Fréttablaðið - 02.08.2016, Qupperneq 20
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Það er vandratað í búðinni og iðulega margir skólar í gangi.
er allt gott í hóFi?
Allt er gott í hófi heyrist í tengslum við matarvenjur nánast daglega.
Það rímar við opinberar næringarráðleggingar um víða veröld og álit
margra sem láta sig málið varða. Hins vegar eru aðrir sem draga það í
efa og telja vænlegra að útiloka vissar fæðutegundir með öllu.
Lengi vel hafa opinberar nær-
ingarráðleggingar hljómað á
þann veg að fólk eigi að borða
vel úr öllum fæðuflokkum; mest
af grófu kornmeti, grænmeti og
ávöxtum en minna af kjöti, fitu og
sykri. Þeir sem aðhyllast paleo-
eða lágkolvetnalífsstíl eru þó ekki
á sama máli og vilja nær alfarið
fjarlægja hver skyns kornvörur og
sykur vegna þess að hvort tveggja
hækkar blóðsykurinn hratt, sem
hefur verið tengt við ýmsa lífs-
stílssjúkdóma. Sumir vilja sömu-
leiðis sleppa mjólkurvörum. Í stað-
inn er lagt til að fólk auki fitu- og
grænmetisneyslu, en hin síðari ár
hefur verið sýnt fram á að fitu-
neysla sé ekki eins óæskileg og
áður var talið.
Frasinn „allt er gott í hófi“ á
kannski rætur að rekja til þess að
margir sem fara í aðhald og halda í
við sig á ströngu mataræði springa
á endanum á limminu og fara fljótt
í sama farið. Því er mögulega farin
sú leið að ráðleggja fólki að borða
sitt lítið af hverju en að halda
magninu í skefjum.
Vandinn er að margir eiga erf-
itt með að leggja mat á meðalhóf-
ið. Í nýlegri rannsókn sem birtist
í tímaritinu Appetite fyrr á árinu
kemur fram að meðalhóf þýðir
ekki það sama hjá öllum. Rann-
sóknin leiddi í ljós að fólk var ekki
sérstaklega gott í að leggja mat
á eigið mataræði hvað varðar
magn og gæði og flestir töldu
sig borða minna en reynd-
in var og mátu það sem
svo að þeir væru jafn-
vel að gera betur
þegar kæmi að hollu
mataræði en fólk al-
mennt.
Þá hefur það
sýnt sig að marg-
ir mynda fíkn í
ákveðnar fæðuteg-
undir og eru sæt-
meti, unnin kolvetni
og saltur matur þar of-
arlega á lista. Hjá mörgum þeirra
þýðir ekki annað en að halda sig al-
gerlega frá slíkum mat til að ná til-
settum árangri varðandi heilsufar
og þyngd. Til eru mýmörg dæmi
um árangur þeirra sem fara í al-
gert fráhald og fer þeim fjölgandi.
Á hinn bóginn hefur verið bent á
að nútímamataræði er svo gegn-
sýrt af unnum kolvetnum og sykri
að erfitt er að sneiða hjá þeim.
Opinberar næringarráðlegging-
ar eiga að vera leiðbeinandi um val
á hollu fæði en þær eru ekki meitl-
aðar í stein og eru í sífelldri endur-
skoðun. Í Bandaríkjunum eru þær
gefnar út á fimm ára fresti og í
ráðleggingunum 2015-2020 eru
nokkrar athyglisverðar breyting-
ar. Þar er til dæmis mælst til að
fólk dragi úr neyslu dýra próteina
og þá sérstaklega karlmenn og
unglingsdrengir en rannsóknir
þar í landi sýna að þeir neyta of
mikils próteins sem kemur meðal
annars niður á grænmetisneysl-
unni. Þá er lagt til að fólk dragi
enn frekar úr neyslu viðbætts syk-
urs og sætuefna. Amerísku hjarta-
verndarsamtökin mælast til þess
að fólk borði ekki meira en 6-9
teskeiðar af sykri á dag og telja
sumir það jafnvel of mikið. Að
endingu eru efri mörk á kólester-
ólneyslu afnum- in en áður
voru þau 300 mg á dag. Hins vegar
er lögð áhersla á gæði kólesteróls-
ins, hvaðan það kemur og í hvaða
samhengi þess er neytt. Græn-
metis ommeletta þykir til dæmis
betri kostur en beikonborgari.
Embætti landlæknis gefur
út ráðleggingar um mataræði
fyrir Íslendinga. Nýjustu opin-
beru ráðleggingar um mataræði
voru gefnar út í lok árs 2014. Þær
byggja að stórum hluta á norræn-
um næringarráðleggingum NNR
2012 sem voru kynntar í októ-
ber 2013, öðrum rannsóknum á
sambandi næringar og heilsu og
niður stöðum kannana um mat-
aræði Íslendinga. Norrænu nær-
ingarráðleggingarnar hafa,
samkvæmt upplýsingum
frá Embætti landlækn-
is, verið endurskoð-
aðar á 8 ára fresti
og þær íslensku í
kjölfarið.
vera@365.is
flestir eru orðnir sam-
mála um að mönnum
væri hollt að minnka
sykurneyslu til muna.
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Kíkið á myndir og verð á Facebook
Skinnjakki á
7.900 kr.
- 3 litir
- stærð 38 - 44
Gallabuxur á
6.900 kr.
- stærð 34 - 50
Opið virka daga kl
. 11–18
Lokað laugardagin
n 30. júlí.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Fa cebook
Ný sending
Síðar peysur
10.900 kr.-
Str. 40-56
Litir: svart og blátt
Enn er hægt að gera
flott kaup á útsölunni
ALLTAF VIÐ HÖNDINA
Þú getur lesið
Fréttablaðið í heild
sinni á Vísi og í
Fréttablaðs-appinu
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
2 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D A g U R2 F ó l k ∙ k y n n I n g A R b l A Ð ∙ X X X X X X X X
0
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
2
0
-4
9
9
0
1
A
2
0
-4
8
5
4
1
A
2
0
-4
7
1
8
1
A
2
0
-4
5
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K