Fréttablaðið - 02.08.2016, Blaðsíða 32
Ég er orðin svo hneyksluð á meðferð ríkisins og annarra stofnana á framkomu þeirra
gagnvart íbúum í Vestur-Skaftafells-
sýslu, hvort sem stofnanirnar eru
opinberar eða einkareknar, að ég
get ekki þagað lengur. Á þetta við að
mestu leyti um íbúa í Meðallandi og
Landbroti.
Eins og fram hefur komið í fréttum
eru þessi svæði að þorna upp vegna
stífluframkvæmda sem ráðist var í
þegar síðasta Skaftárhlaup varð. Það
sem liggur undir þessari framkvæmd
er að lífríki alls svæðisins kemur til
með að hrynja. Fiskistofnar í Gren-
læk, Jónskvísl og öðrum veiðisvæð-
um eru í stórhættu því það er búið að
þurrka upp hrygningarstöðvar fisks-
ins. Ef áframhald verður á þessum
þurrkum kemur grunnvatn til með
að hverfa sem gerir það að verkum
að býli og bæir fá ekki það vatn sem
þarf til að sinna bústofni og ræktun.
Þegar þetta svæði þornar er bara eitt
sem gerist: það verður uppblástur á
landinu og það hreinlega fýkur burt.
Þá er ekki langt í að fólk neyðist til
að flytja búferlum hvort sem það vill
eða ekki.
Það er líka alveg greinilegt að
tækniþróun 21. aldarinnar hefur því
miður strandað á leið sinni að þessu
svæði og enginn reynir að hjálpa til.
Rafmagn á þessu svæði er mjög
ótryggt. Ég veit til þess að síðastlið-
inn vetur t.d. fór rafmagn mjög oft af
þessu svæði. Stundum er rafmagnið
að detta út og inn yfir daginn, sem
fer mjög illa með öll rafmagnstæki.
Tengdaforeldrar mínir búa á þessu
svæði. Tengdamamma notar súr-
efnisvél og veldur þetta henni gríðar-
legum óþægindum. Rafmagnið fer
oft af að nóttu til, þá þarf hún að fara
á fætur og finna ljós til að geta tengt
varasúrefniskútinn sinn svo að hún
nái hreinlega andanum.
Þriggja fasa rafmagn er ekki lagt
til bænda nema þeir greiði fyrir
það flýtigjald því það er ekki á dag-
skrá hjá Rarik að leggja þriggja fasa
rafmagn á þetta svæði nærri strax.
Þetta heftir framfarir í t.d. mjólkur-
framleiðslu því það er ekki hægt að
stækka kúabúin og fá mjaltaþjóna.
Núverandi kerfi er þannig að öll
sveitin finnur fyrir því þegar mjalta-
vélamótorar eru settir í gang, þá
blikka ljós á öðrum bæjum því það
er ekki nægt rafmagn til að keyra
samfélagið allt í einu. Eins kemur
þetta ástand í veg fyrir að bændur
setji á stofn fyrirtæki því það er ekki
til rafmagn fyrir þau. Þetta er eins og
að fara ca. 20 til 30 ár aftur í tímann.
Síðast en ekki síst eru það sjón-
varpsútsendingar og nettenging,
þarna eru truflanir í útsendingu
fastir liðir en ekki undantekning.
Hljóðið bjagast og myndin verður
pixluð. Jafnvel dettur sjónvarpsút-
sending út allt kvöldið. Nettengingin
er eins dyntótt og þegar internetið
var að koma fyrst fyrir tuttugu árum,
stundum náðist tenging og stundum
ekki.
Miðað við þetta ástand er greini-
legt að það á bara að leggja þetta
svæði í eyði vísvitandi. Það er búið
að senda skrifleg erindi til hinna
ýmsu stofnana, fyrirtækja og þing-
manna og ég vona bara að þeir sjái
sóma sinn í að taka til höndum og
bjarga þessu fallega og yndislega
landsvæði áður en það fýkur burt og
leggst í eyði.
Íbúar í Vestur-Skaftafellssýslu
sæta illri meðferð hjá ríkinu
Jæja! Nú eru góðir 6 mánuðir liðnir síðan fjöldi leiðtoga heimsins skrifaði undir Lofts-
lagssamkomulagið í París. Um-
hverfis ráðherra Íslands var þar á
meðal.
Við undirritunina skuldbatt ríkis-
stjórn Íslands sig til að vinna að því
að ná markmiðum samkomulagsins.
Fyrstu aðgerðir hennar eru þegar
farnar að líta dagsins ljós en nýlega
var auglýst verkefnið „rafbílar – átak
í innviðum“ þar sem veitt verður
styrkjum að upphæð allt að 201
milljón á næstu 3 árum. Styrkirnir
geta hæst numið 50% af áætluðum
kostnaði verkefnisins þannig að
vonandi sjáum við yfir 400 milljóna
króna uppbyggingu innviða fyrir raf-
bíla á næstu 3 árum.
