Fréttablaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 32
Kristinn Ingvarsson, fram­ kvæmdastjóri Íslenskrar ætt­ leiðingar segir pólitískar, efna­ hagslegar og félagslegar ástæð­ ur liggja að baki því að færri börn séu ættleidd á milli landa nú en áður. „Fæst lönd vilja ætt­ leiða frá sér börn enda er víða lögð áhersla á að þau alist upp sem næst upprunanum. Sum líta jafnvel þannig á að það gefi til kynna að þau geti ekki brauðfætt sitt fólk. Þá hefur hagsæld víða aukist sem dregur úr þörfinni. Áður fyrr voru sömuleiðis nokk­ ur stór ættleiðingarlönd sem ætt­ leiddu frá sér mikið af börnum. Þeim hefur sem betur fer fækk­ að enda getur mikill fjöldi ætt­ leiðinga frá tilteknu landi gefið til kynna að hugsanlega sé ekki allt með felldu.“ Ættleiðanlegum börnum fÆkkar Að sögn Kristins er munaðar­ lausum börnum eða börnum sem vantar fjölskyldur þó ekki endilega að fækka heldur börn­ um sem eru skilgreind ættleið­ anleg. Þau fyrrnefndu er hins vegar ekki hægt að ættleiða án samninga og þeir gilda aðeins við tiltekin lönd. Íslensk ættleið­ ing er eina félagið hér á landi sem hefur milligöngu um ætt­ leiðingar. „Þegar börn eru skil­ greind ættleiðanleg er búin að fara fram rannsókn á því hvort þau séu raunverulega munaðar­ laus og hvort enginn í stórfjöl­ skyldunni sé til staðar. Eins hvort möguleiki sé á því að ætt­ leiða þau innanlands. Þegar því er lokið er hægt að ættleiða þau alþjóðlega. Þessum börnum er að fækka og er staðreyndin sú að umsækjendur eru fleiri en ættleiðanleg börn,“ segir Krist­ inn. Hann segir þau samt sem áður til staðar og að alltaf muni vera þörf fyrir að fólk taki að sér munaðarlaus börn. Fjöldi ættleiðinga til Íslands er nokkuð breytilegur á milli ára. Í fyrra komu hingað tuttugu börn en aðeins fimm það sem af er þessu ári. Ef litið er lengra aftur voru þau ellefu 2014, átta 2013, sautján 2012 og nítján 2011. Íslenska Ættleiðingarmódelið Kristinn segir fækkunina í ár eiga sér nokkrar meginskýring­ ar. „Fyrir utan almenna fækkun ættleiðinga á milli landa þá hefur bið eftir forsamþykki hér heima, sem nauðsynlegt er að umsækj­ endur fái áður en sótt er um, lengst úr að meðaltali sex mán­ uðum í ár. Eins hafa lagalegar breytingar í Tékklandi, sem er eitt þeirra landa sem við erum með samning við, hægt á ferl­ inu þar,“ útskýrir Kristinn sem á þó von á því að það verði aðeins tímabundið. Þá segir hann að dregið hafi úr umsóknum þegar félagið var að berjast í bökkum á árunum 2011 og 2012. „Þá var það fjármagn sem rann til félagsins af mjög skorn­ um skammti. Við vorum að berj­ ast fyrir lífi félagsins og fólk fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 treysti sér því síður af stað. Árið 2012 gerðum við hins vegar þjón­ ustusamning við ríkið sem snéri dæminu algerlega við. Nú er fjár­ hagurinn traustur og í dag erum við eina félagið í heiminum með þjónustusamning við stjórnvöld og tryggt rekstrarfé, þó enn þurfi að auka fjármagnið í mála­ flokkinn. Úti í hinum stóra heimi er þetta kallað íslenska ættleið­ ingarmódelið og þykir til fyrir­ myndar. Annars staðar er um að ræða félagasamtök eða sjálfs­ eignarstofnanir og hafa mörg þurft að leggja upp laupana.