Fréttablaðið - 02.08.2016, Side 14
Frá degi til dags
Nýr tónn
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
lífið: Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Jafnaðarmenn vilja eitt samfélag fyrir alla, gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu, auðlindir í þjóðareign, betra fiskveiðistjórnunarkerfi, menntun fyrir alla, jöfnuð og
samábyrgð. Eins og nú er háttað búum við Íslendingar
við annan veruleika. Hér gilda ekki sömu reglur fyrir alla,
spilling hefur grafið um sig og góðærið er fyrir hina ríku.
Undanfarin ár höfum við orðið vitni að auðmanna-
dekri og einkavinavæðingu samhliða niðurbroti
mikilvægra samfélagsstoða og velferðargilda sem sem
gengnar kynslóðir strituðu við að byggja upp til að skapa
hér gott samfélag. Fátæktin sem við töldum okkur hafa
útrýmt um miðbik síðustu aldar hefur aftur lætt sér inn í
samfélag okkar eins og lúsin. Nú búa um 9 þúsund börn
á heimilum undir lágtekjumörkum. Ungt fólk er fast í
fátæktargildru á leigumarkaði og fátækt aldraðra hefur
aukist. Fólk flytur frá landinu og skuldugur almenningur
berst í bökkum. Þó fljóta milljarðarnir yfir barma ríkis-
sjóðs. Sjávarútvegur og ferðaþjónusta mala gull og hafa
aldrei staðið betur.
Í góðæri mundu siðuð stjórnvöld jafna lífskjör og gefa
öllum tækifæri til menntunar. Þess í stað er búið í haginn
fyrir auðmenn en tækifærum hinna efnaminni fækkað.
Verið er að skerða aðgengi fólks að námi. Velferðarkerfið
er í miklum vanda og engin menntastefna sjáanleg. Nú
væri lag að koma á gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu til að
leysa sjúklinga undan óheyrilegum heilbrigðiskostnaði.
En hægt og bítandi er verið að ýta fólki inn í einkarekin
heilbrigðis- og menntakerfi með því að fjársvelta svo hið
opinbera kerfi að það rís ekki undir hlutverki sínu.
Nú væri lag að beita jöfnunaraðgerðum í skattkerfinu,
fjölga skattþrepum og lyfta skattleysismörkum í stað þess
að lækka skatta á auðmenn og hlífa stórgróðaatvinnu-
vegum við eðlilegri gjaldtöku. Nú mætti rétta við og jafna
stöðu byggðanna í landinu með byggðatengdum skatta-
ívilnunum, grænum greiðslum, góðum samgöngum
og öflugum nettengingum. Þess í stað liggur vegakerfið
undir skemmdum. Nú væri lag að koma á heilbrigðum
leikreglum í sjávarútvegi og afnema hið óréttláta kvóta-
kerfi.
Það skiptir máli hverjir stjórna. Þess vegna er lífsspurs-
mál fyrir samfélag okkar að koma nýjum stjórnvöldum
að í næstu kosningum.
Stjórnarstefna skiptir máli
Fátæktin sem
við töldum
okkur hafa
útrýmt um
miðbik
síðustu aldar
hefur aftur
lætt sér inn í
samfélag
okkar eins og
lúsin.
Allt sem þú þar ...
Gallup, apríl–júní 2016.
íbúa á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu
12–80 ára lesa Fréttablaðið daglega.*
57,4%
Sá öldi myndi fara langt með að fylla sæti
Laugardalsvallar tíu sinnum.
Ólína Kjerúlf
Þorvarðardóttir
alþingismaður
heill forseta vorum
Hr. Guðni Th. Jóhannesson er
nýr forseti lýðveldisins Íslands.
Var hann settur í embætti í gær
í húsakynnum Alþingis. Í ræðu
sinni af því tilefni talaði nýr
forseti um mikilvægi þess að
enginn hér á landi líði skort.
Einnig lagði forseti þunga
áherslu á að fjölmenning á
Íslandi væri af hinu góða og
ættum við eftir fremsta megni að
leyfa fjölbreytninni að blómstra.
Íslendingar væru ekki eins
einsleitur hópur og hér áður
fyrr. Einstaklingar legðu sitt af
mörkum fyrir samfélagið hver
svo sem bakgrunnur þeirra væri.
Það er gott að fá forseta sem
hugar að fjölmenningunni.
í takt við tímann?