Fleiri en ríkið hafa skuldbundið
sig. 103 fyrirtæki skrifuðu undir svo-
kallaða loftslagsyfirlýsingu FESTU og
Reykjavíkurborgar. Stofnanir ríkisins,
þessi 103 fyrirtæki og vonandi miklu
fleiri, eru væntanlega þegar búin
eða munu á næstunni setja fram og
kynna markmið sín og aðgerðir.
Mörg félaganna á lista FESTA eru
með starfsemi á Akureyri og ríkið
rekur fjölmargar stofnanir á Akur-
eyri, eins og skóla, heilbrigðisstofn-
anir, Vegagerðina og lögregluna. Öll
þessi félög og stofnanir eru mikil-
vægir þátttakendur í markmiðum
Akureyrarbæjar um að verða kol-
efnishlutlaust bæjarfélag á næstu
árum
Á undanförnum árum hefur bær-
inn farið í fjölmörg verkefni sem færa
hann nær markmiði sínu, svo sem
frítt í strætó og framleiðslu á moltu
og metani. En hver ættu að vera næstu
skref hjá bæjarfélaginu? Eigum við að
feta í fótspor t.d. San Francisco, sem
hefur bannað frauðplastsumbúðir,
eða Noregs og Hollands, sem stefna
á að frá og með árinu 2025 verði
bannað að flytja þangað inn bíla sem
brenna jarðefnaeldsneyti. Margir
fleiri eru með alvöru aðgerðir í gangi,
t.d. stefnir bandaríski sjóherinn á að
búið verði að skipta 50% af notkun
hans á jarðefnaeldsneyti út fyrir aðra
orkugjafa árið 2020. Margar borgir í
Evrópu ætla sér að banna alla bílaum-
ferð í miðbæjum sínum. Ljubljana,
höfuðborg Slóveníu, steig þetta skref
fyrir nokkrum árum og hefur það
gjörbreytt borginni og lífinu í mið-
bænum, sérstaklega hvað varðar
hávaða og loftmengun. Borgin var
m.a. vegna þessa valin „Green Capi-
tal 2016“. Sumir eru líka löngu búnir
að gera eitthvað, eins og smábærinn
Modbury á Englandi sem bannaði
notkun á plastpokum fyrir 10 árum
síðan.
Allir taki þátt
Eins og okkur hefur tekist vel til
hingað til, með mikilli þátttöku íbúa
í flokkun á lífrænu sorpi og stórauk-
inni notkun á strætó, þá gildir það
sama nú að allir þurfa að koma með
og taka þátt. Sérstaklega þurfa fyrir-
tækin og aðilar eins og matvöru-
verslanir, matvælaframleiðendur,
veitingahús, rútufyrirtæki, bíla-
leigur, hótel o.fl. að setja sér skýr
markmið og skilgreina aðgerðir ef
þetta á að verða að veruleika. Hvað
ætla þau að gera fyrir árið 2020 og
hvað fyrir 2025 og 2030?
Það þarf engar dýrar og flóknar
aðgerðir enda er nú þegar búið að
fjárfesta í framleiðslueiningunum
(Moltu, Orkey, Metan) og inn-
viðunum (hleðslustöðvar, endur-
vinnslustöðvar, græna trektin,
græna karfan). Þetta er allt komið
upp, nú er bara einföld og ódýr inn-
leiðing eftir:
l kaupa rafmagns- og/eða metan-
bíla (þegar bílar eru endurnýjaðir)
l bjóða starfsmönnum upp á
samgöngustyrk eða aðgang að
rafmagnshjóli
l flokka allt lífrænt sorp og skila í
moltu
l hirða alla notaða matarolíu og fitu
og skila í Orkey
l flokka allan úrgang eins og plast,
pappa og málma
l kolefnisjafna flugferðir með skóg-
rækt
Engar uppfinningar, bara innleiðing!
Þessi dægrin eru fluttar fregnir í fjölmiðlum af hækkun fast-eigna- og lóðargjalda í ýmsum
sveitarfélögum. Þessi hækkun
kemur misjafnlega við pyngju fólks,
en ólög valda því að trúfélög greiða
hvorki fasteignaskatta né lóðar-
gjöld.
Fasteignaskattur er lagður á í
samræmi við lög nr. 4/1995 um
tekjustofna sveitarfélaga, en þau
eiga sér nokkra forvera sem rekja
má allt til 1877, en fyrstu eiginleg
lög um fasteignaskatt eru frá 1921
og hafa þau verið endurskoðuð all-
nokkrum sinnum. Í lögunum frá
1921 og síðari lögum var völdum
aðilum veitt undanþága frá greiðslu
fasteignaskatts og lóðargjalda. Þar
má nefna sjúkrahús, skóla, elli-
heimili, íþróttahús, kirkjur o.fl.
Undanþágunum fjölgaði nokkuð í
gegnum tíðina, en í kjölfar skýrslu
nefndar um undanþágur frá fast-
eignaskatti (2001) voru samþykkt
lög frá Alþingi (árið 2005) sem tóku
fyrir flestar af þessum undanþágum.
