Fréttablaðið - 26.09.2016, Page 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
569 6900 8–16www.ils.is
Óskum eftir
samfélagslega
sinnuðum leigusölum
Kynning á stofnframlögum sem veitt verða til
byggingar á hagkvæmum íbúðum með lágri leigu.
Morgunverðarfundur á Grand hóteli á morgun,
þriðjudaginn 27. september, kl. 9–10.
Öflugt, fjölbreytt og samkeppnishæft atvinnulíf er forsenda góðra lífskjara hér á landi. Samkeppnis-hæfni íslensks iðnaðar ræðst að miklu leyti af
þeirri umgjörð sem stjórnvöld á hverjum tíma skapa.
Þegar kosið er til Alþingis er því í reynd verið að kjósa
um samkeppnishæfni sem er forsenda góðs lífs hjá öllum
landsmönnum.
Í aðdraganda þingkosninga sem verða í október vilja
Samtök iðnaðarins leggja sitt af mörkum til umræðunn-
ar. 1.400 fyrirtæki og sjálfstæðir atvinnurekendur mynda
SI og eru þar af leiðandi stærstu samtök atvinnurek-
enda á Íslandi. Samtökin vinna að því að efla íslenskan
iðnað og samkeppnishæfni hans. Það er mikilvægt að
frambjóðendur allra flokka taki tillit til helstu málefna
atvinnulífsins til að bæta samkeppnishæfni Íslands. Því
viljum við að frambjóðendur setji okkar málefni á odd-
inn þegar þeir sannfæra kjósendur um að setja X á réttan
stað. Samtök iðnaðarins ætla að leggja fram sex málefni
sem skipta atvinnulífið og þar með fólkið í landinu miklu
máli. Þessi málefni snúa að efnahagslegum stöðugleika
sem er nauðsynlegur sjálfbærum vexti, húsnæði sem
er grunnþörf bæði yngri og eldri kynslóða, menntun
sem er forsenda bættra lífskjara og aukinnar framleiðni,
samgöngum og innviðum sem eru lífæð heilbrigðs
samfélags, orku og umhverfi en fjölbreyttur iðnaður vill
starfa í sátt við umhverfið og nýsköpun sem er drifkraftur
verðmætasköpunar og gjaldeyristekna. Öll þessi málefni
leggjum við inn í umræðuna á næstunni.
Þegar ungt fólk velur sér menntun eða starf viljum við
að Ísland bjóði upp á bestu kostina. Það skiptir máli fyrir
samfélagið að það takist að halda í unga fólkið okkar á
sama tíma og hugað er að þörfum eldri kynslóðanna. Til
þess að svo megi verða þurfa stjórnvöld að hafa skýra
framtíðarsýn og áræðni til að taka ákvarðanir sem leiða
til árangurs. Það eru margar áskoranir sem bíða nýrrar
ríkisstjórnar og því mikilvægt að forgangsraða með það
að markmiði að á Íslandi sé boðið upp á gott líf.
Við viljum eiga gott samstarf við stjórnvöld að
kosningum loknum og væntum þess að þau séu reiðu-
búin að hlusta. Mestu máli skiptir að ákvarðanir nýrra
stjórnvalda leiði til framfara á Íslandi bæði fyrir fólk og
fyrirtæki.
Kjósum gott líf
Guðrún
Hafsteinsdóttir
formaður Sam-
taka iðnaðarins
Þegar ungt
fólk velur sér
menntun eða
starf viljum
við að Ísland
bjóði upp
á bestu
kostina.
Þetta er
vafasöm
framsetning
sem elur á
óeiningu og
tortryggni í
samfélaginu,
fremur en að
leitast við að
gera betur í
mörgum og
óskyldum
málefnum.
Hræðsluviðbrögðin
Átakanlegt hefur verið að
fylgjast með Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni, formanni
Framsóknarflokksins, bregðast
við fréttum af fyrirhugðu for-
mannsframboði Sigurðar Inga
Jóhannssonar í Framsóknar-
flokknum. Viðbrögð Sigmundar
hafa einkum verið þau að saka
Sigurð Inga um að ganga á bak
orða sinna um að bjóða sig ekki
fram gegn honum. Sigurviss
formaður myndi fagna mótfram-
boðinu, enda væru kosningar
með alvöru mótframbjóðanda
lýðræðisleg leið fyrir hann til
þess að endurnýja umboð sitt til
að gegna formennsku. Hræðslu-
viðbrögðin benda hins vegar til
þess að hann geri nú þegar ráð
fyrir að mótframbjóðandinn
muni hafa betur.
