Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.09.2016, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 26.09.2016, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 2 7 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 2 6 . s e p t e M b e r 2 0 1 6 Fréttablaðið í dag skoðun Guðmundur Andri Thorsson skrifar um búð í Eng- landi sem vill banna okkur að nota vörumerkið Iceland. 11 sport Fylkir í afar erfiðum málum. 12 Hjálpin, fréttablað Rauða krossins fylgir blaðinu í dag. Munndreifitöflur 250 mg Pinex® Smelt H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 5 1 1 0 7 2 lÍfið Norskir raunveruleika- þættir voru teknir upp á Þing- völlum og Nesjavöllum. 22 plús 2 sérblöð l fólk l  fasteignir *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Íþróttir Stjórn KSÍ hefur samþykkt að greiða starfsfólki sambandsins launauppbót sökum álags í tengslum við þátttöku A-landsliðs karla á EM í Frakklandi í sumar. Uppbótin sam- svarar mánaðarlaunum hvers starfs- manns. Í samtali við Fréttablaðið sagði Gylfi Þór Orrason, gjaldkeri og for- maður fjárhagsnefndar KSÍ, að til- laga um launauppbótina hefði verið samþykkt í júlí, en Geir Þorsteinsson formaður bar upp tillöguna. Ekki var gert ráð fyrir greiðslu til hans í henni. Á stjórnarfundi í ágúst bar Gylfi fram tillögu fjárhagsnefndar þess efnis að Geir fengi greiðslu líkt og aðrir starfs- menn. Geir vék af fundi þegar tillagan var afgreidd. „Það var rosalega mikið álag á starfsfólkinu okkar í sumar,“ segir Gylfi um ákvörðunina. „Starfsfólk KSÍ hefur unnið langt umfram það sem umsamið er og þá var komið til móts við það eins og í öðrum fyrirtækjum,“ segir Geir Þorsteinsson. Hann segir greiðsl- urnar innan eðlilegra marka. Ekki fékkst gefið upp hversu háar greiðslurnar voru að krónutölu. Sam- kvæmt ársreikningi KSÍ 2015 námu laun og launatengd gjöld 136,1 millj- ón króna og því má ætla að uppbótin nemi nokkrum milljónum króna. Samkvæmt tekjublaði DV námu laun Geirs 1.390 þús- und krónum á mánuði í fyrra. „Ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta í hæsta máti óeðlilegt,“ segir Jón Rúnar Halldórsson, formaður knatt- spyrnudeildar FH, um málið. Hann segir að KSÍ þurfi að upplýsa betur um hvaða heimildir séu fyrir greiðslunum og hvernig þær komu til. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið. – hlh Gagnrýnir launabónusa til forystu KSÍ Stjórn Knattspyrnusambands Íslands greiðir starfsmönnum launauppbót vegna EM í Frakklandi í sumar. Upphæðin samsvarar mán- aðarlaunum hvers starfsmanns. Formaður eins stærsta aðildarfélags KSÍ segir að upplýsa þurfi betur um heimildir fyrir greiðslunum. Fjöldi ferðamanna var á Jökulsárlóni um helgina. Þeir urðu, ásamt ljósmyndara Fréttablaðsins, vitni að miklu sjónarspili þegar einum ísjakanum hvolfdi. Fréttablaðið/vilhelm. dægurMál Söngkonan Joss Stone er væntanleg til Íslands í október, þar sem hún mun koma fram á tón- leikum. Söngkonan á langan feril að baki en hún hefur meðal annars hlotið Grammy-verðlaun og tvenn BRIT-verðlaun á ferli sínum. Boltinn fór að rúlla hjá þess- ari ungu söngkonu þegar hún var 13 ára. „Þetta gerðist allt mjög hratt, ég tók þátt í hæfileikakeppni á sjónvarpsstöðinni BBC þegar ég var þrettán ára gömul. Umboðsmaðurinn minn hafði samband við mig stuttu eftir þetta kvöld,“ segir Joss Stone. – gjs / sjá síðu 20 Hóf söngferilinn 13 ára gömul landbúnaður „Það er bara verið að kippa undan manni fótunum og við getum ekkert gert í þessu,“ segir Ragn- heiður G. Kolbeins, bóndi á Brautar- holti. Greint var frá því fyrir helgi að riðuveiki hefði komið upp á bænum. Á síðustu tíu árum hafa þrettán staðfest riðutilfelli komið upp á land- inu. Flest tilfellin hafa komið upp í Skagafirði en einnig eru dæmi um tilfelli á Suður landi og í Húnaþingi vestra. – sa / sjá síðu 4 Flest tilfellin í Skagafirði 13 staðfest riðutilfelli hafa komið upp á landinu á 10 árum. 10 Halldór 2 6 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A A E -1 1 2 0 1 A A E -0 F E 4 1 A A E -0 E A 8 1 A A E -0 D 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.