Þrennt var þó skilið eftir: kirkjur
og musteri trúfélaga, safnahús sem
ekki eru rekin í ágóðaskyni og hús
erlendra ríkja og alþjóðastofnana.
Með þessum breytingum var ekki
hróflað við undanþágu kirknanna,
heldur var bætt í og bænahús og
musteri annarra söfnuða einnig
undanskilin. Rétt er að taka fram
að eina skráða, veraldlega lífsskoð-
unarfélagið á landinu, sem á rétt
til að fá gjöldin niðurfelld, hafnar
algerlega slíkri ívilnun þótt í boði
sé og greiðir sín gjöldin með sóma.
Í skýrslu nefndarinnar frá 2001 er
að finna þennan kostulega rök-
stuðning fyrir trúarundanþágunni:
„Nefndin telur að umrædd undan-
þága byggi á ríkri hefð og er því ekki
lagt til að hún verði afnumin.“ Þessi
orð eru einkar athyglisverð í því
ljósi að ekki þótti nefndarmönnum,
né Alþingi, vera komin hefð fyrir
því að undanskilja t.a.m. sjúkrahús
og skóla gjöldunum.
Ríkisstofnunin þjóðkirkjan,
sem almenningur kallar í dag-
legu tali ríkiskirkjuna, ríður býsna
feitum hesti frá þessari undanþágu.
Almenningur er skyldaður til að
greiða fasteigna- og lóðargjöld ár
hvert á meðan ríkiskirkjan greiðir
krónur 0 af sínum tilbeiðsluhúsum
og lóðunum sem þau standa á.
Lóðirnar fær kirkjan (og önnur trú-
félög) einnig ókeypis og eru þær
að jafnaði dýrustu og eftirsóttustu
landspildurnar í hverju sveitarfé-
lagi. Í Reykjavík einni varð borgin
því af a.m.k. tæplega 73 milljónum
króna á þessu ári. Aðrir söfnuðir
fengu rúmlega 12 milljónir í styrk
frá Reykvíkingum á sama hátt.
Samtals eru þetta rétt um 85 millj-
ónir sem Reykvíkingar greiða með
trúfélögunum í formi niðurfell-
ingar fasteigna- og lóðargjalda af
tilbeiðsluhúsum þessara aðila. Til
dæmis má nefna að ég greiði á þessu
ári um 100 þúsund kr. í fasteigna-
og lóðargjöld af hóflegu íbúðar-
húsnæði á meðan t.d. af monthöll
ríkiskirkjunnar efst á Skólavörðu-
hæðinni er ekki greidd ein einasta
króna! Samt hefur téð höll rakað til
sín tugum milljóna árlega með því
að selja lyftuferðir dýru verði upp í
turnspíruna.
Hefð er aum réttlæting fyrir for-
réttindum trúfélaga, sérstaklega
þegar borgarsjóður er rekinn með
töluverðum halla. Í raun réttri eru
Reykvíkingar að styrkja trúfélög
um milljónatugi árlega með þessum
hætti. Slíkt er óþolandi mismunun
sem kjörnir borgarfulltrúar ættu
að sjá sóma sinn í að fara fram á
við löggjafann að verði breytt. Á
meðan þeir bíða eftir að Alþingi
bregðist við er þeim í lófa lagið
að leggja niður Kirkjubyggingar-
sjóð borgarinnar, en það er enn
ein matarhola ríkiskirkjunnar sem
ausið er úr milljónum ár hvert af
skattfé borgarbúa. Það væri óskandi
að ríkiskirkjan hefði til að bera það
siðferðisþrek að leggja sinn skerf
til samfélagsins með því að greiða
sín gjöld ótilneydd, líkt og Sið-
mennt gerir, en reyni ekki stöðugt
að koma sér hjá því að deila kjörum
með almenningi.
Guð greiðir ekki
fasteignaskatt
Aðalbjörg
Runólfsdóttir
tengdadóttir úr
Landbrotinu
Guðmundur
Guðmundsson
líffræðingur og
laganemi
Guðmundur
Haukur
Sigurðarson
framvæmdastjóri
Vistorku ehf.
Margar borgir í
Evrópu ætla sér
að banna alla
bílaumferð í miðbæjum
sínum. Ljubljana, höfuðborg
Slóveníu, steig þetta skref
fyrir nokkrum árum og
hefur það gjörbreytt borg-
inni og lífinu í miðbænum,
sérstaklega hvað varðar
hávaða og loftmengun.
Þegar þetta
svæði þornar er
bara eitt sem
gerist: það verður uppblástur
á landinu og það hreinlega
fýkur burt. Þá er ekki langt í
að fólk neyðist til að flytja
búferlum hvort sem það vill
eða ekki.
2 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D A g U R20 s k o Ð U n ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð
0
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
2
0
-4
9
9
0
1
A
2
0
-4
8
5
4
1
A
2
0
-4
7
1
8
1
A
2
0
-4
5
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K