“ Kristinn segir þó enn eima eftir af þessu og er fólk enn að koma í viðtöl með áhyggjur því að félag­ ið sé að fara að hætta starfsemi. „Svona hefur áhrif og skilar sér í tímabundinni fækkun umsókna. Nú er fjárhagurinn hins vegar traustur og því óhætt að leita til okkar.“ lengri bið eftir forsamþykki En hvernig skýrir hann þá töf sem orðið hefur á því að umsækjendur fái forsamþykki? „Um tíma hafði Sýslumaðurinn í Búðardal umsjón með málaflokkn­ um en hann var fluttur til Sýslu­ mannsins á höfuðborgarsvæðinu fyrir nokkrum árum. Eftir það hefur biðin smám saman verið að lengjast.“ Kristinn telur það helst vera vegna mikils vinnuálags á starfsmönnum embættisins sem hefur verið í umræðunni um nokk­ urt skeið. „Við höfum mikla samúð með starfsfólkinu og höfum bent á að augljóslega þurfi að fjölga í sifjadeildinni.“ Í dag er Íslensk ættleiðing með sautján virkar umsóknir úti í hinum stóra heimi sem er óvenju­ lítið. Hins vegar eru meira en tuttugu umsóknir um forsamþykki á borði sýslumanns. „Það eru dæmi um að fólk bíði lengur eftir forsamþykki en eftir barni eftir að umsókn fer út,“ segir Kristinn. samningar við búlgarÍu og indland Bið eftir börnum er mismikil eftir ættleiðingarlöndum. Í dag er Ís­ lensk ættleiðing með samning við Kína, Kólumbíu, Tékkland, Tógó, Indland og Búlgaríu. En stend­ ur til að fjölga löndum? „Það er alltaf í skoðun en á meðan fjöldi umsókna er ekki meiri er það kannski ekki það sem er brýnast. Við gerðum fyrir nokkru samn­ ing við Búlgaríu og er gaman að segja frá því að miðstjórnin þar í landi óskaði í raun eftir því að fyrra bragði eftir að hafa heyrt af íslenska ættleiðingarmódel­ inu. Þá erum við í þessum töluð­ um orðum að opna á ættleiðingar barna með skilgreindar þarfir frá Indlandi, en vegna aðstæðna var lokað á Indland um skeið.“ Krist­ inn segir enn engar umsóknir komnar til Búlgaríu. „Það getur verið svolítið erfitt að vera fyrst­ ur og ryðja brautina. Þegar ég hóf störf um áramótin 2009 til 2010 var lítil reynsla komin á ættleið­ ingar frá Tékklandi og einungis tvær umsóknir þar í landi. Nú eru flestar umsóknirnar þar, enda al­ menn ánægja með ferlið og hefur fjöldi barna komið frá Tékklandi síðustu ár.“ aukin áhersla á stuðning Þó að tilgangur Íslenskrar ætt­ leiðingar sé í grunninn að ann­ ast milligöngu um ættleiðingar þá hefur skilgreiningin að sögn Kristins verið að breytast. „Við lítum svo á að hlutverk okkar sé stærra og meira. Við leggjum Vera einarsdóttir vera@365.is okkur fram um að styðja fjölskyld­ una í umsóknarferlinu og ekki síst eftir að hún kemur heim. Við erum með sálfræðing sem veitir ráðgjöf, fræðslu og stuðning og erum til dæmis að veita stuðning í leikskóla og fræðslu til stórfjöl­ skyldunnar þegar foreldrar fara út að sækja barn. Það er óheyrt hjá öðrum þjóðum.“ Eftir þættina á Stöð 2 hefur við­ tölum við ættleidd ungmenni og uppkomna ættleidda einstaklinga sem vilja leita upprunans fjölg­ að. „Í því samhengi leggjum við sérstaka áherslu á sálfræðilegan undir búning.