Fréttablaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 66
Hr yl l i n g s my n d i n Mara er nú á loka-metrunum í tökum og stefna aðstand-endur hennar að því að frumsýna myndina erlendis í lok september á næsta ári og vonast til að hægt verði að sýna hana hér á landi á svipuðum tíma. „Við eigum eftir einhverjar senur sem við þurfum að taka upp í Nashville og eitthvað smá í við- bót, voðalega lítið. Þetta er lítið í blaðsíðum en ferðalagið er langt,“ segir Elvar Gunnarsson, leikstjóri myndarinnar, aðspurður hvernig gangi í tökum. Það má segja að Mara sé fjöl- skylduframleiðsla en leikstjóri myndarinnar, Elvar Gunnarsson, og aðalleikkonan, Vivian Ólafsdótt- ir, eru hjón, auk þess sem sjö ára dóttir þeirra leikur líka lítið hlut- verk í myndinni. Magnús Ómars- son er einn framleiðenda Möru og er auk þess hljóðmaður og leikur sjálft skrímslið og Berglind Bjart- marsdóttir sem sér um búninga og leikmuni. Berglind og Magnús eru par og Bjartmar, þriggja mánaða sonur þeirra, leikur stóra rullu í myndinni. „Það er mjög auðvelt að vinna með fjölskyldunni. Það myndast miklu þéttari stemming yfir öllum; fjölskyldustemmingin smitast út í hópinn og við verðum í raun öll að einni stórri fjölskyldu. Það eru hérna tvær fjölskyldur sem er alveg stór partur af tökuliðinu. Bjartmar leikur nú frekar stórt hlutverk, hann var þriggja mánaða þegar hann var í tökum. Það var nú mesta barnaævintýrið að leikstýra ungbarni. Það var nú frekar einfalt að leikstýra honum og kortleggja svona sirka hvernig honum liði í hvaða aðstæðum. Maður þurfti nú bara að skipuleggja daginn svolítið út frá því hvenær hann væri vak- andi og hvenær hann væri sofandi. Kolbrún Una, hún var í einn dag og er í einni senu. Samt alveg stórri og veigamikilli senu en ekki eins mikið og Bjartmar en hann kemur fram í svona tuttugu prósentum myndarinnar.“ Mara er í grunninn þroskasaga sem fjallar um par sem eignast sitt fyrsta barn og ábyrgðina sem því fylgir. Þroskasaga sem inniheldur konu sem verpir eggi, fornan vætt sem býr undir kjallaragólfinu og saklausan föður sem umbreytist í vitfirrt illmenni. Með aðalhlutverk í Möru fara Gunnar Kristinsson og Vivian Ólafsdóttir. Einnig koma aðrir íslenskir stórleikarar við sögu, s.s. Halldóra Geirharðsdóttir, Halldór Gylfason, Þór Tuliníus, Björn Jör- undur og Darren Foreman. stefanthor@frettabladid.is Fjölskyldurnar bak við hrollvekjuna Hryllingsmyndin Mara er um það bil að klárast í tökum. Bak við myndina er lítill og náinn hópur en það eru tvær fjölskyldur með börn þar á meðal. Þriggja mánaða sonur eins framleiðandans fer með mjög stóra rullu í myndinni. Í efri röðinni eru þau Magnús, Berglind og Bjartmar og í neðri röðinni eru Elvar, Kolbrún Una og Vivian Mynd/AlVin ZoUg það er Mjög auðvelt að vinna Með Fjölskyld- unni. það Myndast Miklu þéttari steMM- ing yFir ölluM; Fjöl- skyldusteMMingin sMitast út í hópinn og við verðuM í raun öll að einni stórri Fjölskyldu. EYÞÓR INGI GUNNLAUGSSON EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON BJARTMAR GUÐLAUGSSON SIGRÍÐUR BEINTEINSDÓTTIR SIGRÍÐUR THORLACIUS LADDI 7 TUGUR AFMÆLISTÓNLEIKAR Í ELDBORG 21. JANÚAR Björgvin, Halli & Hjört Hows SÉRSTAKIR GESTIR Egils Appelsín kynn með sto lti NÁNAR Á WWW.SENA.IS/LADDI70 AUK ATÓ NLE IKA R K L. 1 6 UPP SEL T KL . 20 MIÐASALA Á AUKATÓNLEIKANA HEFST Í DAG KL. 11 Á HARPA.IS! 1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r54 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 5 5 -2 5 7 4 1 B 5 5 -2 4 3 8 1 B 5 5 -2 2 F C 1 B 5 5 -2 1 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.