Tregðan við að hverfa á braut
Annars er það merkilegt hve
stjórnmálamenn eru gjarnir
á að standa á stöðum sínum
eins og hundar á roði. Sig-
mundur Davíð, sem hefur verið
staðráðinn í að halda áfram í
formannsembætti Framsóknar-
flokksins þrátt fyrir mikinn
trúnaðarbrest, er þar engin
undantekning. Mættu stjórn-
málamennirnir gjarnan horfa
til norrænna samstarfsmanna
sinna, sem flestir eru fljótir að
fara af póstum sínum þegar
traust á þeim rýrnar. Og skilja
ábyrgðarstöður eftir handa
þeim sem njóta meira trausts.
jonhakon@frettabladid.is
Það þykir jafnan tíðindum sæta þegar Íslend-ingar eru sammála, en nánast án undan-tekninga snýst slík samheldni þjóðarinnar um eigið ágæti. Um hversu frábær við erum í íþróttum, hvað við eigum frjótt listafólk, erum harðger, vinnusöm og rosalega töff.
Þess utan er hver höndin oft upp á móti annarri svona
dags daglega. Þessu fylgja oft heilbrigð og hressileg
skoðanaskipti þar sem hver og einn berst fyrir því sem
viðkomandi telur bæði rétt og farsælt til betra lífs fyrir
landsmenn og það er allt gott um það að segja.
Hins vegar er það öllu raunalegra hvernig sumir
stjórnmálamenn nýta sér hagsmuni stakra hópa,
einkum þeirra sem minna mega sín innan samfélagsins,
sem réttlætingu fyrir ýmist fordómum eða slælegri
frammistöðu í stökum málaflokkum. Þessa orðræðu
þekkja flestir. Hún getur til að mynda snúist um að
við sem þjóð getum ekki verið að verja peningum í að
bjarga sveltandi börnum úti í heimi því það eru líka
fátæk börn á Íslandi. Eða að við getum ekki varið svona
miklum peningum í menningarstarfsemi því að fullt af
eldri borgurum á Íslandi hafi ekki til hnífs og skeiðar.
Þetta er auðvitað óttalegt rugl. Þetta er vafasöm fram-
setning sem elur á óeiningu og tortryggni í samfélaginu,
fremur en að leitast sé við að gera betur í mörgum og
óskyldum málefnum. Elur á hugmyndum á borð við
þær að með því að gera sómasamlega við eldri borgara
á Íslandi séum við að ganga af listalífinu dauðu eða úti-
loka fjárfestingar í bættri menntum unga fólksins. Og
það án þess að hafa á orði hvert eða hvernig samfélagið
geti sótt sér tekjur með hagsmuni heildarinnar að
leiðarljósi.
Nýjasta útspilið í þessum efnum eru ummæli
Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks-
ins, um kostnaðinn við hælisleitendur sem hingað leita.
Ásmundur sagði að fyrir fjármagnið sem gert er ráð fyrir
í útlendingastofnun væri hægt að reka skurðstofur á
sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum og bætti svo um betur
með því að benda á að dvalargjöld hælisleitenda væru
hærri en lágmarksellilífeyrir. Þetta er að ala á óeiningu
með fádæma smekklausum hætti og reyna að tryggja
sér atkvæði þeirra fjölmörgu Íslendinga sem búa við
laskað heilbrigðiskerfi og óviðunandi lífskjör. Þetta er
döpur og smánarleg fordómapólitík.
Ásmundur Friðriksson er þingmaður núverandi
meirihluta og kjósendur í kjördæmi þingmannsins
hljóta að velta því fyrir sér hvort það hafi verið honum
kappsmál að bæta heilbrigðisþjónustuna í Vestmanna-
eyjum eða hækka lágmarksellilífeyri. Ekki er vanþörf á.
En sé ferill Ásmundar skoðaður þá er nú erfitt að sjá að
þessi málefni hafi verið í forgangi hjá þingmanninum.
En það virðist lækkun auðlindagjalds aftur á móti hafa
verið, með meðfylgjandi tekjutapi fyrir ríkissjóð. Fyrir
þá upphæð hefði ríkisstjórnin hæglega getið rekið
skurðstofu í Eyjum og jafnvel splæst í að allir aldraðir á
Íslandi gætu átt sómasamlegt ævikvöld. Vonandi gerir
Ásmundur þau verkefni að sínum baráttumálum á
komandi vetri fremur en að ala á tortryggni og óvild í
garð hælisleitenda sem hingað leita í neyð sinni.
Óvildarpólitík
2 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m Á N U D A G U r10 s k o ð U N ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
2
6
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
A
E
-4
C
6
0
1
A
A
E
-4
B
2
4
1
A
A
E
-4
9
E
8
1
A
A
E
-4
8
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K