“ Aðspurður segir Kristinn hugsanlegt að umsókn­ um um ættleiðingar fjölgi líka í kjölfar þáttanna. „Nú þegar hafa fleiri bókað sig í viðtöl með það í huga að skoða ættleiðingu en á sama tíma í fyrra.“ á aðra af elstu umsóknum félagsins En hvað varð til þess að þú helg­ aðir þig þessum málaflokki? „Ég og konan mín, Birna Ósk Ein­ arsdóttir, skráðum okkur á bið­ lista í Kína í apríl 2007. Þá var okkur sagt að biðtíminn væri um tvö ár. Fljótlega sáum við að sá biðtími var ekki raunhæfur og fórum að ókyrrast. Við hittum fólk sem var í svipuðum sporum og stofnuðum nýtt ættleiðing­ arfélag, sem hafði það að mark­ miði að fjölga ættleiðingarlönd­ um. Það hafði heilmikil áhrif á þennan málaflokk og stuttu síðar hætti þáverandi framkvæmda­ stjóri ÍÆ. Ég var beðinn um að taka við og var Alþjóðleg ætt­ leiðing í kjölfarið sameinuð Ís­ lenskri ættleiðingu. Kristinn tók við sem framkvæmdastjóri um áramótin 2009/2010. Í byrjun árs 2010 komust hann og Birna Ósk að því að þau ættu von á barni. „Við vorum þá búin að vera barn­ laus mjög lengi. Við vorum mjög spennt fyrir því að ættleiða barn og vorum löngu hætt að velta öðru fyrir okkur.“ Nú eiga þau Kristinn og Birna Ósk sex ára stúlku. Umsókn þeirra í Kína er dagsett 15. apríl 2007 og er hún önnur af tveimur elstu umsókn­ um félagsins. „Miðstjórnvaldið í Kína til­ kynnti í janúar að það væri að afgreiða umsóknir frá 9. janú­ ar. Í október var tilkynnt að verið væri að afgreiða umsókn­ ir sem bárust fyrir 16. janúar. Á tíu mánuðum voru því afgreidd­ ar umsóknir sem bárust á sjö dögum. Ég er því ekkert farinn að pakka ofan í tösku.“ stórkostlegt Ævintýri Aðrar umsóknir hafa gengið hrað­ ar fyrir sig og hafa 98 börn verið ættleidd til landsins frá því Krist­ inn tók til starfa fyrir að verða sjö árum. „Það er stórkostlegt ævin­ týri að fá að taka þátt í þessu með fólki. Við fáum það hingað í alla pappírsvinnuna en líka á mán­ aðarlega fræðslufyrirlestra sem við stöndum fyrir. Þegar kemur að pörun við barn erum við svo í mjög miklu sambandi. Þegar heim er komið koma allir til að sýna gullmolann sinn. Við erum svo í heilmiklu sambandi fyrstu mánuðina til að fylgjast með og vita hvort við getum eitthvað að­ stoðað. Þá bjóðum við upp á fjöl­ skyldumorgna og ýmislegt annað félagsstarf.“ Þegar fréttir berast af því að fjölskylda hafi sameinast ytra segir Kristinn alltaf haldna há­ tíðarstund á skrifstofunni. „Við klæðum okkur upp og skálum. Ég set meira að segja upp bindi sem ég geri aldrei annars enda ekki annað hægt en að hrífast með þegar fjölskyldurnar ná saman.“ Kristinn og birna ósk ásamt dótturinni önnu elísabetu Kristinsdóttur. Þegar fjölskyldur sameinast ytra klæðir starfsfólk ÍÆ sig upp enda ekki hægt annað en að hrífast með. Hér er Kristinn ásamt ragnheiði davíðsdóttur, marion brochet og lárusi blöndal á hátíðarstund. 1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l 1 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 5 5 -2 F 5 4 1 B 5 5 -2 E 1 8 1 B 5 5 -2 C D C 1 B 5 5 -2 B A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.