alltaf styðja rétt
Ísraels til sjálfsvarnar,“ segir í stefnu-
skránni, „og standa gegn allri við-
leitni til þess að grafa undan stöðu
Ísraels, meðal annars á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna eða í BDS-
hreyfingunni,“ en sú hreyfing snýst
um að fá einstaklinga, fyrirtæki og
ríki til þess að neita að eiga viðskipti
við Ísrael, hvetja banka og aðra til
þess að fjárfesta ekki í ísraelskum
fyrirtækjum og fá ríki til þess að
beita Ísrael refsiaðgerðum.
Demókratar boða samt áfram
stuðning við samninga um tveggja
ríkja lausnina, sem myndi „tryggja
framtíð Ísraels sem öruggs og lýð-
ræðislegs ríkis gyðinga með viður-
kenndum landamærum og sjá
Palestínumönnum fyrir sjálfstæði,
fullveldi og virðingu.“
Þeir ganga út frá því að Jerúsal-
em verði „áfram höfuðborg Ísraels,
óskipt borg sem allir trúarhópar
hefðu aðgang að.“
Repúblikanaflokkurinn ítrekar
einnig í sinni stefnuskrá stuðning
sinn við Ísrael og ætlar að sjá til þess
að Ísrael hafi áfram hernaðaryfir-
burði gagnvart öllum andstæðingum
sínum: „Við styðjum rétt og skyldu
Ísraels til þess að verja sig gegn
hryðjuverkaárásum og gegn öðrum
hernaðaraðferðum sem beitt er gegn
Ísrael, hvort sem beitt er lagalegum,
efnahagslegum, menningarlegum
eða öðrum aðferðum. Við höfnum
þeirri ranghugmynd að Ísrael sé her-
námsríki og veitum sérstaka athygli
því að sniðgöngu-, fjárfestingastöðv-
unar- og refsiaðgerðahreyfingin er
andgyðingleg í eðli sínu og stefnir
að því að eyða Ísraelsríki.“
Í stefnuskrá Repúblikana-
flokksins er aðeins einu sinni
minnst á Palestínu, en það er í
tengslum við Rammasamning
Sameinuðu þjóðanna um loftslags-
breytingar. Repúblikanar heita því
að stöðva öll fjárframlög Banda-
ríkjanna til loftslagssamningsins,
og vísa til þess að slík framlög séu
bönnuð vegna þess að bandarísk lög
frá 1994 banna stjórninni að veita
fé í stofnanir tengdar Sameinuðu
þjóðunum sem viðurkenna sjálf-
stætt Palestínuríki.
Sérstaða Bandaríkjanna
Upphaf stefnuskrár Repúblikana-
flokksins hljóðar þannig: „Við
trúum á sérstöðu Bandaríkjanna.
Við trúum því að Bandaríkin séu
ólík öllum öðrum löndum á jörð-
inni.“
Nánari útlistun fylgir strax: „Við
trúum því að Bandaríkin séu sérstök
vegna sögulegs hlutverks okkar, fyrst
sem griðastaðar, síðan sem varnar-
afls og nú sem fyrirmyndar frelsis
heiminum öllum til gaumgæfni.“
Þessi „sérstöðuhyggja“ skín
víða í gegn í stefnuskrám beggja
flokkanna, ekki bara Repúblikan-
aflokksins, og ekki síður birtist hún
í ræðunum sem fluttar voru á lands-
þingum þeirra í júlí.
„Látið engan segja ykkur að
þetta land sé ekki stórkostlegt,”
sagði Michelle Obama forsetafrú á
sviðinu í Philadelphiu. „Því einmitt
núna er þetta stórbrotnasta land á
jörðu.“
Með þessu var hún að andmæla
loforðum Donalds Trump um að
hann ætli sér að endurheimta fyrri
reisn Bandaríkjanna, gera þau að
stórkostlegu landi á ný.
Barack Obama forseti tók í sama
streng, þótt ekki hafi hann notað
hástig lýsingarorðsins:
„Bandaríkin eru nú þegar stór-
kostleg. Bandaríkin eru nú þegar
sterk. Og ég heiti ykkur því að styrk-
ur okkar, mikilfengleiki okkar, er
ekki undir Donald Trump kominn.“
gudsteinn@frettabladid.is
Trúa á forystuhlutverk Bandaríkjanna
Á flokksþingum Demókrataflokksins og Repúblikanaflokksins nú í júlí, þar sem Hillary Clinton og Donald Trump voru formlega
útnefnd forsetaefni, voru einnig samþykktar stefnuskrár flokkanna sem þingmenn þeirra eiga að starfa eftir næsta kjörtímabilið.
Í nóvember verður ekki aðeins kosinn nýr forseti, heldur verður einnig kosið til þings í Bandaríkjunum. Þingkosningar eru þar á tveggja ára fresti en forsetakosningar á
fjögurra ára fresti. FréTTABlAðið/EPA
Donald Trump á sviðinu í Cleveland eftir að hafa formlega tekið við útnefningu
repúblikanaflokksins. FréTTABlAðið/EPA
Hillary Clinton ásamt varaforsetaefni sínu, Tim Kaine, og mökum þeirra á sviðinu í
Philadelphia eftir að hafa tekið við útnefningu Demókrataflokksins. FréTTABlAðið/EPA
Stefnuskrár flokkanna
Á fjögurra ára fresti samþykkja báðir
stóru stjórnmálaflokkarnir í Banda-
ríkjunum, Repúblikanaflokkurinn
og Demókrataflokkurinn, nýja
stefnuskrá sem leggur línurnar fyrir
næsta kjörtímabil. Að venju gegna
utanríkismálin þar nokkuð stóru
hlutverki.
Við reynum að
tryggja að þau gildi
sem ríki okkar var byggt á,
þar á meðal trú okkar á það
að allir menn séu skapaðir
jafnir, endurspeglist í öllu því
sem ríkið okkar gerir.
Úr stefnuskrá Demókrata
Við trúum því að
Bandaríkin séu
sérstök vegna sögulegs
hlutverks okkar, fyrst sem
griðastaðar, síðan sem
varnarafls og nú sem fyrir-
myndar frelsis heiminum
öllum til gaumgæfni.
Úr stefnuskrá Repúblikana
2 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ r i Ð J U d a g U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a Ð i Ð
0
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
2
0
-1
8
3
0
1
A
2
0
-1
6
F
4
1
A
2
0
-1
5
B
8
1
A
2
0
-1
4
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K