Fréttablaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 28
Öflug fjárfesting í rannsóknum og nýsköpun bætir sam-keppnishæfni þjóða til að leysa þau stóru verkefni sem menn standa frammi fyrir á hverjum tíma. Þá gildir einu hvort um er að ræða rannsóknir eða nýjar lausnir í umhverfis málum, orkumálum eða heilbrigðismálum.“ „Mikilvægt er að ungt vel menntað fólk geti haslað sér völl og skapað sér starfsvettvang í rannsókna- og nýsköpunarstarfi hér á landi.“ Þetta er ekki væl í vísinda- mönnum í fílabeinsturni. Þetta er orðrétt tilvitnun í áherslur Samtaka atvinnulífsins. „Menntun er undirstaða framþró- unar og þekking er forsenda aukinnar framleiðni, velferðar og verðmæta- sköpunar.“ Þetta er ekki ákall rektora úr sveltu háskólaumhverfinu. Þetta er upphaf fréttar frá Samtökum iðnaðar- ins undir fyrirsögninni „Menntun er forsenda bættra lífskjara“. Framþróun, velferð, verðmæta- sköpun og samkeppnishæfni hvílir á menntun og nýsköpun. Um þetta eru allir sammála, þar á meðal háskólar, rannsóknastofnanir, Samtök iðnaðar- ins, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök atvinnulífsins. Það er líklegt að nær allir aðilar íslensks samfélags myndu skrifa undir þessa lýsingu, jafn- vel stjórnmálamenn – a.m.k. í aðdrag- anda kosninga. Saman er hægt að vera framúrskarandi. Það er svo allt annað með efndirnar því sporin hræða. Vísinda- og tækniráð, sem í sitja sjö (!) ráðherrar ríkisstjórnar á hverjum tíma, setur fram stefnu sem stjórnvöld sjálf síðan hunsa. Sína eigin stefnu. Er það nema von að fylgi stjórnmála- flokka sé á fleygiferð í leit að efndum? Ætlum við að fjarlægja hreyflana? Breytingar síðustu 15 ára í samfélags- og tækniþróun eru meiri en 50 árin á undan sem var meiri en 1.000 árin þar á undan. Þróunin gerist ekki með jöfnum hraða heldur með hröðun. Sívaxandi hraði í tækni og framþróun samfélaga er drifinn áfram af órofa samfellu menntunar, rannsókna- starfs og nýsköpunar. Þetta vita allar viðmiðunarþjóðir okkar og segja upphátt að samfellan sé lykillinn að samkeppnishæfni (ekki bara fram- leiðni heldur lífsgæðum, hamingju og mannauði). Það er GALIÐ að vilja ekki halda í við aðrar þjóðir í þessum efnum! Og það skilur æ hraðar á milli. Á meðan við höldum í sveltu horfinu sem hálfdrættingar í framlögum til háskóla á við Norðurlöndin, eru aðrar þjóðir að reyna að halda í við sífellt hraðari framþróun og bæta því stöðugt í. Það gefur augaleið að þetta fer illa ef menn ranka ekki við sér. Á Íslandi ríkir enn auðlindadrifið hagkerfi 20. aldarinnar með efnahags- stöðugleika sem er háður gæftum, veðri og vindum á fiskimiðum, eða ál- og orkuverði á heimsmörkuðum. Annað er takmörkuð auðlind, á hinu höfum við enga stjórn. Ef svo fer fram sem horfir mun unga fólkið áfram sækja sér menntun, bara erlendis, og ástæðum til að koma heim fjölgar ekki. Spennandi störf, starfsframi og tækifæri bjóðast erlendis. Það er ekki lengur hægt að gera ráð fyrir því að mannauðurinn skili sér heim af fjöl- skylduástæðum. Það er beint flug til um 80 áfangastaða svo það er lítið mál að fljúga reglulega heim til að heilsa upp á gamla settið á skerinu, bara þægilegra en að flytja heim. Nema ef vera skyldi að heilbrigðis- kerfið verði orðið svo illa mannað að þú verðir að flytja heim til að annast foreldrana. Við klúðruðum banka- kerfinu ævintýralega, nú er mennta- og heilbrigðiskerfið að nálgast brún- ina í eftirskjálftum hrunsins. Menntakerfi er ekki einhver kostnaðarliður á fjárlögum heldur fjárfesting sem skilar margvíslegum arði. Svo vitnað sé í Barack Obama: „Að mæta halla á fjárlögum með því að skera niður nýsköpun og menntun er eins og að létta þunghlaðna flugvél með því að fjarlægja hreyflana. Vélin gæti svifið hærra tímabundið en fyrr en varir kemur skellurinn.“ Megi nýrri ríkisstjórn farnast vel í starfi. Hugvitið verður í askana látið Einar Mäntylä verkefnisstjóri nýsköpunar hjá Háskóla Íslands fréttablaðið/auðun níelsson Alþjóðasamtökin gegn krabbameini (UICC) skora á þjóðir heims að taka þátt í að vekja athygli á baráttunni gegn krabbameini undir slagorðunum VIÐ GETUM − ÉG GET. Fagdeild krabbameinshjúkrunar- fræðinga á Íslandi fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli sínu og birtir á afmælisárinu röð greina undir heit- inu VIÐ GETUM – ÉG GET í samvinnu við Krabbameinsfélag Íslands. Í þess- ari grein er fjallað um kynheilbrigði krabbameinssjúklinga. Krabbamein er samheiti yfir marga sjúkdóma og þekkja flestir til einhvers sem hefur greinst með krabbamein eða hefur