En það er merkilegt að árið 2016
skuli vera kominn fyrsti forseti
lýðveldisins sem fæddur er á lýð-
veldistímanum. Það er kannski
ágætis merki þess hversu ung
þjóð við í raun erum. Fyrrver-
andi forsetar fæddust allir undir
danskri krúnu. Síðan má spyrja
sig hvort þetta embætti sé ekki
í raun óþarft með öllu. Hægt er
með auðveldum hætti að ákveða
hlutfall kosningabærra manna
til að kalla fram þjóðaratkvæða-
greiðslur og forseti Alþingis
getur haldið kokteilboð fyrir
erlenda þjóðhöfðingja á meðan.
Íslensk þjóð var forsetalaus frá
miðnætti í gær þar til Guðni var
settur í embættið án stóráfalla.
sveinn@frettabladid.is
Ræða Guðna Th. Jóhannessonar, nýs for-seta lýðveldisins, við embættistökuna í gær gefur góð fyrirheit um framtíðina. Með nýjum forseta fylgir tónn samstöðu og bjartsýni í íslensku samfélagi.Á miðnætti 31. júlí lét Ólafur Ragnar
Grímsson af embætti forseta Íslands eftir tuttugu ára
þjónustu við fólkið í landinu. Í gær var svo Guðni
Th. Jóhannesson, sjötti forseti lýðveldisins, formlega
settur í embætti. Í ræðunni var rauður þráður bjart-
sýni og samstöðu. Forsetinn fór líka yfir þau mál sem
eru honum hugleikin. Hann sagði að góða heil-
brigðis þjónustu mætti gera enn betri og tryggja að
landsmenn nytu hennar jafnt, óháð búsetu eða efna-
hag. Stjórnarskráin á að veita landsmönnum trygg-
ingu fyrir því að þeir fái notið þessara réttinda en það
er mikilvægt að forsetinn haldi því á lofti. Nýr forseti
sagði að enn væri verk að vinna í baráttu fyrir jafnrétti
kynjanna og innan menntakerfisins ættu allir að geta
fundið sér farveg og nám við hæfi, án þess að fjár-
hagur hamlaði för. Fjölmenning og alþjóðleg tengsl
komu líka við sögu. „Gleymum ekki fjölmenningu
landnámsaldar og þeim nánu tengslum við útlönd
sem lögðu grunn að afrekum á sviði bókmennta og
verklegum framförum síðar meir.“
Í ræðu sinni minntist forsetinn á mikilvægi sam-
stöðu meðal þjóðarinnar. „Eitt gildir þó um allar
þjóðir, þá íslensku sem aðrar: Það sem sameinar þær
verður að vega þyngra en það sem sundrar. Og hér
hefur þjóðhöfðinginn hlutverki að gegna. Forseta
ber að stuðla að einingu frekar, bera virðingu fyrir
skoðunum annarra, varast að setja sig á háan hest,“
sagði forsetinn. Hann sagði að ólík sjónarmið yrðu að
heyrast og málefnalegur ágreiningur væri til vitnis um
þroskað og siðað samfélag.
Nýr forseti tekur við góðu búi enda er hann að
taka við keflinu af yfirburðamanni. Þótt Guðni Th.
Jóhannes son sé sinn eigin maður og muni setja sinn
svip á embættið þarf ekki að velkjast í neinum vafa um
að hann getur lært margt af Ólafi Ragnari Grímssyni.
Ekki síst þegar kemur að því að treysta eigin dóm-
greind og innsæi og hafa nægilega mikið sjálfstraust
til að taka umdeildar og erfiðar ákvarðanir þegar þess
er þörf. Guðni sagði líka í ræðu sinni í gær að hann
myndi þiggja ráð og leiðsögn og vænta góðs af sam-
starfi við forvera sína í embætti, þau Vigdísi Finnboga-
dóttur og Ólaf Ragnar. Í Vigdísi og Ólafi Ragnari hefur
Guðni góðar fyrirmyndir og í verkum þeirra má finna
mikilvægan vegvísi fyrir hann í embættinu þótt hann
þurfi að finna sinn eigin takt og fylgja honum.
Það var viðeigandi fyrir boðskapinn í ræðu nýs for-
seta að hann skyldi vitna í texta Þorsteins Valdimars-
sonar sem Spilverk þjóðanna gerði ódauðlegan: „Guð
hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir, ein lítil býfluga
afsannar það: Guð hjálpar þeim sem hjálpast að.“
Því það er rótgróið í samfélagsvitundina alveg síðan
á þjóðveldisöld að Íslendingar styðja hverjir aðra og
enginn er skilinn eftir útundan í íslensku samfélagi.
Við gleymum ekki okkar minnsta bróður og þegar við
hjálpumst að og vinnum saman eru okkur allir vegir
færir.
2 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D A g U R14 s k o Ð U n ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
0
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
2
0
-2
7
0
0
1
A
2
0
-2
5
C
4
1
A
2
0
-2
4
8
8
1
A
2
0
-2
3
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K