Fréttablaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 10
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Ljós og hiti TY2007X Vinnuljóskastari ECO perur 2x400W tvöfaldur á fæti 6.590 TY2007K Vinnuljóskastari m handf 400W ECO pera, 1,8m snúra 3.290 T38 Vinnuljós 5.590 Rafmagnshitablásari 5Kw 3 fasa 12.830 TY2007W Vinnuljóskastari á telescope fæti 400W ECO pera 5.390 Kletthálsi 7, Reykjavík Fuglavík 18, Reykjanesbæ SHA-2625 Vinnuljóskastari Rone 28W m. innst. blár. 1,8m snúra 6.990 SHA-8083 3x36W Halogen 16.990 Rafmagnshitablásari 9Kw 3 fasa 17.990 Afmælistilboð Ótrúlegt en satt. Nú eru 40 ár liðin frá því að fyrirtækið flutti starfsemi sína í Austurver og 60 ár frá stofnun þess. Hjá okkur færð þú 50 tegundir af innleggjum og púðum inn í skó, 16 tegundir af mannbroddum ásamt einu mesta úrvali landsins af skóáburði, skóreimum og öllum mögulegum fylgihlutum fyrir skóna. Fram að helgi gefum við 25% afmælisafslátt af allri söluvöru í versluninni Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík s. 553 3980 Kíktu á heimasíðuna okkar www.skovinnustofa.is og www.facebook.com /SkovinnustofaSigurbjorns umhverfismál Tífalt fleiri fuglar þrífast á uppgræddu mólendi en á óuppgræddu landi. Í landi sem grætt hefur verið upp með alaskalúpínu er hlutfallið tuttugufalt. Þetta kemur fram í nýrri grein sem birt er í rafræna tímaritinu Ice landic Agricultural Sciences, og er eftir fræðifólkið Brynju Davíðs- dóttur, Tómas Grétar Gunnarsson, Guðmund Halldórsson og Bjarna Diðrik Sigurðsson – og segir frá á vef Skógræktarinnar. Höfundar rannsökuðu áhrif mis- munandi landgræðsluaðgerða á þéttleika og tegundasamsetn- ingu fugla og á fjölda smádýra. Á 26 stöðum á landinu voru borin saman óuppgrædd svæði, endur- heimt mólendi og land sem hafði verið grætt upp með alaskalúpínu. „Mikill munur var á fjölda fugla milli gróðurlenda. Á óuppgræddu landi var að meðaltali 31 fugl á ferkílómetra, 337 á endurheimtu mólendi og 627 á landi sem hafði verið grætt upp með lúpínu. Þar sem fuglar voru fleiri var einnig meira af smádýrum sem eru mikilvæg fæða fuglanna,“ segir á skogur.is. Í endurheimtu mólendi var mest um vaðfugla, tegundir sem fer hnign- andi á heimsvísu, en í lúpínu var meira um algengari tegundir. Heið- lóa og lóuþræll voru algengustu teg- undirnar í endurheimtu mólendi en hrossagaukur og þúfutittlingur í lúpínu. Þéttleiki sumra fuglategunda virtist vera háður framvindu- stigi landgræðslusvæða. – shá Lúpína lokkar aufúsugesti Hrossagaukur og þúfutittlingur voru mjög áberandi þar sem lúpína sprettur. Fréttablaðið/GVa heilbrigðismál Ekki er til nægur floti sjúkrabifreiða á Norðurlandi til að takast á við rútuslys líkt og varð á Þingvallavegi í síðasta mán- uði. Fjórir sjúkrabílar eru til notk- unar á Akureyri og tveir á Húsavík á svæði þar sem þúsundir lang- ferðabíla fara um árlega í sístækk- andi ferðaþjónustu á svæðinu. Þann 25. október síðastliðinn fór rúta út af Þingvallaveginum að morgni dags með 42 farþega innanborðs. Fimmtán þeirra voru fluttir slasaðir á Landspítalann til aðhlynningar og voru til þess not- aðar tíu sjúkrabifreiðar. Verði slíkt slys á leiðinni milli Akureyrar og Mývatns, þar sem þúsundir ferða eru farnar árlega með farþega, mun það taka langan tíma að flytja slasaða til aðhlynningar á sjúkra- húsi, en aðeins níu sjúkrabifreiðar eru til taks frá Siglufirði í vestri til Húsavíkur í austri. Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norður- lands, segir viðbrögð við slysum af þessari stærðargráðu reglulega æfð á starfssvæðinu. Hann segir skipu- lagið miða að því að senda fólk til Reykjavíkur í stað Akureyrar þar sem sjúkrahúsið á Akureyri sé ekki heldur í stakk búið til að taka við svo mörgum sjúklingum. „Við æfum hópslys með mjög reglulegu millibili og höfum ein- mitt æft slys sem þetta mjög nýlega. Þar er gengið út frá því að búa til loftbrú til Reykjavíkur þar sem þar er sjúkrahúsið sem getur tekið við hópslysum af þessu tagi. Landspítalinn er sjúkrahúsið sem dekkar allt landið, segir Jón Helgi. „Verði slys á Fljótsheiðinni til að mynda væri hægt að taka við minna slösuðum á Húsavík, ein- hverjir færu á Akureyri en síðan þyrfti að fá sjúkraflugvél og jafnvel virkja Fokkervél til að fljúga með fólk suður.“ Ólafur Stefánsson, slökkviliðs- stjóri á Akureyri, segir viðbragðs- tímann geta verið um 40 mínútur fyrir fyrsta viðbragð að mæta á staðinn frá Akureyri. „Síðan yrði að kalla út aukinn mannskap til að manna fleiri bíla.“ Ólafur segir það einnig staðreynd að menntun sjúkraflutningamanna á höfuð- borgarsvæðinu sé almennt meiri en þeirra sem sinna sama starfi á landsbyggðunum. sveinn@frettabladid.is Of fáir sjúkrabílar til þess að bregðast við Hópslys af sömu stærðargráðu og varð á Þingvallavegi þann 25. október gæti reynst erfitt fyrir viðbragðsaðila á Norðausturlandi. Áhersla lögð á að flytja sjúklinga til Reykjavíkur því sjúkrahúsið á Akureyri er ekki nægilega öflugt. Hópslysið á Mosfellsheiði í október er eitt alvarlegasta hópslys síðustu ára á Íslandi. Fréttablaðið/VilHelM Sjúkrahúsið á akureyri er ekki í stakk búið til að geta tekist á við hópslys. Við æfum hópslys með mjög reglulegu millibili og höfum einmitt æft slys sem þetta mjög nýlega. Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heil- brigðisstofnunar Norðurlands. 31 fugl var að meðaltali á einum ferkílómetra. 1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 f Ö s T u D A g u r10 f r é T T i r ∙ f r é T T A b l A ð i ð 1 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 5 5 -3 E 2 4 1 B 5 5 -3 C E 8 1 B 5 5 -3 B A C 1 B 5 5 -3 A 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.