beina eða óbeina reynslu af þeim sjúkdómum. Í árslok 2014 voru um 13.000 einstaklingar á lífi á Íslandi sem greinst hafa með krabbamein. Krabbamein og krabbameinsmeð- ferðir geta valdið breytingum á lífi og lífsgæðum þess sem greinist og haft m.a. áhrif á kynheilbrigði einstakl- ingsins. Með kynheilbrigði er átt við líkamlega, sálræna og samfélagslega velferð eða vellíðan sem hefur með kynverund (sexuality) að gera. Rann- sóknir sýna að um helmingur krabba- meinsgreindra eiga við ýmiss konar kynheilbrigðisvandamál að stríða og er það eitt af algengustu langtíma- vandamálum þessa hóps. Áhrif krabbameins á kynheilbrigði Mismunandi meðferðarkostir eru í boði fyrir einstaklinga sem greinast með krabbamein og fer meðferðin eftir eðli sjúkdómsins og er sér- sniðin að hverjum einstaklingi. Sjúk- dómurinn og meðferð hans tekur toll af einstaklingnum og oft eru aukaverkanir töluverðar af meðferð. Þegar kemur að kynheilbrigði ein- staklinga er margt sem getur haft áhrif. Sjúkdómur í kynfærum getur valdið breytingum á kynfærunum sjálfum, taugum og/eða blóðflæði. Brottnám brjósts eða eistna, breytt útlit skapabarma eftir aðgerð eða ör á líkamanum geta valdið mikilli vanlíðan. Geta þessar breytingar haft áhrif á sjálfsöryggi og vellíðan og þ.a.l. á líkamsímynd og upplifun einstaklingsins af sér sem kynveru. En meðferð krabbameina sem ekki eru staðsett í kynfærum getur einn- ig haft veruleg áhrif á líkamsímynd og lífsgæði einstaklinga. Þar má telja þætti eins og þurrk í slímhúð, sam- gróninga í leggöngum, ristruflanir, getuleysi, verki, hárlos eða hármissi, ógleði, þreytu, þyngdarbreytingar, minni kynlöngun og minni ánægju í kynlífi. Andleg vanlíðan eins og þung- lyndi og kvíði geta einnig haft mikil áhrif. Í kjölfar krabbameinsgreiningar getur samband sjúklings við maka breyst. Erfiðleikar í samskiptum, óöryggi og jafnvel hræðsla sjúklings- ins eða makans við að gera eitthvað rangt getur komið í veg fyrir eðlilegt samband. Mörg pör eru hrædd við að sýna sambandi sínu og kynlífi áhuga í skugga alvarlegs sjúkdóms. Ein- staklingar á barneignaraldri þurfa í ofanálag að takast á við þá staðreynd að þeir geti hugsanlega orðið ófrjóir að meðferð lokinni. umræðan Í marga áratugi hefur kynheilbrigði verið viðurkennt sem hluti af heil- brigði einstaklinga og þ.a.l. eitt af því sem heilbrigðisstarfsfólki ber að sinna. Þrátt fyrir það fá þessi mál- efni ekki næga athygli. Undanfarin ár hefur orðið vakning meðal heil- brigðisstarfsfólks á krabbameins- deildum Landspítalans varðandi kynheilbrigðismál. Á árunum 2011- 2013 sameinaðist hópur fagfólks með stuðningi lyfjafyrirtækjanna Novartis og Sanofi um verkefnið „Kynlíf og krabbamein“. Tilgangur þessa verk- efnis var að stuðla að bættri þjón- ustu við krabbameinssjúklinga og að fræða starfsfólk. Boðið var meðal annars upp á sérhæfða þjónustu kyn- fræðings fyrir krabbameinssjúklinga sem eiga við kynheilbrigðisvanda- mál að stríða og er sú þjónusta í boði enn í dag. En betur má ef duga skal, því ennþá virðist þetta umræðuefni vefjast fyrir mörgum, jafnt sjúkling- um sem heilbrigðisstarfsfólki. Mikil- vægt er þó að hefja umræðuna strax við greiningu því upplýst samþykki sjúklings fyrir meðferð á m.a. að fela í sér fræðslu um áhrif sjúkdóms og meðferðar á kynheilbrigði. VIÐ GETUM – haft áhrif með því að tala um kynheilbrigði, miðlað upp- lýsingum og verið opin og tilbúin til umræðu ÉG GET – aflað mér upplýsinga og fræðslu frá fagfólki um kynheilbrigði og rætt um þessi mál á opinn hátt við maka minn og þá sem standa mér næst Heimildir: Þóra Þórsdóttir. (2012). Könnun á reynslu hjúkrunarfræðinga og lækna af því að ræða um kynlíf og kynlífs- heilbrigði við krabbameinssjúklinga http://skemman.is/stream/ get/1946/12154/30114/1/Þóra_ Þórsdóttir.pdf Jonsdottir, J. I., Zoëga, S., Saevars- dottir, T., Sverrisdottir, A., Thorsdottir, T., Einarsson, G. V., Gunnarsdottir, S. og Fridriksdottir, N. (2016). Changes in attitudes, practices and barriers among oncology health care pro- fessionals regarding sexual health care: Outcomes from a 2-year edu- cational intervention at a University Hospital. European Journal of Onco- logy Nursing, 21, 24-30. World Cancer Day http://www. worldcancerday.org/ Við getum – Ég get Þóra Þórsdóttir hjúkrunar- fræðingur 1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r28 S k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 5 5 -4 8 0 4 1 B 5 5 -4 6 C 8 1 B 5 5 -4 5 8 C 1 B 5 5 -4 4 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.