Fréttablaðið - 02.08.2016, Side 31
Ýmsir hafa tjáð sig á undan-förnum misserum um betrun og mikilvægi þess að hún sé
innleidd í íslenskan rétt. Í undir-
búningi við gerð nýrra laga um fulln-
ustu refsinga gagnrýndi Afstaða
harðlega að hugtakið betrun kæmi
hvergi fyrir í frumvarpi innanríkis-
ráðherra sem lagt var fyrir Alþingi.
Niðurstaðan varð sú að allsherjar- og
menntamálanefnd þingsins bætti inn
orðinu betrun á nokkrum stöðum
í frumvarpinu, en það var ekki til-
gangur athugasemdanna heldur sá
að með nýju lögunum yrði innleidd
betrunarstefna á Íslandi í stað við-
varandi refsistefnu. Ég tel að nokkurs
misskilnings hafi gætt um beitingu
hugtaksins betrun.
Betrun snýst um að gerð verði
persónusniðin vistunaráætlun þar
sem sérfræðingar meta einstak-
linginn og veita honum viðeigandi
meðferð; gera í upphafi afplánunar
áætlun um hvernig einstaklingurinn
nýtir tímann til að afla sér menntunar
sem gerir honum kleift að verða nýtur
þjóðfélagsþegn að afplánun lokinni.
Þá skiptir miklu að styrkja stoðir fjöl-
skyldunnar og gera einstaklingnum
mögulegt að treysta samband sitt við
fjölskyldu og vini. Með nýju lögunum
var hins vegar ákvæði um gerð vist-
unaráætlunar fjarlægt úr lögunum og
þrengt að vina- og fjölskyldutengslum
með ýmsum takmörkunum á heim-
sóknum. Annar mikilvægur hluti
af betrun er að vinna úr orsökum
afbrotsins, meðal annars með því að
reyna að sætta geranda og brotaþola.
Það hefur sýnt sig að þrepaskipt
fangelsisvist, þar sem dómþoli losnar
í áföngum aftur út í samfélagið, skilar
góðum árangri. Við höfum þrepin hér
á Íslandi, en það skortir á sjálft inni-
hald fangavistarinnar, þar sem dóm-
þolum er veitt ábyrgð og þeir studdir
til að taka ábyrgð í samræmi við þá
vistunaráætlun sem gerð er í upphafi.
Þrátt fyrir þrepaskiptinguna, þar sem
er að finna lokuð fangelsi, opin fang-
elsi, áfangaheimili og rafrænt eftirlit,
skortir alveg innihald vistunarinnar.
Því verða fangelsin bara geymslur þar
sem einstaklingarnir eru stefnulausir
í afplánun og ekkert tekur við að þeim
tíma liðnum.
Skilar ótvíræðum árangri
Rannsóknir, þekking, reynsla og
menntun um betrun er til staðar –
en í afskaplega litlum mæli á Íslandi.
Þess vegna er eðlilegt að leita í þekk-
ingu og reynslu erlendis, þar sem sýnt
hefur verið fram á með rannsóknum
að skipulagt betrunarferli skilar ótví-
ræðum árangri. Í byrjun ársins kom
Knut Storberget, fv. dómsmálaráð-
herra Noregs til Íslands og hélt fram-
sögu í Norræna húsinu um stefnu-
mótun sem fram fór í tíð hans sem
hefur verið kölluð „dómar með til-
gang“ (straff som virker).
Þegar Norðmenn fóru í stefnu-
mótunarvinnuna könnuðu þeir fyrst
hverjir það væru í raun og veru sem
væru í fangelsunum. Þeir komust að
því að fólk, sem býr við slæmar félags-
legar aðstæður var það fólk sem kom
aftur og aftur í fangelsi. Þegar það lá
fyrir var farið að rýna í hvernig hægt
væri að breyta kerfinu til að koma í
veg fyrir endurkomur, og tryggja far-
sæla endurkomu út í samfélagið.
Töluverð bið hafði verið eftir að
komast í afplánun í Noregi og of
margir voru að koma í fangelsi í
mjög stuttan tíma, aðallega ungir
menn. Endurkomutíðnin var of há
og sama fólkið kom aftur og aftur
til að afplána dóma. Sömu vanda-
mál blasa við hér á landi. Lögð var
áhersla á aukna menntun starfs-
fólks, og hún færð á háskólastig
þar sem áfram er unnið með rann-
sóknir til að meta þau úrræði sem
Hvað er betrun?
þróuð eru, svo bæta megi þau til
að ná settum tilgangi; að betrunar-
úrræðin skili einstaklingunum betri
út í samfélagið.
Yfirklór Alþingis, þar sem orðinu
betrun var bætt inn í frumvarpið
á nokkrum stöðum, var þó engin
stefnubreyting í ætt við þá sem varð
í Noregi.
Engin framtíðarstefnumörkun
Engin framtíðarstefnumörkun
hefur verið gerð af hálfu íslenskra
stjórnvalda um hvernig þau hygg-
ist minnka endurkomur í fang-
elsin. Innanríkisráðherra sagði þó
á Alþingi að endurkomutíðni á
Íslandi væri allt of há. Áhugavert
væri að vita hvað ráðherra telji að
eigi að felast í betrun og hver henn-
ar sýn er á innihald fangavistar – í
hverju hún eigi að felast.
Endurhæfing þýðir færri glæpir!
Frelsissviptingin ein og sér er refs-
ing, en því minni munur sem er á
milli lífs innan og utan fangelsa,
því auðveldari verða umskiptin frá
fangelsi yfir í frelsi.
Betrun snýst ekki um að fangar
geti farið fyrr á rafrænt ökklaband
eða losnað fyrr úr afplánun. Það
snýst ekki um að fá lengri tíma í
samfélagsþjónustu eða á áfanga-
heimili. Þetta er misskilningur!
Betrun snýst um að byggja upp
einstaklinginn og gera hann hæfan
til þess að takast á við lífið og verða
virkur samfélagsþegn. Í því felst að
fangavistin verður að hafa innihald
og fangar verða að koma með eitt-
hvað í farteskinu út í samfélagið að
nýju. Og síðan verður að taka við
eftirfylgni og stuðningur, þar sem
stuðningurinn felst í aðstoð við
aðlögun að samfélaginu auk þess
að tryggt sé aðgengi að atvinnu og
námi – að ógleymdu þaki yfir höf-
uðið. Það er betrun!
Betrun snýst
um að byggja
upp einstakl-
inginn og gera hann hæfan til
þess að takast á við lífið og
verða virkur samfélagsþegn.
Í því felst að fangavistin
verður að hafa innihald og
fangar verða að koma með
eitthvað í farteskinu út í
samfélagið að nýju.
Guðmundur Ingi
Þóroddsson
formaður
Afstöðu, félags
fanga á Íslandi
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 19Þ R i ð J u D A G u R 2 . á G ú s T 2 0 1 6
0
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
2
0
-4
E
8
0
1
A
2
0
-4
D
4
4
1
A
2
0
-4
C
0
8
1
A
2
0
-4
A
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K