Fréttablaðið - 02.08.2016, Síða 44
Femínistahreyfingin hefur breyst umtalsvert
á seinustu árum. Í byrjun snerist baráttan
meðal annars um kosningarétt
en í dag snýst hún um svo
miklu meira. Þrátt fyrir
að vera langt komin frá
því á seinustu öld er
enn langt í land.
Það er margt að gerast í jafnréttismálum kvenna þrátt fyrir að það sé langt í land. Margir hafa sínar eigin skoðanir um það
hvernig femínistar eiga að berjast
fyrir jafnrétti en sannleikurinn
er sá að það er engin ein rétt leið.
Þegar upp er staðið vilja konur
geta hagað sér og gert það sem þær
vilja, rétt eins og karlar hafa getað
gert fram að þessu.
Stjörnurnar í Hollywood geta
haft mikil áhrif enda er hver og ein
fræg kona með fjölmarga aðdá-
endur. Það er því mikilvægt að þær
konur sem hafa tækifæri til þess að
koma skilaboðum sínum á fram-
færi nýti það. Ýmsar stjörnur hafa
vakið meiri athygli á málstaðnum
en aðrar og hver á sinn hátt. Það er
margt sem þarf að taka á og því frá-
bært að fólk geti fundið sér málefni
til þess að berjast fyrir. Konurnar
sem eru nefndar í þessari grein eru
aðeins örfáar af þeim fjölmörgu sem
berjast fyrir jafnrétti kvenna.
Nútíma
femínistar
Beyoncé
Yfirlýsti femínistinn
Beyoncé syngur mikið
um jafnrétti kvenna og er
óhrædd við að tala um þau
á opinberum vettvangi.
Textinn við lagið „Flawless“
innihélt ræðu Chimamanda
Ngozi Adichie sem vakið
hefur mikla athygli um
allan heim en hún fjallar að
mestu um staðalímyndir í
samfélögum heims á hlut
verkum kvenna og karla.
Hún er einnig ötul baráttu
kona fyrir réttindum
svartra kvenna en hún telur
þær vera þann hóp sem
minnst tillit er tekið til í
Bandaríkjunum.
Kim Kardashian
Margir halda því fram enn í dag að eina ástæðan fyrir
því að Kim sé fræg og rík sé af því hún hafi verið í kyn
lífsmyndbandi sem var lekið fyrir 13 árum. Hún hefur þó
bent á að allt í kjölfarið á því hafi gert hana að því sem hún
er í dag. Hún hefur verið með sína eigin raunveruleikaþætti,
eigin verslun, snyrtivörulínur og tölvuleiki sem hafa rakað inn
mörgum milljónum dollara seinustu árin.
Hún hefur einnig gaman af því að klæða sig í kynæsandi
föt og hefur verið mikið gagnrýnd fyrir það. Sem athafna
kona sem hefur verið að gera það gott bæði í viðskipta
heiminum og tískuheiminum segist hún enn finna fyrir því
að hún sé ekki tekin alvarlega vegna þess hvernig hún klæðir
sig. Það á ekki að skipta máli hvernig konur klæða sig því það
segir ekkert til um hversu klárar þær eru.
Amber Rose
Amber Rose starfaði eitt sinn sem strippari en hún getur í dag titlað
sig sem baráttukonu fyrir jafnrétti kvenna. Hún heldur uppi „Amber
Rose Slut Walk“ göngunni í Los Angeles, sem er svipað upp sett
og Druslugangan hér á landi. Hún hefur einnig gagnrýnt það
í gríð og erg að menn eru álitnir aðalspaðarnir ef þeir sofa
hjá mörgum konum en konur eru druslur ef þær sofa hjá
eins mörgum mönnum og þær vilja.
Hún hefur tekið upp hanskann fyrir fjölmargar
stjörnur sem hafa verið mikið gagnrýndar í fjöl
miðlum, eins og Kim Kardashian og
Iggy Azalea, sem og verið ómyrk
í máli í garð manna sem sakaðir
hafa verið um nauðgun eins og Ian
Connor og Bill Cosby. Hún gefur ekkert
eftir og er ávallt samkvæm sjálfri sér. Að
hennar mati mega konur klæða sig eins
lítið og þær vilja en hún hefur oft verið
gagnrýnd fyrir nákvæmlega það og þá
sérstaklega eftir að hún eignaðist barn.
Rihanna
Söngkonan Rihanna klæðir
sig nákvæmlega eins og
hún vill og hagar sér að
sama skapi eins og hún
vill. Hún hikar ekki við
að frelsa geirvörtuna
þrátt fyrir að fjölmiðlar
fjalli um það í hvert einasta
skipti. Sjálf hefur hún sagt að
hún hafi ekki hugmynd um af hverju
fólki finnist brjóstin á henni svona
merkileg þar sem helmingur mann
fólksins sé með brjóst.
Ferill Rihönnu hófst þegar hún var
aðeins unglingur og þá var greinilegt að
hún fylgdi straumnum í einu og öllu.
Seinustu ár hefur hún þó tekið ferilinn í
sínar hendur og farið sínar eigin leiðir.
Þessar ruddu meðal annars brautina fyrir nútímafemínista:
Malala
Yousafzai
Óumdeilanlega frægasti ungi
femínisti heims. Þrátt fyrir að
vera aðeins 19 ára hefur
hún áorkað miklu í
gegnum ævina, þá
sérstaklega fyrir ungar
stúlkur í heimalandi
sínu, Pakistan, og rétt
indi þeirra til náms. Hún
byrjaði snemma að blogga
um ástandið í heimabæ
sínum og meðal annars
gerði New York Times
heimildarmynd um líf
hennar.
Árið 2012 var hún
skotin þrisvar sinnum er
hún steig upp í skóla
rútuna sína. Hún lifði af
og hefur síðan þá talað
enn hærra um ástandið
og hefur meðal annars
hlotið Nóbelsverðlaun
fyrir vinnu sína. Hún
hefur þrisvar sinnum
verið á lista yfir 100 áhrifa
mestu manneskjur heims hjá
tímaritinu Time. Malala er frábær
fyrirmynd sem mun láta mikið
að sér kveða í framtíðinni og því er
mikilvægt að fylgjast með henni.
Emma Watson
He for She verkefnið fór líklegast
ekki fram hjá neinum en Emma
Watson var talskona þess á vegum
UN Women. Hún hefur látið vel í sér
heyra um aukin réttindi kvenna og
hefur haldið margar áhrifamiklar
ræður sem fara hafa sem eldur um
sinu á internetinu. Hún er ung leik
kona sem margar ungur stúlkur líta
upp til og því hefur hún gífurlega
mikil áhrif.
Madonna Oprah Coco
Chanel
Angelina
Jolie
Viola
Davis
Gina
Davis
Hillary
Clinton
2 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D A g U R32 L í f I Ð ∙ f R É t t A B L A Ð I Ð
Lífið
0
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
2
0
-3
F
B
0
1
A
2
0
-3
E
7
4
1
A
2
0
-3
D
3
8
1
A
2
0
-3
B
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K